Ég fór á læknavaktina á föstudag og fékk fúkkalyf vegna þessarar ígerðar. Strax á laugardagsmorgni fann ég gífurlegann mun, ég fann þá hversu slæmt þetta hefur verið. Allt hnéð hafði verið bólgið og jafnvel hnésbótin líka. Það er enn smá bólga í þessu en ekkert að ráði. Gröfturinn horfinn og sárið er byrjað að gróa.
Ég er að fara í ferð í kvöld, sæki hóp af 16 ára breskum skólastúlkum og fer með þær á Selfoss. Þar sem gist verður næstu 3 nætur. Mánudag er farið til Eyja, spurning hvort ég haldi ekki bara kjafti í einhverntíma um kl 14:08 vegna kvennafrídagsins. Það er erfitt að leggja niður vinnu í miðri ferð, maður gengur ekki í burtu einfaldlega einhverstaðar á ferð.
Þriðjudag er farið í þórsmörk, miðvikudag Gullfoss.
Föstudag fer ég svo út júhú.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli