fimmtudagur, desember 14, 2006

Öryggi í umferðinni

Jú víst er það Gyða, ég hvíldi mig um leið og ég fann að kaldur gustur var ekki nóg til að hressa mig við. Og þvílíkur munur sem 10 mín. lúr getur gert. Öll fjölskyldan hefur lagst á eitt við að ráðleggja mér um hvað ég þurfi að hafa með í bílnum til að vera örugg á þessum vetrarferðum mínum norður og suður. Svo nú er ég komin með svefnpoka í bílinn, líka loðfóðraðann útigalla, gönguskó, skóflu, keðjur, kerti, vasaljós, heitt vatn á brúsa, harðfisk, húfu og vettlinga. Það má segja að ég sé bara orðin við öllu búin, nema því að hafa farþega í bílnum því á endanum verður ekkert pláss í bílnum. Og héðan í frá fer ég ekki af stað nema úthvíld, ég geri mitt besta til að aka varlega, á viðeigandi hraða, ekki taka framúr nema ástæða og aðstæður bjóði upp á það, ég geri allt í mínu valdi til að vera örugg í umferðinni en ég get ekki ábyrgst það sem aðrir gera. Bíllinn er í góðu standi, ég er með auka brúsa af rúðuvökva og dekkjahreinsi í bílnum. Til skemmtunar hlusta ég svo á hljóðbækur á meðan á ferðinni stendur, engin ástæða til að vera alltaf að skipta um útvarpsrás, annars er útvarpið stillt á gufuna á langbylgju til að missa ekki af fréttum hvar svo sem ég er stödd á leiðinni. Ég held ég sé farin að hljóma eins og Frímann Gunnarsson svei mér þá, hér með er þessum pistli lokið.

2 ummæli:

Gyda og Kalli sagði...

Nákvæmlega hljómar eins og Frímann :-D Brilljant

Björk sagði...

flott hjá þér fara varlega
kv Björk