sunnudagur, desember 19, 2004

Bakverkur

Ég ákvað að takast á við þunglyndispúkann með því að hafa nóg fyrir stafni og eyddi laugardagskvöldinu í þrif. Skúra skrúbba bóna. Dúkurinn var orðinn soldið slæmur, skúraði 4 sinnum yfir gólfið svo það væri almennilega hreint áður en ég bónaði. Afraksturinn er fínt gólf en líka hryllilegur bakverkur. Ég veit ekki hvernig ég fór svona með bakið á mér ég er alveg að drepast. En samt má ég ekki vera að því að slaka á því ég er ekki búin að versla nokkurn skapaðann hlut til jólanna. Hvorki gjafir mat né skraut.
Hlynsi kom áðan að setja upp eldhúsviftu sem ég fékk frá þeim, þegar þau skiptu út. Hann kom líka með kommóðu sem þau voru að losa sig við, gat samt ekki tekið með sér kommóðuna sem átti að fara í Sorpu í staðinn. Sem var kannski eins gott því ég fann annan stað fyrir þessa kommóðu og nú á borð að hverfa á Sorpu í staðinn. Stundum er betra að hugsa málið. Hann kom líka með gömlu ryksuguna hennar mömmu, og ég veit ekki hvar ég á að geyma hana. Geymslan er troðfull. Ég þarf að endurskipuleggja þetta allt, en allavega þarf ég ekki lengur að stelast í ryksugu húsfélagsins.

fimmtudagur, desember 16, 2004

jólahvað

Börkur bróðir minn er 50 ára í dag, oh my god, hvað maður er orðinn gamall ef systkini manns eru orðin þetta gömul. Hálfrar aldar gamall drengurinn, hann lítur nú ekki út fyrir að vera svo gamall heldur sér vel kallinn.

Annars er ég ekkert svo kát þessa dagana, melanchólian að drepa mig. Nenni ekki neinu jólaveseni, best að ljúka þessu dæmi af sem fyrst.

Minnimáttarkenndin líka að fara ílla með mig, orðin þetta gömul og hef engu áorkað. Bla bla bla.

sunnudagur, desember 12, 2004

hummpf

best að gleyma þessu sem allra fyrst :0(
Karlmenn hummpf gleyma þeim.

mánudagur, desember 06, 2004

Aha

Aftur eru liðnar vikur milli frásagna, en ég leiðinleg.
Er að druslast í jólaundirbúningin, það verða economisk jól þetta árið.
Fékk litlu frændurna í gistingu á föstud. kv. gaman gaman, ég bakaði meira að segja með þeim jólasmákökur. Það er nebbnilega ekkert gaman að gera það ein. Svo var bara hammari í kvöldmat og horft á spólur til kl 1. Þeim fannst gaman og mér líka.
Ég var að hengja upp jólaljós í eldhúsgluggann, það er alltaf jafn kósí að setja upp ljósin.
Byrjaði á að skrifa jólakortin í kvöld, það er alltaf sama málið, allar adressur út um allt skrifaðar í hina og þessa dagbókina eða adressubókina eða staka miða, uhum hvar eru miðarnir?? Ég var svo dugleg í fyrra að setja allt í tölvuna sem svo hrundi of coarse. hihi corse. Sem minnir mig á það Backup ;0)
Þarf að skipuleggja mig betur what else is new.


þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Snjór

Já nú er sko farið að snjóa, ég ætla í göngutúr á eftir í nýföllnum snjónum. Það er best að njóta á meðan hann er ferskur og svo veit maður ekki hversu lengi hann endist.

mánudagur, nóvember 15, 2004

Og það er farið að snjóa, en það er samt engin afsökun fyrir jólalögum í útvarpinu 14/11 Posted by Hello

laugardagur, nóvember 13, 2004

uhum

feel half forgotten!!!!

föstudagur, nóvember 12, 2004

12.Nóv

í tilefni dagsins fór ég inn á spámaður.is og hugleiddi hvað dagurinn í dag byði upp á.
Fyrt dró ég venjuleg spádómsspil og fékk þetta:

XIII - Breytingar
Samhliða spili þessu ættir þú ávallt að hafa hugfast að hugsýn þín er andlegur veruleiki, og allt það sem til er í veröld þinni var fyrst til á andlegu sviði. Fyrst kemur hugmyndin eða óskin og síðan fylgir hið þykka efni á eftir. Að baki hugsýna þinna er mikill kraftur. Þessi kafli er á enda og nýr um það bil að hefjast. Tilefni er til fagnaðar þegar breytingarnar eiga sér stað. Umtalsverðar breytingar munu fyrr en síðar eiga sér stað. Hér eru á ferðinni breytingar til batnaðar. Brúðkaup, nýtt starf eða flutningar gætu verið svarið við spurningu þinni en mundu að breytingar geta verið erfiðar til að byrja með og aðlögunarhæfni þín gæti komið sér vel. Þú tekur breytingunum með gleði í hjarta. Ekki verður aftur snúið þar sem þú gefur fortíðina upp á bátinn og tekur opnum örmum utan um framtíðina og tækifærin sem bíða þín

