miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Háfrónska er mitt mál

Það sem mér finnst vera röng málnotkun er oft að pirra mig "ogslega" . Nýjasta dæmið er fyrirsögn á Vísi.is, "Fólk farið að deyja úr kulda". Sögnin að fara er farin að fara offari í tungumálinu, eins og það sé ekki til önnur sögn, hvurt FER fólkið til að deyja? Nær væri að segja eitthvað álíka og "Fyrstu dauðsföllin vegna kulda" eða nánast hvað sem er annað en að fólk fari að deyja.
Sumir segja að besta leiðin til að aðstoða aðflutta íslendinga í að aðlagast Íslandi sé fyrir okkur að slaka á kröfunum um fullkomna íslensku. Ég bara spyr er yfirhöfuð einhverjum hjálpað með því? Í fyrsta lagi er varla nokkurstaðar gerð sú krafa lengur allir hafa slakað á virðingunni fyrir tungumálinu. Fyrir hvaða tungumáli sem er, enskan er ílla meðfarin sem og ótal önnur tungumál. Ef bæði innfluttir og innfæddir íslendingar slaka á og missa virðinguna fyrir tungumálinu er komin upp sú staða að það er engin leiðarvísir til um rétt mál og hver og einn talar eftir sínu nefi og engin eins og engin skilur neinn.
Betra er að aðstoða innflutta við tungumálanámið, með því að bjóða upp á ókeypis tungumálanám fyrir alla. Jafnvel á vinnutímanum í vinnuni ef vel á að gera við starfsfólk.
Ég veit að ég er langt frá því að vera fullkomin í stafsetningu og málnotkun en ég geri mitt besta við að vanda mig og afsaka mig aldrei með því að ég sé lesblind, það þarf nefnilega ekki að vera fötlun ef viljinn er fyrir hendi. Ég hef virðingu fyrir tungumálum í heildina og reyni að nota þau öll vel.
Svona áður en þið fáið nóg af röflinu í mér, hlekkurinn uppi bendir á áhugaverða "heimahöfn" mesta hreinræktunarsinna íslenskunnar, sem hann vill kalla Háfrónsku. Merkilegast af öllu er að hann er Belgi sem ekki talar íslensku samkvæmt frétt á Stöð 2 í gær.

Engin ummæli: