sunnudagur, júlí 15, 2007

Sunnudagur

Fyrir viku síðan varð ég fyrir undarlegu slysi eins og mér einni er lagið. Á sunnudagsmorgun fór ég í heimsókn til bróður míns og ætlaði ég mér að leggjast í sólina í fína hengirúmið hans þegar kaðallinn höfuðmegin slitnaði og ég datt á bakið. Þetta væri fyndið ef þetta væri ekki svona sárt. Ég varð ekki vör við afleiðingarnar alveg strax en er búin að fást við mikla verki síðan þá. Ég er búin að vera á vöðvaslakandi og hitapokum síðan þá. Ég þarf að drífa mig í sjúkraþjálfun og nudd til að ná þessu helvíti úr mér.
Annars er búið að vera nóg að gera hjá mér, mikill gestagangur og gaman.
Vinkona mín úr Pennanum er að vinna hjá mér í sumarafleysingum í Júlímánuði og býr hjá mér á meðan. Nú og svo kom mamma á fimmtudaginn og verður fram í næstu viku.
Um þessa helgi var Húnavaka, bæjarhátíð Blönduóss. Vegna hennar beint eða óbeint rötuðu Linda og Alexander í heimsókn til mín og hún Björk líka. Seinna komu kallarnir úr torfærunni og fengu líka smá kaffi og vöfflur áður en haldið var aftur heim á leið.
Kórinn minn tók þátt í hátíðarhöldunum bæði með því að vera með borð á flóamarkaði og með því að syngja á kvöldvöku. Mér skilst að atriðið okkar hafi tekist ágætlega. Eftir kvöldvökuna var skroppið aðeins að fá sér einn öl á Pottinum og Pönnuni. Í dag er ég búin að liggja mest í leti enda bakið að drepa mig eftir annasaman laugardag.
og hvað segið þið svo gott??

3 ummæli:

Lindin sagði...

Heyrðu, takk kærlega fyrir okkur :) :) Þetta var nú aldeilis fínt hjá þér, allir nema bílstjórinn hrutu hálfa leiðina í Hvalfjörðinn. Veitingarnar hjá þér, varðeldur og skírnarveisla, maður minnkar ekki þessa helgina frekar en vanalega...

Björk sagði...

hæ hæ takk fyrir mig
það var mjög gaman að kíkja á þig

Nafnlaus sagði...

Auður mín, þú ert snillingur;)