föstudagur, desember 16, 2005

Smá leiðrétting

Sorry ég bara vissi ekki að Stuart væri líka meyja, nú hefði ég kannski átt að hlusta betur, þar með er þeirri leiðréttingu komið á framfæri.

þriðjudagur, desember 13, 2005

Stjörnurnar segja

Samkvæmt mbl.is í dag 13/12

SPORÐDREKI 23. október - 21. nóvember
Hæfileikar sporðdrekans eru til reiðu. Nú vantar hann bara réttu áheyrendurna - þá sem búa yfir nægri reynslu til þess að nema blæbrigði snilldarinnar. Meyja og fiskur klappa ákaft fyrir þér.

Réttu áheyrendurnir, rétt er það mig VANTAR þá, fékk eitt neitunarbréfið í viðbót í dag, grr. Eina parið af meyju og fisk sem ég þekki eru ekki hér og ekki væntanlegar hingað á sama tíma á næstunni heldur, verð að láta mér Lindu duga hmmm.


samkvæmt spamadur.is í dag 13/12
Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú fellur fúslega fyrir manneskju um þessar mundir sem skilur þörf þína að stjórna, sættir sig við þig og getur skipst á hlutverkum annað veifið en hvort sem þér líkar það betur eða verr þá er allt sem nú er að gerast á þessari stundu afleiðing af vali þínu úr fortíðinni.


Ég veit ekki hvað ég á að halda um þessi ummæli, enda hægt að lesa ýmislegt í þetta, verst finnst mér þetta með valið úr fortíðinni. Ég er að reyna að skapa mér framtíð, fortíðin er liðin, ekki var hvert eitt val vel valið í fortíðinni. Well what the hell.
Er annars að fara í gegnum tónlist á netinu, að finna saman lög í jólagjafapakkana út.
Gerðist líka svo dugleg að baka í gær, he he .
kv.
Ausi

mánudagur, desember 05, 2005

Efnishyggja

Ég spurði sjálfa mig að því hvernig leitin gæti gengið í dag og dró eftirfarandi spil á spámanninum:
XV - Efnishyggja
Hér gæti líðan þín verið óþægileg á einhvern hátt. Reiði, öfund eða afbrýðisemi gæti átt við hér. Tilfinningar þessar ýta ekki undir góða upplifun og eyðileggja alfarið fyrir jafnvægi sálarinnar.

Ef þér finnst enginn endir vera á þessu ástandi er þér ráðlagt að styrkja sjálfið með því að opna fyrir tilfinningagáttir þínar og losa þig úr prísundinni sem fylgir því sem fyrr er nefnt.

Fortíð þín er saga og framtíðin er gjöf sem þú átt að njóta og gefa þig óskipta/n líðandi stund. Leitaðu innra með þér að lausn sem leiðir þig rétta braut í átt að jafnvægi og sátt við sjálfið. Líðan þín er tímabundin ef þú opnar hugann.


Ég ætti held ég að taka síðustu málsgreinina sérlega til skoðunar.
Annars er smá framhald af röfli síðustu daga um málnotkun.
Mér tókst að fara snemma á fætur í morgun, kl 7 (ertu stolt af mér Linda?). Ég þurfti aðeins að skutlast á bílnum, útvarpið var í gangi. Eitthvað fannst mér leiðinleg umræða í gangi svo ég fór á flakk milli stöðva og sá verulega eftir því. Ég heyrði aðeins í útvarpsþættinum Zúber, þar var talað um smákökusamkeppni, ekki óvenjulegt á þessum árstíma. En það sem hneikslaði mig var að útvarpsmaðurinn vildi fá send "demó" af kökum!!! Hvernig í andskotanum dettur manninum í hug að nota þetta orð?? Þetta var ekki óvart, því hann endurtók ruglið. Jafnvel þó hann hefði sleppt því að nota íslensk orð yfir sýnishorn, kynningareintak eða hvað svo sem hann vildi ekki nota, þá er á ensku aldrei notað demó yfir áþreifanlega hluti, það væri þá "sample". Þetta er afleiðing þess að fólk kann ekkert tungumál almennilega hvorki sitt eigið né það sem það slettir með. hmmppf
Annað dæmi nú í morgunsárið var í þættinum "í bítið", þar sem fegurðardrottningin sem nú er þáttagerðarkona í þessum þætti (ég man ekki nafn hennar)var á ferð um Kóngsins Köben. Þar tók hún íslenskann mann tali sem var að opna nýja verslun í Köben, þar spyr hún hvort "Danmerkurbúar" taki versluninni ekki bara vel. Þvílík þvæla, hvað um "Dani"?

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Í tilefni jólaundirbúningsins

Ég var að spjalla við kunningjakonu mína um daginn um jólagjafastressið og þá kom fram sú hugmynd að endurvinna gjafir. Þ.e.a.s. að nýta eigin gjafir sem henta manni sjálfum ekki endilega, í gjafir handa öðrum. Stundum hentar það ágætlega þegar ættingjar þekkja mann kannski ekki næginlega til að vita hvernig smekkurinn er og annar ættingi hefur kannski þann smekk sem aðrir halda að maður hafi sjálfur. En það verður að fara varlega og fólkið má ekki þekkjast of vel svo ekki komist upp um mann. Frétti ég af konu sem vanalega sendi tengdamömmu gjöfina sem mágkonan sendi henni og öfugt. Mágkonan og tengdamamman töluðust hvort eð er ekki við. Eitt árið var hún hins vegar að flýta sér og hafði pakkað inn gjöfunum á nýtt og víxlaði þeim óvart. Þannig að dömurnar fengu aftur það sem þær höfðu gefið henni. Sem sagt það er sælla að gefa en þiggja he he.

Meira af Vísi.is

Eftir að hafa hellt úr skálum reiði minnar hérna áfram sá ég nokkur frekari dæmi þess að ég hljóti að vera betri blaðamaður en þeir sem skrifa nú þegar á visi.
Ef enginn er prófarkarlesarinn, þá má vanda sig.
Mér finnst nú ótrúlegt að enginn starfsmaður á blaðinu taki eftir þessum vitleysum og lagi eftir á, þetta er netmiðill ekki prent það má laga! Þeim er greinilega alveg sama.
Eftirfarandi eru dæmi annarsvegar eitt orð úr fyrirsögn annars vegar heil frétt sem er ómöguleg frá upphafi til enda.

Fellybylir
segir sig sjálft hvað er að hér.

FriðriksKarlsson gítarleikari eftirsóttur í Bretlandi
Friðrik Karlsson gítarleikari úr Messóforte lék inn á tvær vinsælustu plötur í Bretlandi síðustu vikuna. Það var með söngsveitunum Westlife og Il divo. Friðrik er meðal eftirsóttustu gítaleikurum í Bretlandi og sér meðal annars um allaln gítarleik í þætti Simon Cowel, x-Factor, sem er arftaki Idol þátanna í Bretlandi. Friðrik er nú sjálflur að gefa út níundu Feelgood plötuna, sem hann nefnir: Töfrandi. Hann ætlar að fylgja henni úr hlaði hér á landi með tónleikum 4. desember.


hvernig líst ykkur á þetta ?

Háfrónska er mitt mál

Það sem mér finnst vera röng málnotkun er oft að pirra mig "ogslega" . Nýjasta dæmið er fyrirsögn á Vísi.is, "Fólk farið að deyja úr kulda". Sögnin að fara er farin að fara offari í tungumálinu, eins og það sé ekki til önnur sögn, hvurt FER fólkið til að deyja? Nær væri að segja eitthvað álíka og "Fyrstu dauðsföllin vegna kulda" eða nánast hvað sem er annað en að fólk fari að deyja.
Sumir segja að besta leiðin til að aðstoða aðflutta íslendinga í að aðlagast Íslandi sé fyrir okkur að slaka á kröfunum um fullkomna íslensku. Ég bara spyr er yfirhöfuð einhverjum hjálpað með því? Í fyrsta lagi er varla nokkurstaðar gerð sú krafa lengur allir hafa slakað á virðingunni fyrir tungumálinu. Fyrir hvaða tungumáli sem er, enskan er ílla meðfarin sem og ótal önnur tungumál. Ef bæði innfluttir og innfæddir íslendingar slaka á og missa virðinguna fyrir tungumálinu er komin upp sú staða að það er engin leiðarvísir til um rétt mál og hver og einn talar eftir sínu nefi og engin eins og engin skilur neinn.
Betra er að aðstoða innflutta við tungumálanámið, með því að bjóða upp á ókeypis tungumálanám fyrir alla. Jafnvel á vinnutímanum í vinnuni ef vel á að gera við starfsfólk.
Ég veit að ég er langt frá því að vera fullkomin í stafsetningu og málnotkun en ég geri mitt besta við að vanda mig og afsaka mig aldrei með því að ég sé lesblind, það þarf nefnilega ekki að vera fötlun ef viljinn er fyrir hendi. Ég hef virðingu fyrir tungumálum í heildina og reyni að nota þau öll vel.
Svona áður en þið fáið nóg af röflinu í mér, hlekkurinn uppi bendir á áhugaverða "heimahöfn" mesta hreinræktunarsinna íslenskunnar, sem hann vill kalla Háfrónsku. Merkilegast af öllu er að hann er Belgi sem ekki talar íslensku samkvæmt frétt á Stöð 2 í gær.

allt undir hælinn lagt!

Merkilegt hve litlir og ómerkilegir hlutir megna að hafa mikil áhrif í lífinu. Nú er ég hölt vegna þess að mig verkjar í hælinn, þegar ég skoða hann er eins og það sé eitthvað að reyna að komast út. Líklega agnarlítið glerbrot sem ég hef einhverntímann stigið á, pínulítið og ómerkilegt en ansi sárt.

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Pælingar

nú var ég að spá í að búa til nýja bloggsíðu, sem væri algerlega ókunnug öllum sem ég þekkti, síða sem ég ætti ein, þar gæti ég bullað allt sem mér dytti í hug án þess að spá í það hver myndi lesa síðuna, því hún væri ekki rekjanleg til mín, svo datt ég niður á jörðina, góða mín hvað hefur þú að bulla sem þolir ekki dagsins ljós? og hvernig dettur þér í hug að það sé meiri hvati til að skrifa eitthvað ef enginn les það, því þá ekki að vera með gamaldags dagbók sem engum kemur við, þú hefur nú reynt það ótal sinnum án árangurs. Þá settist ég niður og skrifaði í mitt venjulega blogg.

Ég er farin að halda að skotar vilji slíta öll sín bönd við Ísland, það er eitthvað anti-íslenskt samsæri í gangi hjá skotunum hmm. Það sést best á því að þeir eru gríð og erg að slíta Farice sæstrengin. Ég sannfærðist enn frekar þegar ég sá Moggann í dag, þar segir frá því að menn í greiningardeild The Royal Bank of Scotland hafi gert atlögu að Kaupþingi Banka. Það eina sem allir þessir hlutir eiga sameiginlegt í mínum huga er Linda og hvernig kemur þú inn í þetta alsherjar samsæri vina mín?

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Afmæli og allt það

Ég hélt náttúrulega upp á afmælið á laugardagskvöldið, lífið er of stutt til að sleppa að fagna því að maður fékk tækifæri til að lifa eitt árið enn.
Ég var með sameiginlegt kaffiboð fyrir familíuna á laugardag hjá Sari og Hlyn, Sari varð fertug daginn áður. Um kvöldið var ég svo með kellingapartý, það var mikið stuð á saumó, en ýmsar voru þunnar frá kvöldinu áður, svo ekki voru allir í jafn miklu stuði.
Annars reyni ég að standa við gefin loforð við sjálfa mig.
dagur 2

mánudagur, nóvember 07, 2005

Heima

Jú það er fínt að koma heim aftur en einhverra hluta vegna hefði ég viljað vera lengur, ég er þeirrar skoðunnar að ég hafi ekki haft nægan tíma. Ég var líka svo leiðinleg að láta ekki alla vita af mér og nú er ein vinkona mín mjög sár. Og það var engin ástæða fyrir því að ég lét hana ekki vita, ég gleymdi henni. Frá öðrum hef ég ekkert heyrt ennþá, og ég er ekkert að spá í það fólk.
Er samt í hálfgerðu kvíðakasti yfir því að vera komin heim, finnst ég hafa farið frá öllum mínum skyldum. Ég verð að losa mig við þetta óþarfa niðurrifsstarf sálarinnar.
Fyrir utan það að vera komin á hálfgerðar heimaslóðir og að hitta vini sem ég hef ekki hitt í 3 ár, var tvennt sem hafði mjög góð áhrif á sálarlífið í þessari heimsókn. Sylvía vinkona mín sem er norn lagði fyrir mig Tarot á nýársdegi wicca, tilvalið að líta á komandi ári. Það var mjög bjart yfir spilunum, í raun þyrfti ég að finna hvatann hjá mér og framkvæma hlutina, treysta, vera afslappaðri, ég fengi tækifæri til að sýna hvað í mér býr. Það hljómar nú vel.
Annað var að eitt kvöldið var ég á pöbb með vinkonu og fyrrverandi vinnufélögum hennar, einn hreifst svo af mér að hann gat ekki hætt að segja mér hversu góð, sæt, sexy, whatever ég væri. Ekki það að það væri nokkur séns, en gaman er það að finna að einhver hefur áhuga.
Nú er að einbeita sér að umsóknum því þetta ástand er ekki lengur líðandi.

