sunnudagur, apríl 29, 2007
Blogg og bloggarar
Nýlega hafa bæst við enn fleiri bloggsíður til að fylgjast með. Þetta er farið að taka ansi mikinn tíma hjá manni daglega að fara bloggrúntinn. Kannski maður ætti að kýkja á þessar síður annann hvern dag en ekki mörgum sinnum á dag. Fólk er misduglegt að skrifa á síðurnar sínar, sem er kannski ekki undarlegt, flestir hafa eitthvað annað og betra við tímann að gera en að skrifa á bloggsíðurnar. Helstu síðurnar sem ég skoða eru hjá fólki sem ég þekkji persónulega, eða hef þekkt persónulega í gegnum tíðina. En svo eru nokkrar síður sem ég kýki oft á sem eru meðal vinsælustu síðnanna hjá mbl.is. s.s. Ellý og Sigmar, þau geta verið ansi fyndin.
5 ummæli:
Voða er útlitið á síðunni þinni orðið flott, nú er enn meira gaman að kíkja á þig. Annars ætlaði ég nú ekki að setja pressu á þig með að skrifa pistil, það er bara svo gaman að lesa. Annars er ég alveg eins og þú með þessar bloggsíður, skoða vini og vandamenn helst daglega og svo er Sigmar ferlega skemmtilegur penni...
flott síða sæta mín
Síðan þín er orðin ekkert smá flott. Til lukku með hana.
nú hvaða hvaða, ég vissi ekki að það hefði svona mikil áhrif að skipta um útlit á síðunni. Það bara rignir inn kommentum
Það er nú innihaldið sem skiptir meira máli en útlitið er skemmtilegra fyrir augað.....
Skrifa ummæli