sunnudagur, júlí 15, 2007

Sunnudagur

Fyrir viku síðan varð ég fyrir undarlegu slysi eins og mér einni er lagið. Á sunnudagsmorgun fór ég í heimsókn til bróður míns og ætlaði ég mér að leggjast í sólina í fína hengirúmið hans þegar kaðallinn höfuðmegin slitnaði og ég datt á bakið. Þetta væri fyndið ef þetta væri ekki svona sárt. Ég varð ekki vör við afleiðingarnar alveg strax en er búin að fást við mikla verki síðan þá. Ég er búin að vera á vöðvaslakandi og hitapokum síðan þá. Ég þarf að drífa mig í sjúkraþjálfun og nudd til að ná þessu helvíti úr mér.
Annars er búið að vera nóg að gera hjá mér, mikill gestagangur og gaman.
Vinkona mín úr Pennanum er að vinna hjá mér í sumarafleysingum í Júlímánuði og býr hjá mér á meðan. Nú og svo kom mamma á fimmtudaginn og verður fram í næstu viku.
Um þessa helgi var Húnavaka, bæjarhátíð Blönduóss. Vegna hennar beint eða óbeint rötuðu Linda og Alexander í heimsókn til mín og hún Björk líka. Seinna komu kallarnir úr torfærunni og fengu líka smá kaffi og vöfflur áður en haldið var aftur heim á leið.
Kórinn minn tók þátt í hátíðarhöldunum bæði með því að vera með borð á flóamarkaði og með því að syngja á kvöldvöku. Mér skilst að atriðið okkar hafi tekist ágætlega. Eftir kvöldvökuna var skroppið aðeins að fá sér einn öl á Pottinum og Pönnuni. Í dag er ég búin að liggja mest í leti enda bakið að drepa mig eftir annasaman laugardag.
og hvað segið þið svo gott??

mánudagur, júlí 09, 2007

Borgin og landið, landið og útlönd

Þegar ég var barn, var ég í þeirri óvenjulegu stöðu að eiga enga að úti á landi eða í útlöndum. Vinkonur mínar fóru með fjölskyldum sínum í ferðalög til að heimsækja ættingjana úti á landi, hvort sem það var Bolungarvík, Vestmannaeyjar, Fáskrúðsfjörður eða Kjósin, austur, vestur, norður eða suður. Ég var bara úr Reykjavík og þar var allt mitt skyldfólk, eins óspennandi og það gat verið. Nokkrar vinkonur áttu kannski ekki heldur, frændfólk á landsbyggðinni en þær áttu þá náskylda ættingja í Noregi, Finnlandi, Danmörku eða Lúxembourg. Ekki var því að sæta hjá mér þá... ekki það að ég hafi ekki fengið að ferðast með foreldrum mínum á skemmtilega staði, og var þá líka öfundsverð af þeim sem heimsóttu ættingja víðsvegar um landið, þær sem ég öfundaði. Jæja svona er maður alltaf öfugsnúinn. En það var nú ekki það sem ég ætlaði mér að fara með þessu. Allavega sem barn var ég ekki með innsýn inn í lífið úti á landi, ekki raunverulega lífið. Það er allt annar hlutur að ferðast með túristum um landið en að búa inni á heimili í heimsókn. Síðar á æfinni fékk ég innsýn inn í raunveruleika lífsins í Svíþjóð og í Þýskalandi. En ég hafði þar til í fyrra ekki búið á stað minni en Reykjavík, ( ef frá er talin dvöl í nokkra mánuði). Sem áður sagði ég hef aldrei átt neina ættingja úti á landi, ég er eins hreinræktaður Reykvíkingur og þeir gerast. Báðir foreldrarnir úr Reykjavík og 3 af 4 foreldrum þeirra og eina ættina er meira að segja hægt að rekja alla vega 7 ættliði aftur til átjándu aldar í búsetu í Reykjavík. Lengra aftur en kaupstaðarréttindi Reykjavíkur. Ég hafði sem sagt aldrei séð út fyrir mölina þar til í fyrra. Af fyrra bragði hefði ég ekki getað ímyndað mér hvað sum fyrirtæki leyfa sér að veita landsbyggðinni lélega þjónustu. Ég var að kaupa þjónustu af Símanum um daginn, ég fékk mér ADSL og sjónvarp í gegnum ADSL. Svo ég fari nú ekki í gegnum þvæluna með að beiðnin barst aldrei og hin eilífu símtöl með að fá þjónustuna í gang. Nema hvað það er ekki fyrr en þjónustan er komin í gang að ég fæ að vita það að ég geti ekki fengið þjónustuna sem ég bað um. Ég pantaði nauðbeygð ( efni í annan pistil, úrval sjónvarpsrása) stærsta pakkann hjá símanum, því það var eina leiðin til að fá þær sjónvarpsrásir sem ég vildi. En því miður það er bara einn pakki í boði fyrir landsbyggðina, ég kváði, það stendur hvergi á heimasíðu símans né heldur á kynningarbæklingunum. Við pöpullinn á landinu verðum að sætta okkur við topp pakkann, sem inniheldur 8 stöðvar, þar af eru 2 sem mér gæti dottið í hug að horfa á. Restin er rugl og rusl. Grrrr þvílíkur dónaskapur, þessi staðreynd er ekki auglýst, í mínum huga er um að ræða vörusvik. En þar sem ekki þarf að taka það fram í auglýsingunni þá geri ég ráð fyrir að þetta sé eitthvað sem maður á að vita, búi maður á landsbyggðinni.

sunnudagur, júlí 08, 2007

Syndaaflausnir 2007

Martin Luther mótmælti syndaflausnum á sínum tíma, flestum samtímamönnum hans fanst ekkert athugavert við það að geta keypt sér syndaaflausn og getað þar með syndgað án samviskubits áfram.
Syndaaflausnir ársins 2007 felast helst í kolefnisjöfnun farartækja og heimstónleikunum Live Earth. Sem samkvæmt fréttum í dag eru alls ekkert svo grænir ef nánar er út í það farið, stjörnurnar ferðast á einkaþotum til að taka þátt í tónleikunum svo ekki sé minnst á ruslið eftir gestina. ...
Tískuorð ársins á íslandi, kolefnisjöfnun .... í mínum huga er það hreinn og beinn brandari.... alls staðar er þessu orði skeytt inn, allir vilja kolefnisjafna bílinn sinn eða flugmiðann sinn. En enginn hugsar um nærtækustu leiðina til umhverfisverndar, neyslujöfnun.... Sannleikurinn er sá að með neyslumynstri vesturlanda höfum við komið okkur í þann vanda sem við erum í dag. Með því að hvert heimili hugsi aðeins betur um neyslumynstur sitt og hvað fer á hauganna frá hverju heimili á hverjum degi þá væri mikið hægt að gera. Ef aðeins er hugsað út í það hversu mikið af nothæfum hlutum lenda í urðun á degi hverjum.. svo sem eins og frá íbúðum þar sem öllu er rutt út til að setja allt nýtt inn a la Innlit/Útlit, o.s.frv. tækninýjungarnar endast okkur aldrei lengi, við verðum að fá meira og nýrra. Raftæki eru ekki lengur byggð til að endast, ekkert má duga langt fram yfir 2 árin sem tækið er í ábyrgð, hver kannast ekki við það að farsíminn endist bara 1 mánuð fram yfir ábyrgðartímann. Þetta minnir mig alltaf á "Brave new world" . Eina leiðin til að halda hagkerfum heimsins gangandi er að við neytum meir og meir. Það er sá vítahringur sem við búum við, kolefnisjöfnun og live earth breyta þar engu um. Það er meiri kolefnisjöfnun fólgin í því að keyra ekki stuttar fjarlægðir og láta bílinn aldrei vera í lausagangi. Meira vit er að ganga út í sjoppu en að keyra þangað, hjóla í ræktina ( það er góð upphitun) frekar en að keyra þangað o.s. frv. en nei það er auðveldara að "kolefnisjafna" og keyra áfram bensínfrekustu bílum jarðar í stuttar vegalengdir innanbæjar.... Heimur versnandi fer og hana nú...

föstudagur, júlí 06, 2007

Ný færsla

Tjah Ásta mín ég hef bara fundið mér annað að gera en að horfa á sjónvarpið eða skrifa á bloggið. Maður tekur pínulítið mið af öðrum, það er hreinlega ekki mikið skrifað svona yfir hásumarið, almennt séð svona. Maður bara er ekkert að nenna þessu ef sólin skín. Ekki það að ég hafi haft tíma til að fara út í sólina.
Það er meir en nóg að gera í vinnuni og finnst mér það ekkert þægilegt að allir aðrir hérna hjá mér séu í sumarfríi.
Mig langar í sumarfrí núna.....
En jæja... það bíður.

Mig hlakkar til að fara heim um helgina, kýkja aðeins í sund kannski, finna sér eitthvað skemmtilegt að gera.
Næstu helgi er svo nóg að gera hér...

föstudagur, júní 29, 2007

Eitt og annað

Fyrst sjónvarpið er frekar lélegt í augnarblikinu og ég er of löt til að gera eitthvað af viti sem stendur þá skrifa ég nokkrar línur hér.
Það er ansi leiðilegt að vera ein á skrifstofunni þessa dagana, enda eru allir aðrir í fríi sem stendur. Úff ég lifi það af.
Það er nóg að gera í vinnuni og ætla ég því ekki í bæinn þessa helgina eins og undanfarnar 3 helgar. Heldur vinna eitthvað í þeim verkefnum sem bíða.
Bíllinn var líka í viðgerð og var ég ekki viss um að fá hann aftur í dag. Hann fer svo aftur á verkstæði á miðvikudaginni, ekkert alvarlegt bara eðlilegt slit á 10 ára gömlum bíl. Ég gerðist svo dugleg í kvöld og þvoði bílinn, enda hálf skammaðist ég mín fyrir útganginn á bílnum þegar hann fór á verkstæðið. Hann ber þess augljós merki að ég hugsa ekki eins vel um hann og fyrri eigandi. Mér fannst ég þurfa að þrífa hann fyrir næsta skipti rétt eins og allar konurnar sem hamast við að þrífa áður en húshjálpin kemur he he. Ég held ég láti einhvern annan taka hann í alþrif, ég bara meika ekki að hamast við að nudda alla bletti á bílnum og bóna hann. Svo sýnist mér ég þurfa að láta bletta í hann, steinakast á vegum landsins tekur sinn toll af lakkinu. Ég var heppin í vikunni að framrúðan skyldi ekki springa á ferð minni yfir Þverárfjall þegar steinn flaug í rúðuna.

fimmtudagur, júní 28, 2007

Lesarinn

hæ hæ
Ég er að uppgvötva nýjan hlut sem sparar tíma fyrir mig, yndislegt alveg. Þetta er Google Reader þar sem ég set inn allar þær Bloggsíður sem ég fylgist með og þá þarf ég bara að fara á einn stað, þar kemur fram hvort ný færsla hafi verið skrifuð síðan ég leit þangað inn síðast. Þá sleppur maður alveg við þennan eilífa rúnt á milli síðna.
Barasta nokkuð gott.

miðvikudagur, júní 27, 2007

Geysir

Ég verð að segja að ég er ósammála því sem formaður félags leiðsögumanna segir um aðstöðuna á Geysissvæðinu á mbl.is í gær. Hún segir að það þurfi lítið að bæta aðstöðu þar. Ég vona að það hafi verið svolítill útúrsnúningur hjá blaðamanni Morgunblaðsins frekar en skoðun hennar. Jú vissulega verður að treysta á almenna skynsemi hjá fólki og að það er mögulegt að eyðileggja upplifunina af staðnum með því að byggja og gera of mikið. En það er því miður svo að almenn skynsemi er hreint ekki eins almenn og af er látið. Ekki síst er hætt við að hún hverfi þegar forvitnin verður öllu öðru sterkari. Ég hef rasað út hérna áður um þetta málefni, þ.e. öryggismál ferðamanna og finnst ég soldið vera að endurtaka mig og ætla frekar að sleppa því að skrifa meira en að röfla bara svona út í eitt. Það er til nóg annað til að röfla yfir. Sérstaklega þegar ég er ekki að vinna við þetta eins og er, og ég hugsa að ég muni ekki gera mikið af því í framtíðinni heldur. Ég ætla bara að ferðast mér til gamans.

föstudagur, júní 22, 2007

á fartinni

er að reyna að komast út úr húsi í vinnuni, gengur illa. Alveg að komast út, fer heim, þarf að pakka smá saman og er þá komin af stað suður. Verð f. sunnan þessa helgina og svo mikil vinna í næstu viku. Þarf að sýna íbúðina á meðan ég er f. sunnan.
Er djööö þreytt, þarf að fá mér dekkri gardínur í svefnherbergið.

miðvikudagur, júní 20, 2007

Pakkar

Dagurinn í dag var góður, ég fékk tvær sendingar. Þvottavélin mín kom með pósti og rúmið mitt kom líka í dag með Flytjanda. Ég setti saman rúmið og hlakka mikið til að prófa það í nótt. Það er nokkuð víst að þetta er stærsta rúm sem ég hef nokkurn tímann átt. Svo er að sjá hvort ég sofi vel í því.
Þvottavélina er ég ekki búin að prófa því mig vantar smáhlut til að tengja hana, redda því á morgun. En sem sagt ég er að verða búin að koma mér fyrir hér. Ég fékk líka tvær fyrirspurnir um íbúðina í bænum, svo ég ætti að geta leigt hana út auðveldlega. Vonandi fæ ég almennilegan leigjanda, það er mesta óvissuatriðið. Hingað til vissi ég að ég væri með besta leigjanda sem ég gæti fengið, en því miður er hún að fara annað. Gott fyrir hana ekki fyrir mig he he.

Ég skráði mig í háskólann í dag líka, ég byrja í Diplómanámi í opinberri stjórnsýslu í haust, ef mér líkar það get ég fengið það metið upp í meistaranám í opinberri stjórnsýslu MPA.
Ef ekki þá hætti ég bara.

fimmtudagur, júní 14, 2007

hæ hó

Jæja ég ætla að koma í bæinn um helgina. Ég þarf að setja upp minnismiða um það sem ég þarf að gera um helgina svo ég gleymi því ekki. Svo getur maður vonandi gert eitthvað skemmtilegt líka.
Það er búið að vera soldið mikið stress í vinnuni en það er að lagast eftir daginn í dag. Nú fer kórinn að fara að herða sig í æfingum, það fer að líða að ferðinni okkar til Færeyja. Í dag heyrði ég að við munum víst syngja á Húnavökunni sem er bæjarhátíðin á Blönduósi í júlí. Svo nú verðum við að fara að vera dugleg.
Ég þarf að fara að klára að ganga frá íbúðinni hérna, fá mér þvottavél og nýtt rúm. En svo verð ég að fara að hugsa aðeins um sjálfa mig, því ég er orðin svo þjáð af vöðvabólgu að það er ekki fyndið. Ég finn spennu í kjálkunum svo það er líklegt að ég sé farin að gnísta tönnum á ný. Gvuð hvað ég er booooring í þessari færslu en svona er þetta stundum það er bara ekkert að segja.

þriðjudagur, júní 12, 2007

nettengingin komin

hæ hæ
Nú er tengingin komin, loksins loksins. En engin tími til að gera neitt, svo sem að fara að skanna allar gömlu myndirnar. Eða skrifa neitt af viti. Það er nóg að gera fyrir vinnuna. En ég skelli samt nokkrum myndum inn á myndaalbúmið fyrst ég er að þessu.

mánudagur, júní 11, 2007

nettenging heim

jæja ég er búin að panta nettengingu heim en hún virkar ekki einhverra hluta vegna, er á leið að kvarta. Þegar það er komið í lag get ég gert eitthvað heima þá fer ég kannski að skella inn fleiri myndum og svoleiðis.

miðvikudagur, júní 06, 2007

Frítt fyrir námsmenn í strætó

Ég sá á mbl.is að eitthvað er verið að ath möguleikana á því að hafa frítt f. námsmenn í strætó. Það er náttúrulega mjög sniðugt. Þegar ég var í mínu námi úti í þýskalandi þá var fyrstu árin engin stúdentaafsláttur á almenningssamgöngunum innanbæjar. En á einhverjum tímapunkti hafði stúdentaráði eftir langar og strangar viðræður við borgaryfirvöld komið því í gegn að stúdentaskírteininu fylgdi strætókort fyrir hálft ár. Það var að vísu ekki alveg ókeypis heldur var skráningargjald fyrir hverja önn hækkað, innan skynsamlegra marka og það gjald var fyrir strætókortið, hvort sem nemendur notuðu strætó eða bíl þá urðu allir stúdentar að greiða þetta gjald. Á móti greiddu borgaryfirvöld eitthvað niður, þetta var náttúrulega smápeningur sem við greiddum þarna í samanburði við fulla verðskrá í strætó. Vissulega voru nokkrir bíleigendur sem röfluðu yfir því að þurfa að greiða fyrir strætó þegar þeir notuðu almenningsamgöngur aldrei... en svo fór maður að hitta þessa einstaklinga í strætó. Fyrst þeir voru að borga fyrir þetta og svo er svo erfitt að fá bílastæði....

sunnudagur, júní 03, 2007

að koma sér fyrir

Ég er fyrir norðan þessa helgina og reyni að nýta tímann til að koma mér fyrir sem og að vinna eitthvað. Ekki hefur mér orðið eins mikið úr verki og ég ætlaði mér.
Svo verð ég langa helgi fyrir sunnan næstu helgi. Ég fæ mér frí á föstudaginn.
Mig vantar enn að kaupa 2 stóra hluti til að geta komið mér fyrir almennilega hérna. Mig vantar þvottavél og tvíbreitt rúm. Ég fékk gefins sófa sem komið var með í dag, hann er ljótur en þægilegur svo hann dugar mér, ég skellti bara gömlu rúmteppi yfir hann. Ég er búin að finna mér rúm í Ikea en það vantaði hlut í það svo ég gat ekki keypt það um daginn. Soldið vesen að vera svona langt í burtu, en það hefst. Svo þarf ég að mála eina hillu, vantar rétta lakkið í það, lakkið sem ég keypti er ekki að duga.
Ég er líka búin að vera að dunda mér við að ná 4 umferðum af málningu af gömlum náttborðum frá mömmu, það tekur sinn tíma þó ég notist við hitablásara til að losa málninguna af, en það er gaman að þessu dundi. Verst hvað þessu fylgir mikið drasl.
Svo á ég eftir að setja upp einhver ljós, mamma ætlar að koma og sauma gardínur, og svo þarf að bora fyrir nokkrum hillum og þá fer þetta að verða komið.
Á mánudaginn ætla ég svo endilega að panta adsl tengingu og fá mér líka sjónvarp um adsl.

miðvikudagur, maí 30, 2007

bloggedíblogg

Til að verða við áskorun ákvað ég að skrifa nokkrar línur, það getur verið svo leiðinlegt þegar svona síður deyja bara útaf. Netheimurinn er yfirfullur af vanræktum heimasíðum. Ég tók mér eina vanrækta heimasíðu í fóstur. Það er heimasíða Samtaka félagsmálastjóra á Íslandi, www.sfi.is. Sú síða hefur ekki verið uppfærð síðan 2003. Ég hef trú á að með einnar klukkustundar vinnu á mánuði væri hægt að viðhalda þessari síðu svo ásættanlegt sé fyrir þessi samtök. Allavega ákvað ég að reyna þetta fram til hausts, ef ekki gengur verður hún einfaldlega lögð niður.

Hvað er svo annað í fréttum, látum okkur nú sjá.. Linda og fallega fjölskyldan hennar er flutt heim á klakann. Íbúðin mín í Fellsmúlanum losnar aftur um næstu mánaðarmót, þá þarf ég að leita að nýjum leiganda. Þekkir einhver, einhvern sem hægt er að mæla með ....????

Ég var í bænum um síðustu helgi og hvað gerðist markvert þá, hmmm, ég fór í heimsóknir til Lindu og til Bjarkar, ég fór í Ikea og gat ekki keypt rúmið sem ég ætlaði að kaupa, verslaði eitthvað af öðru drasli, ég fór í sund með Guðdísi og bróðir minn setti nýja útvarpið í bílinn minn. Og þvílíkur munur sem það nú er... ég brenndi einn disk m. mp3 og þurfti ekki að skipta einu sinni um disk alla leiðina, diskurinn er enn ekki búinn. Gamla tækið var með kasettuspilara og var eitthvað farið að bila, flækti spólur og var með alls kyns aukahljóð.

Í dag gerðist ég dugleg og skrapp í blóðbankabílinn og gaf blóð, þetta var 5 skiptið sem ég gaf og fékk ég nælu gefins af því tilefni.

sunnudagur, maí 20, 2007

Reynisfjara

Ég get ekki hætt að hugsa um leiðsögumanninn sem var svo óheppin að vera með þennan hóp í Reynisfjöru í gær. Því þetta hefði getað komið fyrir hvern sem er.

Ég var að hugsa um það hvað það er auðvelt að gleyma að vara fólkið við hættunum á einum stað kannski í langri ferð, þó að það hafi ekki átt sér stað hérna. Því það er annað sem spilar inn í, hvort fólk sé að hlusta og hvort það taki mark á því sem þú segir. Ég hef verið að benda fólki sem var með mér á, að standa ekki í flæðarmálinu og hef æpt á fólk að vara sig þegar aldan kemur nær.

Ég hef samt aldrei verið eins nervus þarna og ég hef verið í flestum ferðum á Geysi. Úff það svæði er algjör skelfing, það er ekki hægt að bjóða ferðamönnunum upp á þetta. Viðvörunarskiltin eru lítil og auðvelt að yfirsjást, það eru engar girðingar bara smá kaðlar til að girða hverina af. Mjög margir taka ekkert mark á þessum köðlum og vaða bara yfir og alveg ofan í Geysi sjálfann. Ég hef alltaf varað fólkið mitt við öllum hættum þarna með mikilli áherslu á Geysi sjálfan og svo sér það annað fólk ganga þarna að og ef leiðsögumaður hefur ekki tvítekið fram hættuna þá eltir það þessa aðila hreinlega og hugsar ekki. Ég hef því verið að reka fólk í burtu, öskrað á það að fara, varað það við. Einu sinni var það íslendingur með erlenda ferðamenn með sér og hann öskraði á mig til baka að skipta mér ekki af. Ég var svo gáttuð að ég þagnaði.
Ég þekki leiðsögumann sem bjargaði lífi fólks með svona afskiptasemi á Geysi og það var í fréttunum fyrir nokkrum árum, því Geysir tók að gjósa um leið og hún kom fólkinu í burtu, en svæðið hefur samt ekki batnað síðan þá. Það er hreinasta kraftaverk að ekki hafi orðið eitt eða fleiri dauðaslys á ferðamönnum þarna.

Það var af öryggisástæðum sem ég hætti að fara í ferðir með hópa sem tala mér ókunnugt tungumál. Þ.e.a.s. hópa sem eru með fararstjóra sem taka við míkrófóninum og tala allan tímann við hópinn, miklu meira en ég kem að við fararstjórann sem eiginlega á að þýða það sem ég segi. Mér finnst þeir alltaf tala miklu meira en ætti að vera bein þýðing, og svo skilur maður ekki orð af því sem þeir segja og getur ekki verið viss um að skilaboðin skili sér. Ég var með tékkneskann hóp á Reykjanesinu og síðar Geysi og átti ég í mestum vandræðum með þennann hóp og hópstjórann.Og var með hjartað í buxunum allann tímann. Ég hefði þá þurft að bera ábyrgðina ef slys hefði orðið og fólk hefði ekki vitað af hættunni. Svo ég fer bara ekki í svona ferðir meir.

Ég hef tekið það fram við ferðamennina þegar ég er með allar þær viðvaranir sem nauðsynlegar eru í svona ferðum, að ég hafi lært skyndihjálp en ég hafi aldrei þurft að nota hana og sé því ekki viss hvort ég sé góð í henni og vilji hafa það þannig áfram.

komin heim

Ég er komin heim eftir góða viku í svíþjóð. Við fengum flottari bíl en við pöntuðum, Mazda 5, það var svo gott að keyra hann að ég sakna hans ennþá. Minn bíll var óskemmtilegur eftir þetta en jæja ég verð að lifa með því. Ég verslaði dálítið, eitthvað fyrir heimilið, einhver föt og eitthvað af snyrtivörum. Svo fékk ég heilmikið af tölvutengdu dóti, forrit og leiðbeiningar og afrit af myndum hjá Ingó og Torfa. Ég sat í gær og horfði á gömul heimavideo frá 1988 ég bæði hló og grét yfir þessu. Krakkarnir voru öll svo lítil, (tvö ófædd ennþá) þetta var tekið árið sem þau fóru út, 1/2 ári fyrr. Þarna voru upptökur frá sjoppunni sem ég og systir mín unnum í, upptökur af okkur báðum að afgreiða, upptökur af mér að skúra gólfið eftir lokun. Upptökur af ættarmóti af tilefni 80 ára afmælis hennar ömmu. En að mestu leyti krakkarnir að leika sér og allt í kringum það.
T.d. Magga segir við mömmu sína að hún væri allra allra besta mamma í heimi ef hún leyfi sér að fara í sund,
Ingibjörg: ég er kannski besta mamma í heimi en konurnar í sundlauginni leyfa það ekki
Magga svarar: þá ert þú ekki besta mamma í heimi
Ingibjörg: konurnar í sundlauginni leyfa það ekki fyrr en þú ert orðin 8 ára og þú ert bara 4 ára
Magga: af hverju?
Ingibjörg: af því þú ert bara 4 ára en bráðum 5 ára.
Magga: Hvenær, í dag?

Ég var búin að gleyma því hvað Magga var alltaf að flýta sér að verða stór, hún hélt alltaf að hún gæti allt og væri eldri en hún var, he he að ætla sér ein í sund 4 ára.

laugardagur, maí 12, 2007

Kveðja frá svíþjóð

Jæja þá er fermingin yfirstaðin,og nú er bara að bíða eftir júróvisíón og kosningasjónvarpi á netinu og jafnvel eitthvað farið í Singstar. Við fengum þrátt fyrir spá um annað fínasta veður í dag,sól og ca 18-20 stiga hiti, vonandi fáum við svona veður það sem eftir er ferðarinnar þá kannski kemur maður með smá lit heim. Fermingarbarnið fékk óskir sínar uppfylltar,það eina sem hún óskaði eftir var að fá pening í fermingargjöf, og það tókst næstum því hún fékk líka 3 skartgripi.
Hún ætlar að fá sér rosalega fína myndavél með alls kyns aukahlutum linsum og græjum og hún fékk næstum því nægan pening fyrir því, hún þarf að afla sér smávegis sjálf.
Annars er lítið planað næstu daga nema eins og 2 dagsferðir, einu sinni til Jönköbing og einu sinni til Ullared. Svo verður náttúrulega tekin ein dagsferð til Köben á fína bílaleigubílnum þegar við förum heim.

mánudagur, maí 07, 2007

Á hraðferð

Ég var að koma af fundi núna rétt f. kl 5 og svo þarf ég að fara að koma mér af stað suður. Ég þarf að vera í Reykjavík á morgun og svo aftur hér fyrir norðan á miðvikudag, svo þetta er algjör hraðferð. Suður í kvöld, norður seinni partinn á morgun, suður aftur miðvikudagskvöld, flýg út á fimmtudag og verð viku í Sverige, þannig að á fimmtudag á ég líka langa ferð framundan. Flug til köben og síðan með bílaleigubíl í 4 tíma. Og það er ég sem keyri, mamma er ekkert að keyra ef það fæst einhver annar í það. Svo engin bjór í fluginu handa mér, uss uss, ég er hvort eð er hætt því að fá mér bjór í flugi, maður þrútnar svo af því.

laugardagur, maí 05, 2007

Flutningar

Jæja það gekk ýmsilegt á í gær, ég var að vinna til 4 kláraði að pakka kl 5 og þá komu nokkrir hjálparkokkar og hjálpuðu mér að flytja á 2 tímum. Ég var flutt fyrir fréttir, sem betur fer. Ég er búin að flytja 3 sinnum á rétt tæpu ári núna og mér finnst það ekki gaman. Í bæði hin skiptin fékk ég aðstoð með einn kerrufarm, þ.e. stóru hlutina, húsgögnin. En tók alla smáu hlutina í endalausum ferðum með eigin bíl, alein. Það er ekki málið þetta sé mér ofviða, en þetta er þreytandi og lýjandi enda mikið að bera alla þessa kassa og tekur allt of langann tíma. Svo þetta voru viðbrigði að fá svona mikla hjálp og geta lokið þessu af á þetta stuttum tíma. Júhú... svo er ég meira að segja búin að þrífa gömlu íbúðina. Nýtt heimilisfang er Húnabraut 42.
Nú er allavega nóg að gera hjá mér, verð að drífa mig í búðina.