Til að verða við áskorun ákvað ég að skrifa nokkrar línur, það getur verið svo leiðinlegt þegar svona síður deyja bara útaf. Netheimurinn er yfirfullur af vanræktum heimasíðum. Ég tók mér eina vanrækta heimasíðu í fóstur. Það er heimasíða Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi, www.sfi.is. Sú síða hefur ekki verið uppfærð síðan 2003. Ég hef trú á að með einnar klukkustundar vinnu á mánuði væri hægt að viðhalda þessari síðu svo ásættanlegt sé fyrir þessi samtök. Allavega ákvað ég að reyna þetta fram til hausts, ef ekki gengur verður hún einfaldlega lögð niður.
Hvað er svo annað í fréttum, látum okkur nú sjá.. Linda og fallega fjölskyldan hennar er flutt heim á klakann. Íbúðin mín í Fellsmúlanum losnar aftur um næstu mánaðarmót, þá þarf ég að leita að nýjum leiganda. Þekkir einhver, einhvern sem hægt er að mæla með ....????
Ég var í bænum um síðustu helgi og hvað gerðist markvert þá, hmmm, ég fór í heimsóknir til Lindu og til Bjarkar, ég fór í Ikea og gat ekki keypt rúmið sem ég ætlaði að kaupa, verslaði eitthvað af öðru drasli, ég fór í sund með Guðdísi og bróðir minn setti nýja útvarpið í bílinn minn. Og þvílíkur munur sem það nú er... ég brenndi einn disk m. mp3 og þurfti ekki að skipta einu sinni um disk alla leiðina, diskurinn er enn ekki búinn. Gamla tækið var með kasettuspilara og var eitthvað farið að bila, flækti spólur og var með alls kyns aukahljóð.
Í dag gerðist ég dugleg og skrapp í blóðbankabílinn og gaf blóð, þetta var 5 skiptið sem ég gaf og fékk ég nælu gefins af því tilefni.
1 ummæli:
hæ hæ Takk fyrir komuna
alltaf jafn gaman að sjá þig
Skrifa ummæli