fimmtudagur, október 27, 2005

Ferðalög

Komin í bæinn aftur eftir að hafa túristast með breskum Kvennaskóla síðustu 4 daga. Búin að fara Suðurströndina, Þórsmörk og Gullfoss hring í köldu en fallegu veðri. Ég vakti þvílíka lukku hjá stelpunum fyrir að vaða út í á / læk í Stakkholtsgjá (í Þórsmörk) til þess að hjálpa þeim að komast þurrum yfir. Ég var hetja he he. Auðvitað varð ég blaut þegar vatnið seitlaði ofan í gönguskóna en ég var með annað par og sokka með mér. Kosturinn við vatnshelda skó þegar maður blotnar í þeim er að vatnið er áfram í skónum og hitnar svo ekki varð mér kalt við þetta. Og svo var þetta hvort eð er á leiðinni til baka. En þeim fannst mikið til þess koma að ég var tilbúin að blotna.
Er að fara út á morgun, fer með mömmu til Köben bíð allan daginn á vellinum til að taka flug um kvöldið til München. Best að taka góða bók með sér. Kem svo að kvöldi föstudagsins eftir viku, vonandi endurnærð og til í átökin.
kv
Ausi

sunnudagur, október 23, 2005

Jú það var einmitt málið

Ég fór á læknavaktina á föstudag og fékk fúkkalyf vegna þessarar ígerðar. Strax á laugardagsmorgni fann ég gífurlegann mun, ég fann þá hversu slæmt þetta hefur verið. Allt hnéð hafði verið bólgið og jafnvel hnésbótin líka. Það er enn smá bólga í þessu en ekkert að ráði. Gröfturinn horfinn og sárið er byrjað að gróa.
Ég er að fara í ferð í kvöld, sæki hóp af 16 ára breskum skólastúlkum og fer með þær á Selfoss. Þar sem gist verður næstu 3 nætur. Mánudag er farið til Eyja, spurning hvort ég haldi ekki bara kjafti í einhverntíma um kl 14:08 vegna kvennafrídagsins. Það er erfitt að leggja niður vinnu í miðri ferð, maður gengur ekki í burtu einfaldlega einhverstaðar á ferð.
Þriðjudag er farið í þórsmörk, miðvikudag Gullfoss.
Föstudag fer ég svo út júhú.

föstudagur, október 21, 2005

ígerð

Með vísan í þarsíðustu færslu þá er ég algjörlega að drepast í þessu sári. helv. djö#%$/6$#grr. Hrufla mig örlítið og ég er að drepast ennþá á þriðja degi. Allt hnéð heitt og bólgið sárið grænt af greftri. Þarf ég að fara til læknis út af því að ég hruflaði mig örlítið????? Ég er soldið hrædd um það, fór í a´pótek í hádeginu til að spurja hvað ég gæti gert án læknis, fékk sótthreinsaða grisju með græðandi kremi og sótthreinsaðann plástur. Bíð aðweins eftir því hvort þetta virki, vona að ég þurfi ekki fúkkalyf vegna þess að ég datt aðeins??

miðvikudagur, október 19, 2005

Ferðahugur

Loksins loksins er ég búin að finna mér tíma og bóka far til þýskalands í gegnum Kaupmannahöfn. Ég fer 28 okt og kem til köben aftur 3 nóv og svo eyðum við mamma einum degi í köben áður en farið er aftur heim á leið.

Slys á heimilum

Ég hef heyrt því haldið fram oftar en einu sinni að flest slysin eiga sér stað á heimilum. Og satt er það jafnvel svo hversdagsleg athöfn eins og að hella upp á morgunkaffið getur boðið slysunum heim. Ég átti í smá undarlegu kaffislysi í morgun. Strangt til tekið eru flest heimilisslys undarleg, allavega það sem snýr að mér. Ég hellti bara uppá eins og vanalega, í esspressokönnu á hellu. Kaffið var komið, hellti í bolla,setti könnuna á kalda hellu, náði mér í glas fyrir djús, rek mig við það í hálffulla könnuna sem fer beint í gólfið, reyni að forðast brennandi heitt kaffið en renn til á kaffiblautu gólfinu, lendi á hnjánum og skráma mig aðeins, en þetta hefði geta farið mikið verr. +
"Death by coffee!!"

Spámennska

Tjah, bæði stjörnuspáin og kortin sem ég hef verið að draga hjá spámanni.is
hafa undanfarið verið að endurtaka það sama, breytingar í vændum, erfiðleikar að baki. Þetta segir stjörnuspáin:

"Þér leiðist jafnvel um þessar mundir en þú ættir ekki að gefast upp eða missa móðinn því hér er um einskonar próf að ræða þar til næsti kafli hefst. Hér er einhverskonar þjálfun á ferðinni sem er án efa undirbúningur fyrir næsta skref sem þú ert um það bil að taka."

og jafnvel skýrar kemur þetta fram í korti sem ég dró áðan hjá þeim .

"Endir er á bið sem hefur einkennt umhverfi þitt og líðan þína nýverið. Útkoman uppfyllir óskir þínar og þrár. Málin taka stökkbreytingum á skömmum tíma."

Maður verður næstum því vongóður, en má samt ekki gleyma því að það skiptir engu hvað stjörnurnar segja ef maður gerir ekki eitthvað í hlutunum sjálfur.
"Action instead of reaction"

sunnudagur, október 16, 2005

kvíðakast

bjartsýnin á föstudag dugði ekki lengi, er soldið blue og kvíðin í dag. En ég held mér við það mantra að mér líði betur þegar ég geri hlutina. Það hefur ekki neitt uppá sig að hangsa og gera ekkert, það eykur bara kvíðann. Og frestunaráráttuna og verkkvíðann. Hlutirnir eru ekkert mál ef maður bara gerir þá. Stundum hjálpar að gera eitthvað annað áður og klára það, djöfull getur maður verið klikkaður á stundum.

hmm enn eitt prófið





You Have A Type B+ Personality



B+





You're a pro at going with the flow
You love to kick back and take in everything life has to offer
A total joy to be around, people crave your stability.

While you're totally laid back, you can have bouts of hyperactivity.
Get into a project you love, and you won't stop until it's done
You're passionate - just selective about your passions


föstudagur, október 14, 2005

Hver er sinnar gæfu smiður, hver er næstur sjálfum sér

Ég reyni að hafa það hugfast og leita mér sjálfshjálpar við öllum mínum persónulegu kvillum. Því engin annar getur bjargað mér nema ég sjálf.
Það var því alveg ágætis hugmynd að heilsa upp á uppáhalds nágrannan minn í gær, góða hirðinn. Þar rakst ég á nokkrar sjálfshjálparbækur fyrir slikk, hver segir að maður verði að blæða fyrir naflaskoðunina.
Rakst á eina jarðfræðibók, get alltaf notað hana. Svo voru það 7 habits of effective people eða álíka. Bara svona til að maður geri eitthvað, smá spark í rassinn, reyna að hætta letihaugatilverunni.
Nú svo náði ég í bók um minni og minnistækni, nauðsynlegt þegar maður er farin að gleyma símanum heima í hvert sinn sem farið er út úr húsi.
Nú og svo var það uppflettirit um ilmolíur og notkun þeirra.
Ég má ekki fara þarna inn, ég fer aldrei tómhent út. En aldrei finn ég kommóðuna eða skenkinn sem ég er að leita eftir.
Er annars þreytt í dag, fór of seint að sofa,var allt of gaman að spjalla.

fimmtudagur, október 13, 2005

Bloggari

Ég telst nú seint til duglegustu bloggara, ég er ekki að nýta mér þennan vettvang á neinn sérstakan hátt. Ég hef nú skoðað ýmsar bloggsíður þar sem fólk er að nýta sér þennan vettvang til að koma pólitískum hugmyndum á framfæri, aðrir eru að viðra sinn innri rithöfund, æfa sig í þjóðfélagsgagnrýni, eða sýna fram á eigið ágæti á einn eða annan hátt. Sumum tekst það betur en öðrum.
Sumu fólki ætti hreinlega að meina að tjá sig... kannski svolítið djúpt í árina tekið en samt!!
Allavega þá er ég núna í þeirri stöðu að eyða miklum tíma fyrir framan tölvu án þess að hafa sérlega mikið af verkefnum til að vinna að á þeim tíma. S.S. afleysing á símaskiptiborði. Þá flaug mér í hug að skrifa meir á bloggið, ég er nefnilega ekki með atvinnuumsóknirnar mínar með mér til að vinna í þeim hér, heimskulegt eiginlega.
Nú annað sem ég get gert á þessum tíma er nú að hringja um víðann völl. Enda alltaf í símanum ha ha .