sunnudagur, júlí 16, 2006
Netheimar
Ég var að lesa bloggið hennar Ástu úr saumaklúbbnum, þar sem hún talar um 10 hluti sem hún elskar. Þar á meðal að lesa bloggsíður. Ég neyðist til að viðurkenna að ég geri soldið af því líka. Það er fyrst alltaf ákveðinn blogghringur, þau blogg sem ég kýkji á reglulega, vinir kunningjar. En svo kýkir maður á nagportal.net og uppgvötvar margar síðurnar þar. Þar hef ég fundið bloggsíður fólks sem ég hef einhvern tímann eytt tíma með á æfinni. Séu það gamlir vinir, vinnufélagar eða skólasystur eða -bræður sem maður er ekki í neinu sambandi við lengur, kannski ekki séð í 20 ár. Merkilegur andskoti þessi netheimur. Allt í einu er maður að lesa um líf fólks sem maður hefur kannski einhverntímann þekkt eða aldrei þekkt, stundum hef ég það á tilfinningunni að ég sé að njósna. Þessum blogglestri fylgir svolítil sektarkennd, líkt og þegar sést hefur til manns að lesa "Séð og Heyrt" nú eða DV. Maður á ekki að lesa þetta segir samviskan. En á móti kemur að það sem birtist á bloggsíðum er með vilja fólksins gert, það er sjálft að birta þetta, annað en það sem stundum er gert í öðrum miðlum. Þetta hljómar kannski undarlega fyrir þig, að lesa þessar vangaveltur á bloggsíðu. Þversögn kannski, en á móti kemur að síðan þessi er ekki á neinum lista, ekki hjá blogger eða á nagportal. Auk þess er ekki svo auðlæsilegt fyrir aðra en þá sem þekkja mig hver skrifar hér. Þess vegna finnst mér ég vera örugg þó auðvitað er það enginn á þessu sviði. Ég er ekki alveg á útopnu hér, heldur er um að ræða þrengri vettvang en hjá flestum. Auk þess sem ég er ekki að deila hverri einustu gjörð eða hugsun með lesendum. Nú hljóma ég eins og ég sé að réttlæta sjálfa mig útfrá þessum pælingum mínum, þannig hefur vopnið snúist í höndunum á mér. Þetta var Sunnudagshugvekjan mín, nú má "Húsið á sléttunni" byrja.
1 ummæli:
Sko, þetta eru óvenju djúpar pælingar m.a.v. að vera á bloggsíðu, það verð ég nú að segja. Eru ekki bloggsíður skriftastólar nútímans? Við erum hvort sem er hálf kaþólsk enn þó ekki séu nema rúm fimmhundruð ár síðan að kaþólska var aflögð hér á landi..
Baráttukveðjur frá bloggara
Skrifa ummæli