Dagurinn í dag var góður, ég fékk tvær sendingar. Þvottavélin mín kom með pósti og rúmið mitt kom líka í dag með Flytjanda. Ég setti saman rúmið og hlakka mikið til að prófa það í nótt. Það er nokkuð víst að þetta er stærsta rúm sem ég hef nokkurn tímann átt. Svo er að sjá hvort ég sofi vel í því.
Þvottavélina er ég ekki búin að prófa því mig vantar smáhlut til að tengja hana, redda því á morgun. En sem sagt ég er að verða búin að koma mér fyrir hér. Ég fékk líka tvær fyrirspurnir um íbúðina í bænum, svo ég ætti að geta leigt hana út auðveldlega. Vonandi fæ ég almennilegan leigjanda, það er mesta óvissuatriðið. Hingað til vissi ég að ég væri með besta leigjanda sem ég gæti fengið, en því miður er hún að fara annað. Gott fyrir hana ekki fyrir mig he he.
Ég skráði mig í háskólann í dag líka, ég byrja í Diplómanámi í opinberri stjórnsýslu í haust, ef mér líkar það get ég fengið það metið upp í meistaranám í opinberri stjórnsýslu MPA.
Ef ekki þá hætti ég bara.
3 ummæli:
Hæ - takk fyrir afmæliskveðjuna :-D
jæja var ekki gott að sofa
í nýja rúminu
hafðu það gott sæta mín
kv Björk
Alltaf brjálað að gera hjá þér:) Nú getur þú allavega þvegið þvott og sofið vel.............
Skrifa ummæli