sunnudagur, júní 03, 2007

að koma sér fyrir

Ég er fyrir norðan þessa helgina og reyni að nýta tímann til að koma mér fyrir sem og að vinna eitthvað. Ekki hefur mér orðið eins mikið úr verki og ég ætlaði mér.
Svo verð ég langa helgi fyrir sunnan næstu helgi. Ég fæ mér frí á föstudaginn.
Mig vantar enn að kaupa 2 stóra hluti til að geta komið mér fyrir almennilega hérna. Mig vantar þvottavél og tvíbreitt rúm. Ég fékk gefins sófa sem komið var með í dag, hann er ljótur en þægilegur svo hann dugar mér, ég skellti bara gömlu rúmteppi yfir hann. Ég er búin að finna mér rúm í Ikea en það vantaði hlut í það svo ég gat ekki keypt það um daginn. Soldið vesen að vera svona langt í burtu, en það hefst. Svo þarf ég að mála eina hillu, vantar rétta lakkið í það, lakkið sem ég keypti er ekki að duga.
Ég er líka búin að vera að dunda mér við að ná 4 umferðum af málningu af gömlum náttborðum frá mömmu, það tekur sinn tíma þó ég notist við hitablásara til að losa málninguna af, en það er gaman að þessu dundi. Verst hvað þessu fylgir mikið drasl.
Svo á ég eftir að setja upp einhver ljós, mamma ætlar að koma og sauma gardínur, og svo þarf að bora fyrir nokkrum hillum og þá fer þetta að verða komið.
Á mánudaginn ætla ég svo endilega að panta adsl tengingu og fá mér líka sjónvarp um adsl.

miðvikudagur, maí 30, 2007

bloggedíblogg

Til að verða við áskorun ákvað ég að skrifa nokkrar línur, það getur verið svo leiðinlegt þegar svona síður deyja bara útaf. Netheimurinn er yfirfullur af vanræktum heimasíðum. Ég tók mér eina vanrækta heimasíðu í fóstur. Það er heimasíða Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi, www.sfi.is. Sú síða hefur ekki verið uppfærð síðan 2003. Ég hef trú á að með einnar klukkustundar vinnu á mánuði væri hægt að viðhalda þessari síðu svo ásættanlegt sé fyrir þessi samtök. Allavega ákvað ég að reyna þetta fram til hausts, ef ekki gengur verður hún einfaldlega lögð niður.

Hvað er svo annað í fréttum, látum okkur nú sjá.. Linda og fallega fjölskyldan hennar er flutt heim á klakann. Íbúðin mín í Fellsmúlanum losnar aftur um næstu mánaðarmót, þá þarf ég að leita að nýjum leiganda. Þekkir einhver, einhvern sem hægt er að mæla með ....????

Ég var í bænum um síðustu helgi og hvað gerðist markvert þá, hmmm, ég fór í heimsóknir til Lindu og til Bjarkar, ég fór í Ikea og gat ekki keypt rúmið sem ég ætlaði að kaupa, verslaði eitthvað af öðru drasli, ég fór í sund með Guðdísi og bróðir minn setti nýja útvarpið í bílinn minn. Og þvílíkur munur sem það nú er... ég brenndi einn disk m. mp3 og þurfti ekki að skipta einu sinni um disk alla leiðina, diskurinn er enn ekki búinn. Gamla tækið var með kasettuspilara og var eitthvað farið að bila, flækti spólur og var með alls kyns aukahljóð.

Í dag gerðist ég dugleg og skrapp í blóðbankabílinn og gaf blóð, þetta var 5 skiptið sem ég gaf og fékk ég nælu gefins af því tilefni.

sunnudagur, maí 20, 2007

Reynisfjara

Ég get ekki hætt að hugsa um leiðsögumanninn sem var svo óheppin að vera með þennan hóp í Reynisfjöru í gær. Því þetta hefði getað komið fyrir hvern sem er.

Ég var að hugsa um það hvað það er auðvelt að gleyma að vara fólkið við hættunum á einum stað kannski í langri ferð, þó að það hafi ekki átt sér stað hérna. Því það er annað sem spilar inn í, hvort fólk sé að hlusta og hvort það taki mark á því sem þú segir. Ég hef verið að benda fólki sem var með mér á, að standa ekki í flæðarmálinu og hef æpt á fólk að vara sig þegar aldan kemur nær.

Ég hef samt aldrei verið eins nervus þarna og ég hef verið í flestum ferðum á Geysi. Úff það svæði er algjör skelfing, það er ekki hægt að bjóða ferðamönnunum upp á þetta. Viðvörunarskiltin eru lítil og auðvelt að yfirsjást, það eru engar girðingar bara smá kaðlar til að girða hverina af. Mjög margir taka ekkert mark á þessum köðlum og vaða bara yfir og alveg ofan í Geysi sjálfann. Ég hef alltaf varað fólkið mitt við öllum hættum þarna með mikilli áherslu á Geysi sjálfan og svo sér það annað fólk ganga þarna að og ef leiðsögumaður hefur ekki tvítekið fram hættuna þá eltir það þessa aðila hreinlega og hugsar ekki. Ég hef því verið að reka fólk í burtu, öskrað á það að fara, varað það við. Einu sinni var það íslendingur með erlenda ferðamenn með sér og hann öskraði á mig til baka að skipta mér ekki af. Ég var svo gáttuð að ég þagnaði.
Ég þekki leiðsögumann sem bjargaði lífi fólks með svona afskiptasemi á Geysi og það var í fréttunum fyrir nokkrum árum, því Geysir tók að gjósa um leið og hún kom fólkinu í burtu, en svæðið hefur samt ekki batnað síðan þá. Það er hreinasta kraftaverk að ekki hafi orðið eitt eða fleiri dauðaslys á ferðamönnum þarna.

Það var af öryggisástæðum sem ég hætti að fara í ferðir með hópa sem tala mér ókunnugt tungumál. Þ.e.a.s. hópa sem eru með fararstjóra sem taka við míkrófóninum og tala allan tímann við hópinn, miklu meira en ég kem að við fararstjórann sem eiginlega á að þýða það sem ég segi. Mér finnst þeir alltaf tala miklu meira en ætti að vera bein þýðing, og svo skilur maður ekki orð af því sem þeir segja og getur ekki verið viss um að skilaboðin skili sér. Ég var með tékkneskann hóp á Reykjanesinu og síðar Geysi og átti ég í mestum vandræðum með þennann hóp og hópstjórann.Og var með hjartað í buxunum allann tímann. Ég hefði þá þurft að bera ábyrgðina ef slys hefði orðið og fólk hefði ekki vitað af hættunni. Svo ég fer bara ekki í svona ferðir meir.

Ég hef tekið það fram við ferðamennina þegar ég er með allar þær viðvaranir sem nauðsynlegar eru í svona ferðum, að ég hafi lært skyndihjálp en ég hafi aldrei þurft að nota hana og sé því ekki viss hvort ég sé góð í henni og vilji hafa það þannig áfram.

komin heim

Ég er komin heim eftir góða viku í svíþjóð. Við fengum flottari bíl en við pöntuðum, Mazda 5, það var svo gott að keyra hann að ég sakna hans ennþá. Minn bíll var óskemmtilegur eftir þetta en jæja ég verð að lifa með því. Ég verslaði dálítið, eitthvað fyrir heimilið, einhver föt og eitthvað af snyrtivörum. Svo fékk ég heilmikið af tölvutengdu dóti, forrit og leiðbeiningar og afrit af myndum hjá Ingó og Torfa. Ég sat í gær og horfði á gömul heimavideo frá 1988 ég bæði hló og grét yfir þessu. Krakkarnir voru öll svo lítil, (tvö ófædd ennþá) þetta var tekið árið sem þau fóru út, 1/2 ári fyrr. Þarna voru upptökur frá sjoppunni sem ég og systir mín unnum í, upptökur af okkur báðum að afgreiða, upptökur af mér að skúra gólfið eftir lokun. Upptökur af ættarmóti af tilefni 80 ára afmælis hennar ömmu. En að mestu leyti krakkarnir að leika sér og allt í kringum það.
T.d. Magga segir við mömmu sína að hún væri allra allra besta mamma í heimi ef hún leyfi sér að fara í sund,
Ingibjörg: ég er kannski besta mamma í heimi en konurnar í sundlauginni leyfa það ekki
Magga svarar: þá ert þú ekki besta mamma í heimi
Ingibjörg: konurnar í sundlauginni leyfa það ekki fyrr en þú ert orðin 8 ára og þú ert bara 4 ára
Magga: af hverju?
Ingibjörg: af því þú ert bara 4 ára en bráðum 5 ára.
Magga: Hvenær, í dag?

Ég var búin að gleyma því hvað Magga var alltaf að flýta sér að verða stór, hún hélt alltaf að hún gæti allt og væri eldri en hún var, he he að ætla sér ein í sund 4 ára.

laugardagur, maí 12, 2007

Kveðja frá svíþjóð

Jæja þá er fermingin yfirstaðin,og nú er bara að bíða eftir júróvisíón og kosningasjónvarpi á netinu og jafnvel eitthvað farið í Singstar. Við fengum þrátt fyrir spá um annað fínasta veður í dag,sól og ca 18-20 stiga hiti, vonandi fáum við svona veður það sem eftir er ferðarinnar þá kannski kemur maður með smá lit heim. Fermingarbarnið fékk óskir sínar uppfylltar,það eina sem hún óskaði eftir var að fá pening í fermingargjöf, og það tókst næstum því hún fékk líka 3 skartgripi.
Hún ætlar að fá sér rosalega fína myndavél með alls kyns aukahlutum linsum og græjum og hún fékk næstum því nægan pening fyrir því, hún þarf að afla sér smávegis sjálf.
Annars er lítið planað næstu daga nema eins og 2 dagsferðir, einu sinni til Jönköbing og einu sinni til Ullared. Svo verður náttúrulega tekin ein dagsferð til Köben á fína bílaleigubílnum þegar við förum heim.

mánudagur, maí 07, 2007

Á hraðferð

Ég var að koma af fundi núna rétt f. kl 5 og svo þarf ég að fara að koma mér af stað suður. Ég þarf að vera í Reykjavík á morgun og svo aftur hér fyrir norðan á miðvikudag, svo þetta er algjör hraðferð. Suður í kvöld, norður seinni partinn á morgun, suður aftur miðvikudagskvöld, flýg út á fimmtudag og verð viku í Sverige, þannig að á fimmtudag á ég líka langa ferð framundan. Flug til köben og síðan með bílaleigubíl í 4 tíma. Og það er ég sem keyri, mamma er ekkert að keyra ef það fæst einhver annar í það. Svo engin bjór í fluginu handa mér, uss uss, ég er hvort eð er hætt því að fá mér bjór í flugi, maður þrútnar svo af því.

laugardagur, maí 05, 2007

Flutningar

Jæja það gekk ýmsilegt á í gær, ég var að vinna til 4 kláraði að pakka kl 5 og þá komu nokkrir hjálparkokkar og hjálpuðu mér að flytja á 2 tímum. Ég var flutt fyrir fréttir, sem betur fer. Ég er búin að flytja 3 sinnum á rétt tæpu ári núna og mér finnst það ekki gaman. Í bæði hin skiptin fékk ég aðstoð með einn kerrufarm, þ.e. stóru hlutina, húsgögnin. En tók alla smáu hlutina í endalausum ferðum með eigin bíl, alein. Það er ekki málið þetta sé mér ofviða, en þetta er þreytandi og lýjandi enda mikið að bera alla þessa kassa og tekur allt of langann tíma. Svo þetta voru viðbrigði að fá svona mikla hjálp og geta lokið þessu af á þetta stuttum tíma. Júhú... svo er ég meira að segja búin að þrífa gömlu íbúðina. Nýtt heimilisfang er Húnabraut 42.
Nú er allavega nóg að gera hjá mér, verð að drífa mig í búðina.

fimmtudagur, maí 03, 2007

Stress og leti

úff, ég er nú soldið stressuð út af því hvað það er mikið að gera í vinnuni. En samt er ég soldið löt í vinnuni, ég skil ekki hvað gengur að mér. En allavega var ég dugleg að gera hluti fyrir sjálfa mig í dag, lét skoða bílinn, skipta um dekk og fór svo meira að segja að kjósa.
lengra verður þetta ekki að sinni því ég þarf að klára nokkur verkefni í dag.
kv.
Auður

þriðjudagur, maí 01, 2007

ýmsar tilraunir

mig greinilega langar ekki til að vinna eða pakka. Ég ætti að nýta tímann í að vinna eitthvað en nú er ég búin að eyða allt of miklum tíma í eitthvað tölvu dútlerí. Ég setti upp picasa hjá mér, var einhvern tímann með það en var aldrei búin að ná í það fyrir þessa tölvu svo náði ég mér í firefox þar sem IE er búinn að vera að pirra mig verulega. Ég er búin að reyna fyrir mér með að birta myndir í gegnum picasa en einhvernvegin er þetta ekki alveg að ganga upp. En núna verð ég að hætta þessu í bili og gera eitthvað af viti.

myndaalbúm

hæ hæ ég er að búa til picasa myndalbúm http://picasaweb.google.com/ausinn, nú spyr ég ykkur sem hafa blogspot og picasa, hvernig ég set link á albúmið inn á bloggsíðuna, hvað segir þú Linda þú ert með sama Template?

sunnudagur, apríl 29, 2007

Blogg og bloggarar

Nýlega hafa bæst við enn fleiri bloggsíður til að fylgjast með. Þetta er farið að taka ansi mikinn tíma hjá manni daglega að fara bloggrúntinn. Kannski maður ætti að kýkja á þessar síður annann hvern dag en ekki mörgum sinnum á dag. Fólk er misduglegt að skrifa á síðurnar sínar, sem er kannski ekki undarlegt, flestir hafa eitthvað annað og betra við tímann að gera en að skrifa á bloggsíðurnar. Helstu síðurnar sem ég skoða eru hjá fólki sem ég þekkji persónulega, eða hef þekkt persónulega í gegnum tíðina. En svo eru nokkrar síður sem ég kýki oft á sem eru meðal vinsælustu síðnanna hjá mbl.is. s.s. Ellý og Sigmar, þau geta verið ansi fyndin.

laugardagur, apríl 28, 2007

þvílík pressa

það er aldreilis pressa á manni að fara að skrifa. Barasta 5 komment um að beðið sé eftir pistli. Ég hef reynt að líma inn hér pistla sem ég var búin að skrifa og kóperaði svo en hef ekki getað sett inn ennþá. Smá tæknivandamál með blogger ennþá, en ég er nú ekki enn á því að flytja síðuna samt. Svona pressa stöðvar alla frjóa hugsun. Hvað ætti ég að skrifa um núna.
Ég er mjög upptekin í vinnuni þessa stundina, næ ekki að klára öll verkefnin sem eru fyrirliggjandi. Sem er náttúrulega slæmt, en ég nýti allar stundir núna, vinn núna um helgina og 1 maí líka. Ég tek mér svo frí þegar færi gefst, ég fer til svíþjóðar 10-17 maí. Þar verður síðasta fermingin þann 12 maí,líkt og fyrir 2 árum verður núna Júróvisíon fermingar partý. Sem er bara gaman, að syngja júróvisíon lög með "litlu" frænkunum. Svo er ég búin að greiða inn á færeyjarferðina með kórnum í júlí.

þriðjudagur, apríl 24, 2007

jæja búin að skipta yfir í nýja blogger

ég er búin að skipta yfir í nýja blogger kerfið, svo núna ætti þetta að ganga betur hjá mér.

þriðjudagur, apríl 17, 2007

helv. vandræði m. blogger

þetta helv. ætlar ekki að virka

miðvikudagur, apríl 11, 2007

Smá pælingar um tímann / dagbókarform

Vinkona mín sem frétti fyrst af þessari síðu í dag, sagði mér að nú hefði hún sko eitthvað að lesa í kvöld fyrst ég hefði bloggað síðan 2002. Það sló mig soldið að ég hafi haldið þessari síðu úti svona lengi, ég hafði bara ekki tekið eftir því hvað þetta er búið að vera langur tími. Ég fór þá að líta aðeins inn á gamlar færslur, jemundur minn ég fékk sjokk. Fullt fullt af hlutum sem ég mundi ekki eftir og hafði gaman að lestrinum. Ég var nú samt soldið sjokkeruð yfir því hve opin ég gat verið í þessum færslum. Þetta er nú soldið opinber dagbók og ég sem hef aldrei getað haldið dagbók af ótta við að einhver læsi mínar innstu hugsanir. Fyrir utan það að ég hélt það aldrei út, gleymdi að skrifa. Það eina sem nálgast dagbókarformið eru bréfaskriftir við bestu vinkonuna, ég á enn öll bréfin hennar. Ég ætlaði að ljósrita þau og gefa henni innbundin í 30 afmælisgjöf en komst einhvernveginn ekki til þess. (Þú fyrirgefur vonandi framkvæmdarleysið) Ég vona bara að hún eigi eitthvað af mínum ennþá!! Svo við getum skipst á bréfum og lesið þau sem nokkurskonar dagbækur úr gamalli tíð.
Úff þetta blogg er soldið á mörkunum þegar ég hugsa um það. Málið var að fyrst vissu bara 2 aðilar sem þekktu mig af síðunni og var þetta svona okkar á milli þó að á opinberum miðli sé. Núna er ég búin að segja fleirum af síðunni og það eru jafnvel linkar á hana á síðum annara svo ekki er hún eins prívat og hún var í upphafi. Og skrifin eru líka orðin öðruvísi. Þrátt fyrir þessar pælingar er ég ekkert að fara að hætta þessu, er bara að pæla í þessu öllu saman.

Gleðilega páska (soldið sein)

Ég vona að allir hafi notið páskanna sinna. Ég er ánægð með mína páska, það var komin tími á að heimsækja alla gömlu vinina aftur. Veðrið var að mestu leyti gott, m.a. sól og 20 gráðu hiti og vor í lofti. En ég var alveg búin að gleyma hversu kalt það getur verið á þessum árstíma þegar engin sól er á lofti. Næturnar eru ansi kaldar, rakinn gerir það að verkum að það virkar kaldara enn það er í raun. Brr og svo eru húsin aldrei eins vel hituð og hér. Vinum mínum gengur misvel eins og gerist og gengur sumir hafa lélega vinnu, aðrir góða og enn aðrir enga. Evran fer mjög ílla í alla, svo ég vísi í það sem ég skrifaði í febrúar um Evruna. Öll umræðan hér fer alveg framhjá því hvernig almenningi líður. Ég talaði við Grikkja sem sagði verðlag hafa þrefaldast þar síðan Evran var tekin upp, þar er mjólkin dýrari en hér. Í þýskalandi hefur verðlag almennrar neysluvöru tvöfaldast á sama tíma og launin hafa staðið í stað. Mér skilst að verðlagsvísitalan sýni ekki þessa hækkun vegna þess að húsnæðisverð er inni í vísitölunni. Sem skýrir margt, hækkanir á húsnæðisverði hér kom verðbólgunni af stað um árið. Ef maður skoðar vísitölu neysluverðs hjá Hagstofunni þá er oft mikill munur á neysluvísitölu með og án húsnæðis. Svo skoðun mín á upptöku Evrunnar á Íslandi er enn óbreytt.
En mikið var nú samt gott að sitja í Bjórgarði og drekka bjór úr líterskrús í sólskinsveðri. En nú bíður vinnan svo þetta verður ekki lengra.

sunnudagur, febrúar 25, 2007

Prinsessur og afmæli

Hamingjuóskir í allar átti.
Elsku Linda til hamingju með afmælið, fyrsta afmælið sem mamma... er það ekki bara betra en áður.
Elsku Larissa til hamingju með fallegu prinsessuna þína... njóttu þín.

Bank bank

Nýju auglýsingarnar frá SPRON eru meiriháttar kaldhæðni í mínum augum. Almennt séð er fólk mjög tregt til að skipta um banka, það byrjar í einum og er þar áfram nánast hvað svo sem gengur á. Í þessum auglýsingum frá Spron er verið að sýna fólk sem er við það að segja bankanum sínum upp, með það fyrir augum að reyna við SPRON.
Sem er gott og blessað, bankamál hafa mikið verið í umræðu undanfarnar vikur. Gróði bankanna, áberandi markaðsstarf, nafnabreytingar, stórfenglegar veislur og önnur eyðslusemi sem fólk hefur tekið eftir. Vangaveltur koma upp varðandi það hvort bankarnir ættu ekki frekar að lækka þjónustugjöldin eða gera eitthvað annað fyrir viðskiptavinina frekar en að eyða peningum á þennan hátt. Svo vissulega getur verið sóknarfæri fyrir banka sem ekki hefur verið áberandi fyrir eyðslusemi. En aftur af minni reynslu af SPRON.
Nánast öll fjölskyldan mín hefur verið í viðskiptum við SPRON síðustu 50 ár. Pabbi hafði verið með bankabók þar alla sína æfi þegar hann dó fyrir 20 árum, hann átti allar bækurnar ennþá. Mamma gaf bankanum allar þessar gömlu bækur eftir andlát hans, þær hljóta að vera merkur hluti af sögu bankans. Þegar þau giftu sig fyrir 50 árum varð mamma viðskiptavinur SPRON. Hún persónulega er sem sagt búin að vera í viðskiptum við bankann í 50 ár, hefur alltaf staðið í skilum þ.e.a.s. verið fyrirmyndar viðskiptavinur. Hún varð óánægð með bankann á síðasta ári, hún gerði þá kvöfu að hún gæti fengið sömu þjónustu þar og í öðrum banka, þar sem hún hefur einnig verið í viðskiptum undanfarin ár. Við þeirri ósk var ekki orðið, hún sendi uppsagnarbréf til bankastjórans þar sem hún tók fram hvaða kröfur hún hefði gagnvart bankanum auk þess sem hún tók fram hversu lengi við hefðum verið í viðskiptum við bankann. Hún hefur ekki fengið nein svör við því bréfi. Hún er því búin að segja upp bankanum sínum og komin í viðskipti annarstaðar. Það má einnig taka það fram að hún fékk ekki jólagjöf frá bankanum þegar allir aðrir fengu jólagjafir frá bankanum síðustu ár. Nýji bankinn sendi henni meira að segja afmælisgjöf á 70 afmælinu.
Ég er reyndar ennþá í viðskiptum við SPRON, en það er bara af því að ég er í miklum vandræðum með að finna réttann banka fyrir mig. Einhvern sem ekki er búinn að vera áberandi fyrir eyðslusemi og óhófleg þjónustugjöld. Ég verð að drífa í þessu núna og skoða alla bankana til þess að ákveða mig. Ég hef hugsað mér að segja SPRON upp því þeir ljúga því í auglýsingum sínum að þeir lagi sig að þínum þörfum. Þeir taka ekki mark á gömlum viðskiptavinum og leita frekar að nýjum. Viðskiptatryggð skiptir engu máli.

miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Evra eða ekki Evra

Ég hreint út sagt skil ekki þessa umræðu um Evruna, skoðanakönnun sýnir að jafnmargir vilja Evru á Íslandi og hafna henni. Ég lenti í úrtaki og sagði hreinlega að ég bara vissi það ekki, þegar ég var spurð hvort taka ætti upp Evru á íslandi. Þetta er ekki svo einfalt að það að skipta um gjaldmiðil myndi breyta efnahagsmálum á Íslandi. Ég held að skuldinni sé of einfaldlega skellt á krónuna, þegar pólitísk stjórnun efnahagsmála er ábótavant. Sem og íslendingar sem neytendur eru hjarðdýr sem láta bjóða sér hvað sem er...
Það hefur hvergi í umræðunni verið minnst á þær fórnir sem almenningur í Evrópu hefur þurft að færa vegna upptöku Evrunnar. Verðbólga átti sér stað í skugga breytinganna,t.d. í þýskalandi átti hlutfallið á milli Evru og Marks að vera 2 Mörk fyrir eina Evru. Fljótlega fór að bera á því að hlutir sem kostuðu 1 Mark fyrir breytingu kostuðu 1 Evru eftir breytingu. Á þessum hlutum var því 100% hækkun.
Þeir íslendingar sem muna svo langt aftur í tímann sem til ársins 1981 þegar krónan var gjaldfelld og 00 tekin aftan að, hljóta að muna eftir slíkum dæmum. Við erum bara að upplifa það núna að þegar að lækka á virðisaukaskattinn þá eru vörur hækkaðar áður en til þess kemur til að græða alveg örugglega á þessu.
Sem sagt að taka upp Evru er ekki mál sem afgreitt er með einni einfaldri spurningu án þess að fólk sé upplýst um hvað málið snýst.

mánudagur, febrúar 05, 2007

Ferðalög

Jæja árið 2007 lofar að verða ferðaár hið mesta. Allavega eru 3 ferðalög í pípunum hjá mér, en það ætlar ekki að verða sársaukalaust að finna flug og annað tilheyrandi.
Fyrst er af því að segja að mig langar að skreppa til Munchen og Augsburg um páskana en þá eru samgöngur þangað heldur lélegar. Flest lággjaldaflugfélögin sem flugu þangað frá öðrum stórborgum evrópu hafa hætt að fljúga þangað. Expressinn flýgur til Friedrichshafen en bara ekki á þessum tíma... (vetraráætlun líkur miðjan mars, byrja aftur að fljúga í lok apríl) Svo ég er á báðum áttum orðið með þá ferð, nei ég ætla að fara, þó það sé bölvað vesen.
Svo er ég að fara með mömmu í vikuferð til svíþjóðar í seinustu ferminguna þar um miðjan maí, ég veit ekki hvernig stendur á þessu en fermingarnar eru alltaf á sama degi og Eurovision??? Sem er svo sem ekkert slæmt það er gaman að því, ég held ég hafi horft á fleiri Eurovision keppnir erlendis en heima frá því íslendingar hófu keppni, annað hvort í svíþjóð eða þýskalandi.
Last but not least er planið að fara í söngferð með kórnum á Ólafsvöku í færeyjum, síðustu helgina í júlí.
Svo er aldrei að vita nema að maður láti sér detta í hug einhverjar fleiri ferðir svona last minute.