þriðjudagur, maí 01, 2007
ýmsar tilraunir
mig greinilega langar ekki til að vinna eða pakka. Ég ætti að nýta tímann í að vinna eitthvað en nú er ég búin að eyða allt of miklum tíma í eitthvað tölvu dútlerí. Ég setti upp picasa hjá mér, var einhvern tímann með það en var aldrei búin að ná í það fyrir þessa tölvu svo náði ég mér í firefox þar sem IE er búinn að vera að pirra mig verulega. Ég er búin að reyna fyrir mér með að birta myndir í gegnum picasa en einhvernvegin er þetta ekki alveg að ganga upp. En núna verð ég að hætta þessu í bili og gera eitthvað af viti.
1 ummæli:
Það er alltof auðvelt að detta niður í svona tölvudútl þegar maður á að vera að gera eitthvað annað - gerist alltof oft hjá mér.
Góða ferð til Svíþjóðar ;)
Skrifa ummæli