mánudagur, desember 25, 2006

Gleðileg jól

Gleðileg jól
Mikið er nú gott að eiga góða að þegar eitthvað bjátar á. Á jólum gæti smáatriði sett soldið stórt strik í reikninginn. Svo sem eins og þegar ofninn reynist bilaður kl: 4 á aðfangadag. Hvað gerir fólk þá, fyrir utan hangiketið er nánast allur matur á jólum eldaður í ofni. Sem betur fer kaupa flestir allt of mikinn mat og lítið mál að bæta matargestum við á síðustu stundu. Steikin hennar mömmu fór barasta beina leið í frystinn og við Mamma og Börkur fórum í mat til Hlyns bróður í gær. Svo var planað að fara til þeirra í hangikjöt í dag og gerðum við það. Á morgun er öll fjölskyldan boðin í kalkún til mömmu, svo við verðum að skutlast með fuglinn til Hlyns, steikja hann þar og koma honum svo hingað. Það er mjög hentugt að bræðurnir séu hérna í næsta nágrenni við mömmu. Þá er hægt að redda þessu án þess að maturinn kólni á leiðinni, auk þess sem hægt er að drekka rauðvín með matnum og ganga heim.

fimmtudagur, desember 21, 2006

heimför frestað

Veðurhamurinn lætur ekki að sér hæðast, það er alveg á hreinu. Ég held ég bíði þar til þessi stormur sem spáð er í dag er liðinn hjá. Það breytir engu þó ég hafi bara þorláksmessu til að versla allar jólagjafirnar. Ég verð bara að lifa með því, kannski ég fái einhverstaðar eina róandi til að hafa það af að vera að versla á þessum degi. Mamma á líka allan jólaundirbúning heimilisins eftir, þ.e. fyrir utan það að versla. Hún var nefnilega að koma frá Kanaríeyjum í gærkvöldi, jæja aðalatriðið er nú bara að kaupa í matinn, við getum bara slökkt ljósin og verið með kertaljós eingöngu til þess að fela rykið og skort á öðrum skreytingum. Mútta er eflaust búin að kaupa sér jólasúkkulaðið sitt frá Lindt í fríhöfninni. Þá er um að gera að redda henni nýjum og spennandi glæpasögum og hún er happy camper.

sunnudagur, desember 17, 2006

Blogglestur

Ég er nú ekki manna duglegust að skrifa á þetta blogg, tek mig samt á öðru hvoru sérstaklega þegar ég tek eftir því að þessir pistlar eru lesnir. Þ.e.a.s ég fæ einhver komment. En ég er mikið duglegri við að lesa önnur blogg, það eru fastir liðir í rúntinum sumar eru lesnar daglega aðrar sjaldnar. Það eru ýmsar barnasíður vina og vandamanna, maður fylgist með mörgum einstaklingnum vaxa úr grasi í fjarlægð. Svo er það náttúrulega saumaklúbburinn, vinir erlendis og vinir vina erlendis. En öðru hvoru rekst maður á gamalkunnugt fólk sem maður átti samleið með einhvertímann á lífsleiðinni sem maður er farin að fylgjast með daglega svo sem eins og Silja sem var með okkur í 9 bekk og Lára gömul bernskuvinkona frá Háaleitinu og Álftó. Gyða og Linda ættu að muna eftir þeim, aðrir lesendur láta sér bara fátt um finnast.

fimmtudagur, desember 14, 2006

Öryggi í umferðinni

Jú víst er það Gyða, ég hvíldi mig um leið og ég fann að kaldur gustur var ekki nóg til að hressa mig við. Og þvílíkur munur sem 10 mín. lúr getur gert. Öll fjölskyldan hefur lagst á eitt við að ráðleggja mér um hvað ég þurfi að hafa með í bílnum til að vera örugg á þessum vetrarferðum mínum norður og suður. Svo nú er ég komin með svefnpoka í bílinn, líka loðfóðraðann útigalla, gönguskó, skóflu, keðjur, kerti, vasaljós, heitt vatn á brúsa, harðfisk, húfu og vettlinga. Það má segja að ég sé bara orðin við öllu búin, nema því að hafa farþega í bílnum því á endanum verður ekkert pláss í bílnum. Og héðan í frá fer ég ekki af stað nema úthvíld, ég geri mitt besta til að aka varlega, á viðeigandi hraða, ekki taka framúr nema ástæða og aðstæður bjóði upp á það, ég geri allt í mínu valdi til að vera örugg í umferðinni en ég get ekki ábyrgst það sem aðrir gera. Bíllinn er í góðu standi, ég er með auka brúsa af rúðuvökva og dekkjahreinsi í bílnum. Til skemmtunar hlusta ég svo á hljóðbækur á meðan á ferðinni stendur, engin ástæða til að vera alltaf að skipta um útvarpsrás, annars er útvarpið stillt á gufuna á langbylgju til að missa ekki af fréttum hvar svo sem ég er stödd á leiðinni. Ég held ég sé farin að hljóma eins og Frímann Gunnarsson svei mér þá, hér með er þessum pistli lokið.

föstudagur, desember 08, 2006

desemberstress

Úff, desember er ekki eins ljúfur og ég vildi hafa hann. Stresssið er mann lifandi að drepa. Í fyrsta lagi ætlaði ég aldrei aldrei aftur að flytja í desember, ég hata það að flytja og að gera það ein, en allra mest hata ég að gera það í desember. Maður finnur aldrei neitt, nú finn ég ekki adressubókina mína til að senda kort og pakka út um allt. Og ég fæ ekki svör við sms og email þegar ég óska eftir adressum, hvað er þetta vill enginn tala við mig.
Svo er stress í vinnuni, fullt af fundum, fjárhagsáætlun og svoleiðis vesen. Svo er ég ekki farin að hugsa um aðrar jólagjafir en þær sem fara í póst.
Gleði mánaðarins er að hitta mág minn og yngstu systurdóttur mína sem eru í heimsókn frá svíþjóð núna. Ég gat samt ekki hitt þau fyrr en í kvöld þegar ég kom suður.
Ég var næstum sofnuð undir stýri í dag, ég fékk sjokk þegar ég sá stykki úr fjallinu fyrir framan mig hreyfast, lagði bílnum og lagði mig í 10 mín og hresstist við það, fékk mér svo kaffi við næsta tækifæri. Þetta hefur ekki komið fyrir mig áður.

föstudagur, nóvember 17, 2006

Veður II

Ég er smám saman að læra á það hvernig það er að búa úti á landi og hvernig veður hefur áhrif á allt og þá sérstaklega vetrarveður á norðurlandi. Núna er ég búin að upplifa það að þurfa að breyta öllum ferðaplönum vegna veðurs (maður þekkti það svo sem), að vera veðurteppt heima hjá sér vegna veðurs og komast ekki í vinnuna þess vegna og að vera á ferðinni í veðri sem maður ætti ekki að vera á ferðinni í. Og allt á einni viku. Síðustu helgi fór ég í bæinn á fimmtudegi og til baka á sunnudegi, það var ekki útlit fyrir ferðaveður á föstudegi né á mánudegi. Á mánudaginn komst ég ekki í vinnu vegna veðurs, útidyrahurðin hélt ekki veðrinu svo ég varð að stafla dekkjum upp við hana til að halda henni. Á miðvikudag lennti ég í blindbyl á leið heim úr vinnu og ætlaði að snúa við en það var ansi erfitt þegar maður sá á stundum ekki einu sinni stikurnar hvað þá hvar maður var, í stað þess að snúa við, villtist ég heim! Hvað sem öðru líður þá er ég svo ánægð með bílinn minn sem lætur ekkert á sig fá, drífur allt sem komið er, er stöðugur í allri færð sem við höfum lennt í ennþá. Þetta voru mjög góð kaup.
Í kvöld er svo árshátíð heilbrigðisstofnunar Blönduóss og ég mun syngja með sjúkrahúskórnum uhum, komin tími til að gera sig að fífli.

fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Veður

Jæja núna er óveður að skella á þessa helgina eins og þá síðustu og ég veit bara ekki hvað ég á að gera. Planið þessa helgina var að fara suður eftir vinnu í dag, á morgun átti ég að vera á fundi/ráðstefnu í Hvalfirðinum allann daginn. Því er aflýst vegna veðurs. Ég læt mér þá detta í hug að fara þá í vinnuna eins og vanalega á morgun og fara eftir vinnu á morgun. En spáin er ekki góð, óveður allann daginn á morgun. Alls ekkert ferðaveður. What to do... á ég að fara eftir vinnu í dag en þá get ég ekki gert allt það sem ég ætlaði mér að gera á morgun fyrst ég græði þarna vinnudag. Eða bíða og fara ekki fyrr en á laugardag?

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Heima er best

Jæja ég er eflaust að bera í bakkafullann lækinn í bloggheimum með því að taka þetta til umræðu en mig langar til að eyða nokkrum línum í uppákomuna í sjónvarpsþættinum Innlit/Útlit.
Þið sem ekki vitið hvað um ræðir (útlendingarnir ykkar) þá er málið þannig vaxið að fólki ofbauð lýsingarnar á ástandi á íbúð nokkurri sem leit bara þokkalega út í mynd. Ungur maður kaupir sér íbúð og ætlar sér að breyta henni eftir eigin höfði og sjónvarpið fær að kýkja inn fyrir og eftir breytingar. Hmm ég hafði ekki séð þáttin þegar ég las um þetta í blöðunum og varð því að kýkja á þetta þegar ég rakst á endursýninguna í gær. Þess má geta að ég er alveg hætt að nenna að horfa á þennan þátt því magn óbeinna auglýsinga í þættinum er óþolandi.
Og jú ég er sammála því sem ég hef verið að lesa um þetta, dónaskapurinn er yfirgengilegur. Þáttastjórnandi og húseigandi eru sammála um að eldhúsinnréttingin sé algjört ógeð, svo ljót að það væri ekki hægt að bjóða fólki hana gefins. Það væri að gera fólki ógreiða með því. Hmm innréttingin er greinilega ekki eftir smekk allra, en í þokkalegu standi, nýleg meira að segja. Áfram tyggja þeir á orðinu ógeð, þeir gátu ekki einu sinni verið með fjölbreyttan orðaforða í þessum lýsingum sínum. Baðið er ógeð, viðkomandi treystir sér ekki einu sinni til að pissa í klósettið þarna. Allt skal vera rifið út og íbúðin gerð fokheld. Viðarrimlagardínurnar sem voru í íbúðinni voru svo mikill viðbjóður að vinur hans ældi á gólfið yfir því hvað þær væru ljótar. Í mynd var þetta hið þokkalegasta bað kannski ekki það nýjasta og flottasta en ók og hreinlegt á að líta. Ekki eins og á ýmsum staðnum sem maður hefur skoðað um tíðina. Og rimlagluggatjöldin voru þessi dökku breiðu viðarrimlar sem eru svo víða eftir að þeir komust í tísku í kringum 2000.
Ég kann alltaf betur og betur að meta Völu Matt í þessu hlutverki, þó orðaforðinn hafi verið takmarkaður og síendurtekin þegar hún var með þennan þátt, fann hún alltaf eitthvað gott að segja um allt sem hún sá. Ef það var ekki eftir hennar smekk þá var það ekki "augnakonfekt" heldur "áhugavert". Hún hefur eflaust haft í huga að það þarf að hafa áhorfendur góða, sama hvaða smekk þeir hafa. Jafnvel þó hann sé "síðri" en eigin smekkur. Ekki bara vegna þess að þeir kaupa það sem auglýst er í þættinum í meira og minna beinum og óbeinum auglýsingum. Heldur einnig vegna þess að það er fólkið í landinu sem er að hleypa þessu fólki heim til sín og það getur auðveldlega orðið hikandi við að opna dyrnar á heimili sínu. Vill ekki láta dæma sig á þennan veg. Einhver þeirra sem leitað er til síðar gæti allt eins verið sá sem seldi manninum ógeðis íbúðina, hver veit.
En svo er þetta innslag einnig birtingarmynd fyrir tvennt í þessu þjóðfélagi sem ég á erfitt með að umbera: Annarsvegar þessi flottræfilsháttur, henda öllu og kaupa allt nýtt, neytendur fram í fingurgóma, kaupa kaupa kaupa, aldrei nýta, aldrei hugsað um umhverfið og vaxandi ruslahauga heimsins og þverrrandi auðlindir vegna þessa lífstíls. Hins vegar mjög tengt fyrirbæri, þessi persónuleiki sem kallaður er hnakki, sem er svo útlitssinnaður að yfirborðsmennskan yfirtekur allan persónuleikann sem ekki er fær um að setja sig í spor annara. Og á sama tíma er tjáningin einskorðuð við einhæfðan og fordómafullann orðaforða og viljandi ranga málnotkun til að virka töff og flottur á allann hátt, s.s. yfirborðsmennska út í gegn.

föstudagur, september 15, 2006

Föstudagur

Ósköp var síðasta færsla neikvæð, ekki að furða að fólk athugi hvort það sé ekki allt í lagi með mig. Jú jú ég er í lagi.
Tók heldur betur til í símreikningunum í vinnuni, sá símanúmer sem enginn kannaðist við og lét loka þeim. Komst svo að því að annað var vegna adsl tengingarinnar okkar, s.s. ég lét loka fyrir netið og eins og gerist og gengur tók það heila viku að fá þetta í lag aftur. Hreinlega skelfilegt ástand. Þess utan er ég búin að missa nettenginguna heima hjá mér líka, stundum kemst ég á netið og þá helst bara inni á baði. Mér finnst það bara ekki gaman að sitja á klósettinu með lappann svo ég nenni þá yfirleitt ekki á netið.
En nú er ég farin að fara meira út á meðal fólks hér í sveitinni, er komin í kór... he he,nýstofnaðan sjúkrahússkór.
En nú er föstudagur og ég er farin til Reykjavíkur til að vera yfir helgina.

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

þreytt

Ég er alveg ónýt, ógeðslega þreytt, sef illa, er kannski að taka vinnuna með mér heim sem er ekki nógu gott, það gerir mig veika.

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

húðlöt

Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég er húðlöt, ég hafði hugsað mér að skrifa ferðasöguna niður hér, sérstaklega sjálfrar mín vegna svo ég gleymi engu. Ég hef ekkert gert að viti þegar ég er ekki að vinna hangi ég yfir sjónvarpinu, nenni eiginlega hvorki að taka til né gera nokkuð annað að viti. Um helgar fara 6 tímar í akstur og restin í að gera eitthvað meira af viti en ég geri í vikunni.
Ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa nokkrar línur núna er að ég var að lesa Spiegel Online og fannst algjört æði að sjá að sama umræða og á sér stað hér á sér stað þar. Það er gagnrýni á ofurlaun stjórnenda ég er ekki búin að lesa alla greinina enda er ég í vinnuni og bara renndi svona aðeins yfir hana. Líkar afskaplega vel tónninn í henni um óeðlilega miklar kauphækkanir stjórnenda stórfyrirtækja á verðbréfamarkaði, hækkanir sem ekki er hægt að réttlæta. Það má kannski minna á Enron og fleira í BNA sem átti rót sína í árangurstengdum rosalaunum sem voru hvatning til stjórnenda til að falsa bókhald til að allt liti mikið betur út og launin með.

mánudagur, júlí 24, 2006

Fyrsta heimsóknin

Fyrst í heimsókn til mín hingað norður(fyrir utan Röggu og Steinar sem hjálpuðu mér að flytja) er hann Torfi systursonur minn frá Svíþjóð ásamt spúsu sinni Súsönnu og foreldrum hennar. Sem sagt ég er með fullt hús svía eins og er. Nú er ég í vinnuni á meðan þau skreppa í dagsferð á Akureyri og Mývatn. Þegar ég kem heim ætla ég að hafa grillið til svo að við getum grillað um leið og þau koma aftur úr þessari ferð.
Á morgun fara þau svo í suðurátt, og taka Snæfellsnesið í leiðinni.

sunnudagur, júlí 16, 2006

Netheimar

Ég var að lesa bloggið hennar Ástu úr saumaklúbbnum, þar sem hún talar um 10 hluti sem hún elskar. Þar á meðal að lesa bloggsíður. Ég neyðist til að viðurkenna að ég geri soldið af því líka. Það er fyrst alltaf ákveðinn blogghringur, þau blogg sem ég kýkji á reglulega, vinir kunningjar. En svo kýkir maður á nagportal.net og uppgvötvar margar síðurnar þar. Þar hef ég fundið bloggsíður fólks sem ég hef einhvern tímann eytt tíma með á æfinni. Séu það gamlir vinir, vinnufélagar eða skólasystur eða -bræður sem maður er ekki í neinu sambandi við lengur, kannski ekki séð í 20 ár. Merkilegur andskoti þessi netheimur. Allt í einu er maður að lesa um líf fólks sem maður hefur kannski einhverntímann þekkt eða aldrei þekkt, stundum hef ég það á tilfinningunni að ég sé að njósna. Þessum blogglestri fylgir svolítil sektarkennd, líkt og þegar sést hefur til manns að lesa "Séð og Heyrt" nú eða DV. Maður á ekki að lesa þetta segir samviskan. En á móti kemur að það sem birtist á bloggsíðum er með vilja fólksins gert, það er sjálft að birta þetta, annað en það sem stundum er gert í öðrum miðlum. Þetta hljómar kannski undarlega fyrir þig, að lesa þessar vangaveltur á bloggsíðu. Þversögn kannski, en á móti kemur að síðan þessi er ekki á neinum lista, ekki hjá blogger eða á nagportal. Auk þess er ekki svo auðlæsilegt fyrir aðra en þá sem þekkja mig hver skrifar hér. Þess vegna finnst mér ég vera örugg þó auðvitað er það enginn á þessu sviði. Ég er ekki alveg á útopnu hér, heldur er um að ræða þrengri vettvang en hjá flestum. Auk þess sem ég er ekki að deila hverri einustu gjörð eða hugsun með lesendum. Nú hljóma ég eins og ég sé að réttlæta sjálfa mig útfrá þessum pælingum mínum, þannig hefur vopnið snúist í höndunum á mér. Þetta var Sunnudagshugvekjan mín, nú má "Húsið á sléttunni" byrja.

fimmtudagur, júlí 13, 2006

hmmm

Er bara ekki í mínu besta formi, líður ekki vel. Er leið, sár og sorgmædd og einmana.
Sjáum til hvernig líðanin er á morgun, nú er einn hápunktur vikunnar framundan, Despo húsfrúrnar eftir 10 mín.

hitt og þetta

jæja, enn og aftur kominn fimmtudagur. En núna ætlaði ég að vera hér fyrir norðan í fyrsta skifti yfir helgi. Það er bæjarhátíð hér í bæ þessa helgi. Maður verður nú að taka þátt í lífinu í sveitinni til að komast inn í hlutina. Ég átti von á að fá heimsókn líka yfir helgina, en það datt upp fyrir. Mamma og vinkona hennar ætluðu að koma yfir helgina, en mútta var plötuð í vinnu þessa daga svo hún kemst ekki fyrr en á sunnudag. Aldís ætlaði að kýkja en það datt uppfyrir líka. Svo nú er ég á báðum áttum, ég held ég verði hér samt sem áður sama hvort ég fæ einhvern til mín eður ei.
Ég uppgvötvaði það síðustu helgi að ég var ekki farin að íhuga fatnað fyrir ferðina mína, hvað þá kjól fyrir brúðkaupið. Úpps, ég vil endilega vera í fallegum kjól í þessu brúðkaupi, ég get ekki verið í buxum, það er allt of heitt, stuttbuxur eru ekki inn í dæminu, allt of hvunndagslegt. S.s. ég fór á stúfana síðustu helgi og tók við að leita að kjól, fann flotta kjóla sem ég mátaði, því miður þá pössuðu þeir allir ekki yfir brjóstin þó þeir virtust passa að öðru leiti. #$&grr. *#$%&grrr.
Ég einblíndi svo mikið á það að finna kjól að ég íhugaði ekki pils og topp. Ég hefði svo sem átt að vita þetta, ég er einu númeri stærri á efri partinn. Svo ég keyri kannski í næstu bæi hér fyrir norðan og ath hvað búðirnar hér hafa upp á að bjóða á laugardaginn.
Nú skín sólin og mér leiðist að sitja inni á skrifstofu og það alein enn einn daginn. En nú verð ég að gera eitthvað af viti og vinna eitthvað.

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Fimmtudagskvöld

Það er komin rútína í fimmtudagskvöldin hjá mér, taka saman þvott,pakka og þrífa. Ég á ósköp erfitt með að sjá fyrir hvað mig vantar fyrir helgina. Ég er ósköp óákveðin, hvernig föt þarf ég, hvað ætla ég að gera um helgina? Alltaf sama spurningin. Ég hef alltaf átt við þetta vandamál að stríða, allaf vantar mig það sem ég pakka ekki niður. Sama hvert ég fer. Jæja á meðan ég fer með þvottinn suður hverja helgi er ég alltaf með meira með mér en ég þarf á að halda. Hvernig fer fyrir mér þegar ég verð komin með þvottavél hérna? Kannski ég kýki á útsölur í bænum um helgina. Mig vantar skó, braut hæl af einum síðustu helgi. Svo þarf ég að hugsa um fatnað fyrir sólarlandaferðina mína, he he. Ég á barasta engin alvöru SUMARFÖT, hvenær þarf ég þau hér svo sem.

þriðjudagur, júlí 04, 2006

voða gaman

jæja það verður að segjast að það er erfitt að leggja niður gamlan vana. Ég skil ekki af hverju ég er alltaf að fara inn á Starfatorg, Mannafl og aðrar síður sem ég var alltaf að skoða í atvinnuleit. Ég skoða ekkert inni á þessum síðum lengur, ég bara gríp mig við það að opna þessar síður og hálf skammast mín og flýti mér þá til að fara á aðrar síður rétt eins og ég hefði verið gripin við að skoða klámsíður.
Sannleikurinn er sá að ég er ánægð með vinnuna mína, hún er fjölbreitt og það er margt nýtt og spennandi sem ég kynnist í þessu starfi. En ég er langþreytt, það er ekki gaman að flytja, það getur verið erfitt að flytja án þess að vera undir það búin. Ég var s.s. ekki búin að vera að pakka dóti í margar vikur áður en ég flutti heldur var bara farið í næstu viku eftir viðtalið. Og nú er ég búin að vera að standa í flutningum um helgar síðustu 7 vikur. Auk þess að leita mér að bíl um helgar líka, nú verð ég að fara að klára þetta dæmi. Það þarf að mála og laga einhverja hluti í íbúðinni minni í bænum, auk þess að þrífa hátt og lágt, finna leigjanda, helst einhvern sem ég eða önnur traustsins verð manneskja þekkir eitthvað til. Svo þarf að finna geymslu til leigu fyrir það sem ekki fékk að fara með norður.
Þetta ætlar engan enda að taka þetta vesen. En allavega mér tókst að finna mér bíl um síðustu helgi og keyri nú um á Subaru station bíl, það varð nú að vera 4hjóladrifinn.
Ég er nú eins og áður sagði frekar þreytt og ekki í mínu besta ástandi hvað það varðar. Ílla sofin er ég bara hálf manneskja, hef ekki þurft að lifa mánuðum saman á 3 tímum á nóttu vegna ungabarns eins og margur annar, og ætti því ekki að vera að kvarta. En ég komst að því í nótt hvað var að trufla svefnfriðinn hjá mér. Ég sef alltaf við opinn glugga og er vön umferðarlátum og hvaðeina. En ég er ekki vön því að mávager sé að garga fyrir framan gluggann um miðjar nætur og vekja mann þannig. Ég var líka aldrei hrifin gæsunum í sem hafa vakið mig á morgnana um helgar undanfarna vetur. En þær voru í það minnsta aldrei að birtast um miðja nótt.
Verst þykir mér hvað þetta svefnleysi fer á taugarnar hjá mér sem svo slær á magann sem verður þess valdandi að ég get ekki drukkið kaffi, sem er þess valdandi að það er erfitt að halda sér vakandi þegar maður á að vera vakandi.
En magans vegna er þá kaffið sett á pásu í einhvern tíma og hugað er að betri næringu og helst hreyfingu líka, ef maður væri ekki svona latur. ;0(

mánudagur, júní 12, 2006

jæja langt er síðan ég skrifaði síðast

Og margt hefur átt sér stað, núna set ég inn líka færslu sem ég hafði skrifað 10 maí en vildi ekki birta fyrr en ég væri búin að segja ýmsu fólki fréttirnar í eigin persónu.
Um miðjan Maí byrjaði ég í nýju starfi sem Félagsmálastjóri á Blönduósi. Það er sem sagt mikið að gerast í einu. Ekki bara ný vinna heldur flutningar í leiðinni, flutningar landshornanna á milli. Ekki er nein íbúð á lausu á Blönduósi svo ég er flutt til Skagastrandar. Hér bý ég í 90 fm. raðhúsi, sem er satt best að segja alltof stórt fyrir mig eina.
Ég segi það satt að ég hata flutninga, að flytja lengra en innanbæjar er soldið meira mál, líka ef maður er í fullri vinnu á meðan. Svo allt gerist um helgar. Ég er ekki góð í að pakka, ég held að næst þegar ég flyt er ég með það á hreinu að það gerist með meiri fyrirvara svo ég geti skipulagt allt fyrirfram og tekið mér tíma í þetta.
Ég get ekki endað þetta á þessum neikvæðu nótum, ég er bjartsýn á framtíðina, þetta verður mjög spennandi reynsla. Að læra eitthvað nýtt, spennandi starf sem býður mikla möguleika á að þróa sig áfram. En ég get ekki tekið MBA námið sem ég hafði verið að spá í, en á móti kemur að ég er núna að spá í nám í stjórnsýslu, sem myndi nýtast mér í starfinu og hægt er að taka það í fjarnámi. Í næsta húsi við mig myndi nýtast mér við það nám.

miðvikudagur, maí 10, 2006

grrrr

Tölvur eru tæki djöfulsins, þolinmæði mín gagnvart þeim er mjög takmörkuð. Svo ég skýri þetta aðeins betur, í tilefni af nýju vinnuni minni og tilheyrandi flutningum á Blönduós, keypti ég fartölvu í gær. Og hún er eflaust gölluð, því hún er ekki að ganga, frýs í sífellu, ég get ekki gert nokkurn skapaðann hlut. Ég er ekki komin langt í að setja inn á hana allann nauðsynlegan hugbúnað, hún byrjaði að láta svona þegar ég setti vírusvörnina inn. En góðu fréttirnar eru þær að skanninn sem ég keypti líka í gær, er alveg að gera sig, áður en ég setti inn vírusvörnina og allt fór fjandans til setti ég upp skannann og var hún mjög fljót að setja upp meðfylgjandi hugbúnað, yndislegt. Skanninn er mjög einfaldur í notkun, þarf ekkert rafmagn annað en um USB við tölvuna, s.s. bara ein snúra. Og snilldin ein, hann skannar filmur, sem ég mun dunda mér við á næstunni í mínum litla frítíma.

föstudagur, maí 05, 2006

persónuleikapróf

Ég var í atvinnuviðtali á Blönduósi í gær, í dag tók ég persónuleikapróf vegna þessa starfs á netinu. Ég verð að gera upp við mig hvort þetta starf sé það áhugavert að ég vilji það, bjóðist mér það, spurningin er vil ég flytja? Vil ég starfið því það stendur til boða, bara til að fá vinnu eða hef ég áhuga vegna þess að ég hef áhuga á starfinu sjálfu? Ég verð að gera það upp við mig.
To be or not to be?