jæja, enn og aftur kominn fimmtudagur. En núna ætlaði ég að vera hér fyrir norðan í fyrsta skifti yfir helgi. Það er bæjarhátíð hér í bæ þessa helgi. Maður verður nú að taka þátt í lífinu í sveitinni til að komast inn í hlutina. Ég átti von á að fá heimsókn líka yfir helgina, en það datt upp fyrir. Mamma og vinkona hennar ætluðu að koma yfir helgina, en mútta var plötuð í vinnu þessa daga svo hún kemst ekki fyrr en á sunnudag. Aldís ætlaði að kýkja en það datt uppfyrir líka. Svo nú er ég á báðum áttum, ég held ég verði hér samt sem áður sama hvort ég fæ einhvern til mín eður ei.
Ég uppgvötvaði það síðustu helgi að ég var ekki farin að íhuga fatnað fyrir ferðina mína, hvað þá kjól fyrir brúðkaupið. Úpps, ég vil endilega vera í fallegum kjól í þessu brúðkaupi, ég get ekki verið í buxum, það er allt of heitt, stuttbuxur eru ekki inn í dæminu, allt of hvunndagslegt. S.s. ég fór á stúfana síðustu helgi og tók við að leita að kjól, fann flotta kjóla sem ég mátaði, því miður þá pössuðu þeir allir ekki yfir brjóstin þó þeir virtust passa að öðru leiti. #$&grr. *#$%&grrr.
Ég einblíndi svo mikið á það að finna kjól að ég íhugaði ekki pils og topp. Ég hefði svo sem átt að vita þetta, ég er einu númeri stærri á efri partinn. Svo ég keyri kannski í næstu bæi hér fyrir norðan og ath hvað búðirnar hér hafa upp á að bjóða á laugardaginn.
Nú skín sólin og mér leiðist að sitja inni á skrifstofu og það alein enn einn daginn. En nú verð ég að gera eitthvað af viti og vinna eitthvað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli