Ég reyni að hafa það hugfast og leita mér sjálfshjálpar við öllum mínum persónulegu kvillum. Því engin annar getur bjargað mér nema ég sjálf.
Það var því alveg ágætis hugmynd að heilsa upp á uppáhalds nágrannan minn í gær, góða hirðinn. Þar rakst ég á nokkrar sjálfshjálparbækur fyrir slikk, hver segir að maður verði að blæða fyrir naflaskoðunina.
Rakst á eina jarðfræðibók, get alltaf notað hana. Svo voru það 7 habits of effective people eða álíka. Bara svona til að maður geri eitthvað, smá spark í rassinn, reyna að hætta letihaugatilverunni.
Nú svo náði ég í bók um minni og minnistækni, nauðsynlegt þegar maður er farin að gleyma símanum heima í hvert sinn sem farið er út úr húsi.
Nú og svo var það uppflettirit um ilmolíur og notkun þeirra.
Ég má ekki fara þarna inn, ég fer aldrei tómhent út. En aldrei finn ég kommóðuna eða skenkinn sem ég er að leita eftir.
Er annars þreytt í dag, fór of seint að sofa,var allt of gaman að spjalla.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli