það er aldreilis pressa á manni að fara að skrifa. Barasta 5 komment um að beðið sé eftir pistli. Ég hef reynt að líma inn hér pistla sem ég var búin að skrifa og kóperaði svo en hef ekki getað sett inn ennþá. Smá tæknivandamál með blogger ennþá, en ég er nú ekki enn á því að flytja síðuna samt. Svona pressa stöðvar alla frjóa hugsun. Hvað ætti ég að skrifa um núna.
Ég er mjög upptekin í vinnuni þessa stundina, næ ekki að klára öll verkefnin sem eru fyrirliggjandi. Sem er náttúrulega slæmt, en ég nýti allar stundir núna, vinn núna um helgina og 1 maí líka. Ég tek mér svo frí þegar færi gefst, ég fer til svíþjóðar 10-17 maí. Þar verður síðasta fermingin þann 12 maí,líkt og fyrir 2 árum verður núna Júróvisíon fermingar partý. Sem er bara gaman, að syngja júróvisíon lög með "litlu" frænkunum. Svo er ég búin að greiða inn á færeyjarferðina með kórnum í júlí.
1 ummæli:
Ég er ekkert smá ánægð með þetta kórdæmi hjá þér, meira en að segja það að drífa sig inní svona dæmi.
Skrifa ummæli