fimmtudagur, október 27, 2005

Ferðalög

Komin í bæinn aftur eftir að hafa túristast með breskum Kvennaskóla síðustu 4 daga. Búin að fara Suðurströndina, Þórsmörk og Gullfoss hring í köldu en fallegu veðri. Ég vakti þvílíka lukku hjá stelpunum fyrir að vaða út í á / læk í Stakkholtsgjá (í Þórsmörk) til þess að hjálpa þeim að komast þurrum yfir. Ég var hetja he he. Auðvitað varð ég blaut þegar vatnið seitlaði ofan í gönguskóna en ég var með annað par og sokka með mér. Kosturinn við vatnshelda skó þegar maður blotnar í þeim er að vatnið er áfram í skónum og hitnar svo ekki varð mér kalt við þetta. Og svo var þetta hvort eð er á leiðinni til baka. En þeim fannst mikið til þess koma að ég var tilbúin að blotna.
Er að fara út á morgun, fer með mömmu til Köben bíð allan daginn á vellinum til að taka flug um kvöldið til München. Best að taka góða bók með sér. Kem svo að kvöldi föstudagsins eftir viku, vonandi endurnærð og til í átökin.
kv
Ausi

Engin ummæli: