mánudagur, nóvember 07, 2005

Heima

Jú það er fínt að koma heim aftur en einhverra hluta vegna hefði ég viljað vera lengur, ég er þeirrar skoðunnar að ég hafi ekki haft nægan tíma. Ég var líka svo leiðinleg að láta ekki alla vita af mér og nú er ein vinkona mín mjög sár. Og það var engin ástæða fyrir því að ég lét hana ekki vita, ég gleymdi henni. Frá öðrum hef ég ekkert heyrt ennþá, og ég er ekkert að spá í það fólk.
Er samt í hálfgerðu kvíðakasti yfir því að vera komin heim, finnst ég hafa farið frá öllum mínum skyldum. Ég verð að losa mig við þetta óþarfa niðurrifsstarf sálarinnar.
Fyrir utan það að vera komin á hálfgerðar heimaslóðir og að hitta vini sem ég hef ekki hitt í 3 ár, var tvennt sem hafði mjög góð áhrif á sálarlífið í þessari heimsókn. Sylvía vinkona mín sem er norn lagði fyrir mig Tarot á nýársdegi wicca, tilvalið að líta á komandi ári. Það var mjög bjart yfir spilunum, í raun þyrfti ég að finna hvatann hjá mér og framkvæma hlutina, treysta, vera afslappaðri, ég fengi tækifæri til að sýna hvað í mér býr. Það hljómar nú vel.
Annað var að eitt kvöldið var ég á pöbb með vinkonu og fyrrverandi vinnufélögum hennar, einn hreifst svo af mér að hann gat ekki hætt að segja mér hversu góð, sæt, sexy, whatever ég væri. Ekki það að það væri nokkur séns, en gaman er það að finna að einhver hefur áhuga.
Nú er að einbeita sér að umsóknum því þetta ástand er ekki lengur líðandi.

Engin ummæli: