Jæja ég er eflaust að bera í bakkafullann lækinn í bloggheimum með því að taka þetta til umræðu en mig langar til að eyða nokkrum línum í uppákomuna í sjónvarpsþættinum Innlit/Útlit.
Þið sem ekki vitið hvað um ræðir (útlendingarnir ykkar) þá er málið þannig vaxið að fólki ofbauð lýsingarnar á ástandi á íbúð nokkurri sem leit bara þokkalega út í mynd. Ungur maður kaupir sér íbúð og ætlar sér að breyta henni eftir eigin höfði og sjónvarpið fær að kýkja inn fyrir og eftir breytingar. Hmm ég hafði ekki séð þáttin þegar ég las um þetta í blöðunum og varð því að kýkja á þetta þegar ég rakst á endursýninguna í gær. Þess má geta að ég er alveg hætt að nenna að horfa á þennan þátt því magn óbeinna auglýsinga í þættinum er óþolandi.
Og jú ég er sammála því sem ég hef verið að lesa um þetta, dónaskapurinn er yfirgengilegur. Þáttastjórnandi og húseigandi eru sammála um að eldhúsinnréttingin sé algjört ógeð, svo ljót að það væri ekki hægt að bjóða fólki hana gefins. Það væri að gera fólki ógreiða með því. Hmm innréttingin er greinilega ekki eftir smekk allra, en í þokkalegu standi, nýleg meira að segja. Áfram tyggja þeir á orðinu ógeð, þeir gátu ekki einu sinni verið með fjölbreyttan orðaforða í þessum lýsingum sínum. Baðið er ógeð, viðkomandi treystir sér ekki einu sinni til að pissa í klósettið þarna. Allt skal vera rifið út og íbúðin gerð fokheld. Viðarrimlagardínurnar sem voru í íbúðinni voru svo mikill viðbjóður að vinur hans ældi á gólfið yfir því hvað þær væru ljótar. Í mynd var þetta hið þokkalegasta bað kannski ekki það nýjasta og flottasta en ók og hreinlegt á að líta. Ekki eins og á ýmsum staðnum sem maður hefur skoðað um tíðina. Og rimlagluggatjöldin voru þessi dökku breiðu viðarrimlar sem eru svo víða eftir að þeir komust í tísku í kringum 2000.
Ég kann alltaf betur og betur að meta Völu Matt í þessu hlutverki, þó orðaforðinn hafi verið takmarkaður og síendurtekin þegar hún var með þennan þátt, fann hún alltaf eitthvað gott að segja um allt sem hún sá. Ef það var ekki eftir hennar smekk þá var það ekki "augnakonfekt" heldur "áhugavert". Hún hefur eflaust haft í huga að það þarf að hafa áhorfendur góða, sama hvaða smekk þeir hafa. Jafnvel þó hann sé "síðri" en eigin smekkur. Ekki bara vegna þess að þeir kaupa það sem auglýst er í þættinum í meira og minna beinum og óbeinum auglýsingum. Heldur einnig vegna þess að það er fólkið í landinu sem er að hleypa þessu fólki heim til sín og það getur auðveldlega orðið hikandi við að opna dyrnar á heimili sínu. Vill ekki láta dæma sig á þennan veg. Einhver þeirra sem leitað er til síðar gæti allt eins verið sá sem seldi manninum ógeðis íbúðina, hver veit.
En svo er þetta innslag einnig birtingarmynd fyrir tvennt í þessu þjóðfélagi sem ég á erfitt með að umbera: Annarsvegar þessi flottræfilsháttur, henda öllu og kaupa allt nýtt, neytendur fram í fingurgóma, kaupa kaupa kaupa, aldrei nýta, aldrei hugsað um umhverfið og vaxandi ruslahauga heimsins og þverrrandi auðlindir vegna þessa lífstíls. Hins vegar mjög tengt fyrirbæri, þessi persónuleiki sem kallaður er hnakki, sem er svo útlitssinnaður að yfirborðsmennskan yfirtekur allan persónuleikann sem ekki er fær um að setja sig í spor annara. Og á sama tíma er tjáningin einskorðuð við einhæfðan og fordómafullann orðaforða og viljandi ranga málnotkun til að virka töff og flottur á allann hátt, s.s. yfirborðsmennska út í gegn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli