laugardagur, apríl 09, 2005

Kringlan

Ég fór í Kringluna með stelpunum hennar systur minnar á fimmtudag, daginn fyrir minningarathöfnina. Við þurftum að skoða nánast hverja einustu bleiku flík í Kringlunni, sem sagt við fórum inn í allar verslanir Kringlunnar. Mikið er það nú þreytandi enda nenni ég aldrei inn í allar þessar verslanir. Við vorum búnar að fara í margar verslanir þegar ég ákvað að nýta tækifærið á meðan þær skoðuðu enn fleiri bleika boli og skrapp á klósettið við Stjörnutorgið, við hlið ísbúðarinnar. Það er nú vanalega ekki í frásögur færandi, nema hvað !! Þegar ég kem svo af klósettinu gengur til mín myndarlegur ungur maður. Hann spurði hvort hann mætti trufla mig í smástund. Jú jú segi ég enda er maðurinn ekki ómyndarlegur og geri ráð fyrir einhverskonar spurningakönnun eða jafnvel kynningu á einhverri góðgerðarstarfsemi. En nei það var ekki svo. Hann upplýsir mig um það að það sé falin myndavél á salerninu og hvort ég sé samþykk því að myndskeiðið af mér yrði notað í sjónvarpsþátt um venjur íslendinga sem sýna eigi í sjónvarpinu í haust. Mín fyrstu viðbrögð voru að spyrja hvort þetta væri löglegt. Jú hann sagði svo vera að það hefði fengist leyfi frá Kringlunni fyrir þessu og hvort að ég vildi ekki endilega leyfa birtingu á þessu. Hah oh nei, ekki það að ég hefði slæma samvisku yfir því að hafa ekki þvegið hendurnar næginlega vel eða eitthvað slíkt, ef ég fæ einhverju um það ráðið, þá sést ég ekki í fjölmiðlum nema þá fyrir eitthvað merkilegra en það eitt að fara á klósettið. Haldiði það nú falin myndavél á klósetti Kringlunnar. Nema að um félagsfræðilega/fjölmiðlafræðilega rannsókn hafi verið að ræða um hversu langt fólk vill ganga til að komast í sjónvarpið?
Ef þetta væri ekki svona fyndið hefði ég orðið alveg tjúll.

miðvikudagur, apríl 06, 2005

Myndir segja meir en 1000 orð

Mæðgur Posted by Hello
Systur  Posted by Hello

mánudagur, apríl 04, 2005

engin löngun

til að skrifa eitthvað að viti, er ekki tilbúin til þess.
1/2 fjölskyldan kemur á morgun hinn helmingurinn á fimmtudag. Minningarathöfn á föstudag.
En ég hvet aðra sem eru í betra standi til að standa sig betur í blogginu. Ég vil endilega hafa eitthvað að lesa. ;0)

miðvikudagur, mars 30, 2005

vesen

hmmp,
Það fer allt í hönk þegar maður dettur úr daglega lífinu.
Gleymdi að skila skattinum, atvinnuleysisbætur detta niður vegna þess ég gat ekki mætt. Missti af atvinnutilboði og gat ekki sótt um neitt núna nýlega.
Hvenær gerist eitthvað gott?

miðvikudagur, mars 23, 2005

coming home

Ég kem heim á laugardag og verður ágætt að fá smá tíma ein þar til familían kemur í viku.
Tilfinningalega í flækju, en hver skilur það ekki.
Eitt er víst, maður verður að nýta þann ´tíma sem maður hefur á þessari jörð.

laugardagur, mars 12, 2005

Lífið er stutt

L'ifið er stutt, örstutt.
Inn á milli svo ósköp erfitt.
Fer á mán til sverige.

miðvikudagur, mars 09, 2005

Þreyttur

Það er þreyttur Ausi sem skrifar þetta. Síðustu 2 nætur voru mér of stuttar, en samt góð og gild ástæða fyrir því. Ég þurfti nátturulega að eyða tíma með lindinni.
Heyrði frá gömlum vini í þýskalandi í dag og var mjög ánægð með það því ég taldi hann týndann.
Mikið hlakkar mig til helgarinnar, það er nefnilega stöðugt áreyti þessa vikuna og ég er að gera meira stress úr sumum hlutum sem veldur mér vöðvabólgu og öðrum óþægindum.
Sumarbústaður með Saumó er einmitt lausnin.
Vonandi gengur allt upp á morgun.

þriðjudagur, mars 01, 2005

degi seinna

Mán 28/2
Tölvuvesen, eins og oft áður. Jæja það var alveg ljóst að greyjið litla þyrfti stærra vinnsluminni, hún var varla starfhæf lengur.
Í ljós kom að það var hreinasta kraftaverk að hún skyldi virka og það var ekki ljóst hvaða forrit og skrár urðu til þess að minnið hvarf. Þetta var allt hið undarlegasta mál þegar nánar var athugað í dag. Og var svo keypt og sett upp meira minni sem og frekari harður diskur sem til var fyrir var settur upp líka. Ekki nóg með það heldur byrjuðu öll önnur drif að stræka í lok síðustu viku og gera enn. Það er 2 cd drif, floppy og USB tengt laust drif (þ.e.a.s. stafræna myndavélin mín). Very weird, því það finnst ekkert að neinu að þessum drifum samkvæmt öllu innan stýrikerfisins. Og Troubleshoot fítusinn í XP er algjörlega ónothæfur. Þetta er furðulegar villur sem ég fæ alltaf, allavega get ég sett upp backup núna á aukadiskinn fyrst ég get ekki gert cd með backup.
Hey hey svo kemur í ljós að einn af stillingartökkunum á skjánum sem er innan við 6 mánaða gamall er bilaður, þannig ef ég vil stilla skjáin af þá get ég bara minnkað ekki stækkað sem þýðir að nú er svört rönd allt í kring og ég get ekki breytt því.
Og ofan á þetta kemur sú staðreynd að símalínan er biluð. S.s. ekkert net eða símasamband í dag. Ég var farin að tengja þetta tölvunni, að það væri ástæðan fyrir símaruglinu. Ekki síst því ég fékk símtal frá Hive í dag um að ADSL tengingin væri komin í gang og að búnaðurinn yrði sendur í kvöld. Shiiiit ég hef bara engann tíma þessa vikuna til að taka við þessum búnaði. Ekki nema að ég fari til þeirra að sækja hann í fyrramálið, til að setja hann upp sjálf, en þá er ég að bíða eftir símamanninum.
Þetta er bara ekki að ganga, sumar vikur eru tómar á meðan aðrar eru way too much.
Ok ég er í dagvinnu við verðupptöku í verslunum fyrir HS þri, mið og fim. Og í kvöldvinnu þar líka, þrið. og miðv. Og þyrfti að vera fim líka en þá er ég að fara á fund í fagdeild FL: Í kvöld var aðalfundur sem gekk vel, en var ástæða þess að ég gat ekki unnið mína venjulegu vakt í HS í kvöld. Miðvikudagskvöld er svo skipulagssaumó vegna sumarbústaðaferðar, en ég verð að vinna. Ég hef ekki efni á að missa meir en eina vakt á viku.

Dreymdi að ég eignaðist tvíbura, alveg óvænt, ég vissi að ég væri að fara að eiga. Fann ekki fyrir neinu en svo þreifaði ég og fann að kollurinn var komin út. Og áður en ég vissi af var barnið komið í heiminn og svo fann ég fyrir öðrum kolli og seinna barnið kom. Börnin voru sitt af hvoru kyninu. Hvað skyldi þetta þýða, tilfinningin sem ég hafði var að allt yrði gott.
Svo ég leit í Draumaráðningabókina eftir Þóru Elfu Björnsson (Skjaldborg, Reykjavík 1987) og sjá:

?Tvíburar. Það boðar mikla gleði ef þig dreymir að þú hafir eignast tvíbura. Að leika við tvíbura merkir að gæfan leiki við þig? S:146

?Fæðing. Að vera viðstaddur fæðingu þar sem allt gengur vel er fyrir góðu...Að sjá tvíbura eða þríbura fæðast er fyrir mikilli aukningu veraldlegra gæða.? S: 63

?Barn. ... Flestir draumar þar sem börn koma við sögu þykja ekki fyrir góðu, sbr. ?Böl er ef barn dreymir nema sveinbarn sé og sjálfur eigi? ... Að eignast tvíbura í draumi er fyrir tvöföldum erfiðleikum.? S: 35

Og hvaða merkingu kýs ég að taka mark á ??

Jæja nóg í bili þetta er náttúrulega skrifað með uppfærslu seinna í huga.


.

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

mæ oh mæ er ég hér á ný

Ég er búin að taka að mér ýmislegt undanfarið. Ekki nóg um allt það sem ég geri í félagi L. Þar sem ég er að leitast við að gera félagsskýrteinið, leita eftir aflsláttartilboðum, hugmyndavinna vegna nýrrar heimasíðu. Heldur er ég komin í verkefni hjá Félagi félagsfræðinga, ég tók að mér að sjá um heimasíðuna. Auk þess að samþykkja að vera í vinnuhóp um fræðslumál/málþing, með gömlum skólabróður Snorra.
Svo vil ég komast í ný verkefni hjá RK í staðinn fyrir það sem ég gerði áður en get ekki gert lengur.
Svo er ég að leita eftir styrkjum eða öðrum framlögum sem geta auðveldað systur minni að koma til Íslands í heimsókn næsta sumar, hana vantar eitthvað slíkt til að halda sér í. En ennþá án árangurs.
Sem sagt það er nóg að gera hjá mér í félagsmálum, vonandi leiðir sú vinna á endanum raunverulega atvinnu af sér.
Sóttist líka eftir námskeiðum sem eru í boði hjá vinnumiðlun. Og er að skoða önnur námskeið sem gætu breytt núverandi stöðu minni. Stöðnun er sama og dauði.
Hlakka til að fá loksins adsl í næstu viku, en þarf samt að laga tölvuna fyrir þann tíma. Það er eitthvað bögg í gangi í henni þessa stundina.
Svo er ég að fara á Árshátíð hjá HS á morgun, svo fer ég í sumarbústaðaferð 11/3 með saumaklúbbnum. Það verður algjört æði.

Annað alveg óskilt öllu öðru, ég uppgvötvaði að ég hef ennþá ákveðna hæfni á sviði spegilskriftar. Ef ég set mig í stellingar get ég skrifað í spegilskrift og lesið líka. Hins vegar er skriftin hroðalega ljót. Enda hef ég enga æfingu haft á þessu sviði síðan ég var vanin af þessu á frekar ónærgætin hátt hjá henni Jónínu forðum daga.
Mér finnst þetta soldið fyndið.

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

ditten og datten

Loksins fór ég aftur í atvinnuviðtal, en fannst mér ég ekki sýna mig frá minni bestu hlið.
Ég á nú ekki von á að fá þetta starf, en það gerir manni gott að fá að komast í viðtal.
Í þetta skipti sóttu 60 um en 7 fengu viðtal, það er gott að vita.
Annars á túr, datt í mat og nammi og maginn er að launa mér misnotkunina, oj.
Kláraði að lesa da vinci lykilinn, so what's all the fuss about?? Þetta er bara ágætur jón spæjó af hverju er allt þetta vesen.
Mútta í svíþjóð, ég með bílinn fínt.
Fatahengið í forstofunni hjá mér hrundi í gærkvöldi, sem betur fer var ég inni í stofu því hillan er þung og hefði farið illa með hausinn á mér hefði ég lent undir þessu. Ég hafði víst ekki notað nógu veigamiklar skrúfur, hum hum ég er bara byrjandi á þessu sviði. Ég er búin að laga þetta núna.
see jah

föstudagur, febrúar 04, 2005

svo sem ekkert

hæ hæ
Ég tók aukavakt vegna veikinda í sjálfboðastarfinu í dag, er á því að ég geti sem stendur ekki staðið vaktir þarna alein. Svo ég mun biðja um að vera með öðrum á vakt.
Ég veit ég er þunglynd sem stendur en það var þolanlegt þar til ég tók eftir að kvíðinn er að koma líka, það get ég ekki höndlað. Svo nú er ég að hugsa um að fara til læknisins.
það verður árshátíð í vinnuni í HS bráðlega. Ég ætlaði ekki að fara, vegna þess hvernig aðrar skemmtanir hafa farið hjá mér þarna. En nú er ég ekki lengur á því að slá hendinni á móti þriggja rétta máltíð og balli með Millunum í boði stofnunarinnar. Ég verð bara að halda aftur af mér varðandi karlmenn. EASY.....
Búin að bíða í 13 mín. eftir að ná að hlaða niður maili. Það hlýtur að vera einhver rosa stærð á viðhenginu, ég nenni þessu ekki lengur.

mánudagur, janúar 31, 2005

eftir langa þögn

Ég er svo leiðileg þessa dagana og ekki líkleg til að skrifa mikið þessa dagana. Ég er greinilega ekki týpan til að skrifa frá mér allar tilfinningar mínar, þó það gerði mér eflaust gott. En hvernig getur maður það í algjörri deyfð. Janúar er nógu deprimerandi mánuður fyrir svo ekki sé öllum vondum hlutum dembt á mann í leiðinni. Ekki furða að flest fólk deyji á veturna.
Allavega á ég erfitt með að halda mér frá rúmminu, sef of mikið ef færi er til. Gæti allt eins sofið í
16 af 24. Reyni að drusla mér áfram. Drifkrafturinn enginn, umsóknirnar færri en ættu að vera. Rembist við að gera eitthvað af viti með að vinna eins mikið og HS leyfir. Er í sjálfboðavinnuni áfram, fór á námskeið hjá RK um síðustu helgi. Sat við hliðina á framkvæmdastýru RK og spurði hana í leiðinni eftir vinnu. Greinilega ekki daufari/dofnari en svo að ég gat það. En því miður er ekkert þar þessa stundina. Can't blame a girl for trying!
Mútta flýgur til Sverige á mið. og verður í óákveðinn tíma. Ég veit ekki með mig hvernær ég kýki næst. Í seinasta lagi um hvítasunnu í ferminguna.
Svo er ég líka að vesenast í fél. leið. til að nýta tímann og að gera eitthvað .
Verð að vinna dag og kvöld næstu 2 daga, þetta er svo óþolandi sveiflast frá engu í allann tímann sem dagurinn veitir manni. Ég nenni þessu lífstíl ekki mikið lengur. Verð að komast í fasta vinnu allavega um tíma sem allra fyrst.
Thats all folks
A






sunnudagur, desember 19, 2004

Bakverkur

Ég ákvað að takast á við þunglyndispúkann með því að hafa nóg fyrir stafni og eyddi laugardagskvöldinu í þrif. Skúra skrúbba bóna. Dúkurinn var orðinn soldið slæmur, skúraði 4 sinnum yfir gólfið svo það væri almennilega hreint áður en ég bónaði. Afraksturinn er fínt gólf en líka hryllilegur bakverkur. Ég veit ekki hvernig ég fór svona með bakið á mér ég er alveg að drepast. En samt má ég ekki vera að því að slaka á því ég er ekki búin að versla nokkurn skapaðann hlut til jólanna. Hvorki gjafir mat né skraut.
Hlynsi kom áðan að setja upp eldhúsviftu sem ég fékk frá þeim, þegar þau skiptu út. Hann kom líka með kommóðu sem þau voru að losa sig við, gat samt ekki tekið með sér kommóðuna sem átti að fara í Sorpu í staðinn. Sem var kannski eins gott því ég fann annan stað fyrir þessa kommóðu og nú á borð að hverfa á Sorpu í staðinn. Stundum er betra að hugsa málið. Hann kom líka með gömlu ryksuguna hennar mömmu, og ég veit ekki hvar ég á að geyma hana. Geymslan er troðfull. Ég þarf að endurskipuleggja þetta allt, en allavega þarf ég ekki lengur að stelast í ryksugu húsfélagsins.

fimmtudagur, desember 16, 2004

jólahvað

Börkur bróðir minn er 50 ára í dag, oh my god, hvað maður er orðinn gamall ef systkini manns eru orðin þetta gömul. Hálfrar aldar gamall drengurinn, hann lítur nú ekki út fyrir að vera svo gamall heldur sér vel kallinn.

Annars er ég ekkert svo kát þessa dagana, melanchólian að drepa mig. Nenni ekki neinu jólaveseni, best að ljúka þessu dæmi af sem fyrst.

Minnimáttarkenndin líka að fara ílla með mig, orðin þetta gömul og hef engu áorkað. Bla bla bla.

sunnudagur, desember 12, 2004

hummpf

best að gleyma þessu sem allra fyrst :0(
Karlmenn hummpf gleyma þeim.

mánudagur, desember 06, 2004

Aha

Aftur eru liðnar vikur milli frásagna, en ég leiðinleg.
Er að druslast í jólaundirbúningin, það verða economisk jól þetta árið.
Fékk litlu frændurna í gistingu á föstud. kv. gaman gaman, ég bakaði meira að segja með þeim jólasmákökur. Það er nebbnilega ekkert gaman að gera það ein. Svo var bara hammari í kvöldmat og horft á spólur til kl 1. Þeim fannst gaman og mér líka.
Ég var að hengja upp jólaljós í eldhúsgluggann, það er alltaf jafn kósí að setja upp ljósin.
Byrjaði á að skrifa jólakortin í kvöld, það er alltaf sama málið, allar adressur út um allt skrifaðar í hina og þessa dagbókina eða adressubókina eða staka miða, uhum hvar eru miðarnir?? Ég var svo dugleg í fyrra að setja allt í tölvuna sem svo hrundi of coarse. hihi corse. Sem minnir mig á það Backup ;0)
Þarf að skipuleggja mig betur what else is new.


þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Snjór

Já nú er sko farið að snjóa, ég ætla í göngutúr á eftir í nýföllnum snjónum. Það er best að njóta á meðan hann er ferskur og svo veit maður ekki hversu lengi hann endist.

mánudagur, nóvember 15, 2004

Og það er farið að snjóa, en það er samt engin afsökun fyrir jólalögum í útvarpinu 14/11 Posted by Hello