Jæja það gekk ýmsilegt á í gær, ég var að vinna til 4 kláraði að pakka kl 5 og þá komu nokkrir hjálparkokkar og hjálpuðu mér að flytja á 2 tímum. Ég var flutt fyrir fréttir, sem betur fer. Ég er búin að flytja 3 sinnum á rétt tæpu ári núna og mér finnst það ekki gaman. Í bæði hin skiptin fékk ég aðstoð með einn kerrufarm, þ.e. stóru hlutina, húsgögnin. En tók alla smáu hlutina í endalausum ferðum með eigin bíl, alein. Það er ekki málið þetta sé mér ofviða, en þetta er þreytandi og lýjandi enda mikið að bera alla þessa kassa og tekur allt of langann tíma. Svo þetta voru viðbrigði að fá svona mikla hjálp og geta lokið þessu af á þetta stuttum tíma. Júhú... svo er ég meira að segja búin að þrífa gömlu íbúðina. Nýtt heimilisfang er Húnabraut 42.
Nú er allavega nóg að gera hjá mér, verð að drífa mig í búðina.
4 ummæli:
Til hamingju með nýju íbúðina!! Flott mynd á síðunni - hver er þetta sem situr með þér?
Kv.
Gyða
Þetta er systursonur hans Ingólfs mágs míns
Til hamingju með að vera flutt.
Frábært að þetta gekk svona hratt fyrir sig í þetta skiptið ;)
Kv. Inga María
Til hamingu með íbúðina gott að þú fékkst hjálp
ertu með aðstoðar mann í takinu?
sæta mín
hafðu það gott og slappaðu aðeins af
Skrifa ummæli