þriðjudagur, janúar 23, 2007
Köttur og mús
jæja þá er mín barasta komin með gæludýr, alveg óviljandi. Og er núna algjörlega ósofin og taugatrekkt. Svo er mál með vexti að það er músagangur hjá mér og mýslan vill ekki í gildru svo ég greip til þess ráðs að fá lánaðan kött. Og kötturinn hélt fyrir mér vöku í nótt frekar en tilhugsunin um mýslur.
1 ummæli:
Þetta er allavega ekki rotta. Ég huggaði mig við það þegar við fengum mýslurnar þegar ég bjó í Edinborg. En leiðinlegt er svona ástand samt..
Skrifa ummæli