Svo dró ég ástarspil og fékk að heyra þetta:

mynt
Hér heldur þú huga þínum opnum og fordæmir ekki gjörðir annarra. Þú kannt að vera feimin/n við einhvern sem þú umgengst hér en hleypir viðkomandi ekki inn í skel þína því þú kýst af einhverjum ástæðum ekki að kynnast manneskjunni náið. Hér kemur fram að þú bæði vilt og óttast náin kynni og óttast þau án efa vegna hættunnar á að afhjúpa þig og missa jafnvel stjórnina á eigin tilfinningum.Taktu þinn tíma og ekki hika við að starfa í þágu fólks af sanngirni og auðmýkt. Hógværð þín getur reynst þér vel þegar fram í sækir og er án efa heillandi eiginleiki í fari þínu. Innra auga þitt sér og skilur að náunginn skiptir ekki ávallt mestu máli þegar stærra samhengi er skoðað.

Funny en hér eru sannleikskorn á ferð að einhverju leiti.

Stjörnuspá dagsins er svohljóðandi:
Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)Lánið eltir fólk fætt undir stjörnu sporðdreka. Hér birtist fyrirboði um að þú sért laus við vandamál og fjárhagurinn verði rýmri þegar líða tekur á lok ársins. Þér mun takast að snúa aðstæðum þér í hag þegar þú hlustar á huga þinn og hjarta þegar kemur að verkefni sem tengist starfi þínu eða áhugamáli jafnvel. - Hlustaðu gaumgæfilega og horfðu betur í kringum þig.

Ég hef líklegast ekki ástæðu til annars en að vera í góðu skapi í dag. eller hur
Enjoy your day.
Peace love and understanding
Ausinn

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

hó hó

Fyrst það eru þvílík tíðindi að ég bloggi eitthvað að viti að lesendur fái hreinlega sjokk þá er um að gera að halda þessu uppi.
En varla sjokkera ég mikið núna, mér er runnin reiðin og viðkvæmnin tók við. Bögger, kann betur við reiðina, hún er betri meðal almennings.
Ég var að skrá mig atvinnulausa í dag og þurfti pappíra frá gamla vinnustaðnum, svo ég heilsa upp á fólk í leiðinni og fæ mér kaffi. Ég fer ekki í kaffi þangað á næstunni.
Merkilegt hversu mikið ein spurning getur verið átakanleg. "Ertu búin að fá vinnu" verður að óþolandi poti og staðfestingu á því að maður sé ömurlegur. Þegar ég var að reyna að ýta þessu frá mér kom "já þú ert bara að sækja um sérstaka vinnu" grrr get lost.
Hvað varð um "sæl!" eða "hvað segirðu!" eða jafnvel "hvernig gengur". Og verandi á þessu tímapunkti klukkutímanum áður en túrinn byrjaði, vöknaði mér um augu ég er soddan vælukjói og þoli það ekki við sjálfa mig. Að lokum þegar hálft fyrirtækið var búið að heilsa mér á þennan hátt, þá bað ég fólk um að spurja ekki lengur og forðaði mér.
Bölvaður dónaskapur er þetta, eins og að spyrja fólk sem er að koma úr meðferð, "ennþá þurr??" Eða hjón í hjónabandserfiðleikum "hangið þið enn saman?" Eins og að maður myndi ekki láta það fréttast um leið og tækifæri gæfist að maður væri komin í alvöru vinnu. Ég vil nú ekki þykjast eitthvað, því allt kemur upp um síðir, eins og sannaðist með eina sem hætti að vinna þarna og mátti víst ekki segja frá nýja vinnustaðnum og reyndist vera farin í vændið.
En ósköp langar mig til að segjast gera eitthvað flott, nei come on ég er yfir það hafin hvort eð er. Ég var of góð fyrir þennan stað og er það enn, ég verð bara að vera grimmari.

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

rambling on and on

Ég verð víst seint tilnefnd sem bloggari ársins. Lazy ass!!
Í atvinnumálum er ekkert að frétta. Sæki um ýmislegt osfrv. Ekki meir um það.
Ég hef verið að fikta í endurbótum heima hjá mér, stundum held ég að ég sé biluð. Hvað í andsk. var ég að hugsa að eyða svona miklum tíma í eitthvað sem mun aldrei líta vel út hvort eð er. Hver dáist að klósettsetum svo sem?? Ég keypti cheap furu klósettsetu, pússaði af henni lakkið, hvíttaði og lakkaði aftur. Fjandans lakkið var frekar gulleitt svo það er gul slykja á þessu helv., smekklegt huh. En ég nenni ekki að gera neitt meira við þetta helv., svo ég verð að sætta mig við þetta eins og þetta er.
Næst er að smíða baðhillur og svo bókahillu. En ætli ég sé ekki að fara á túr, ég man aldrei hvenær, en það er besta skýringin á bölv. skapinu í mér núna í augnarblikinu. Shh ekki segja neinum að ég fái PMS. Best að ég taki bara til og framkvæmi ekki nokkurn skapaðann hlut, endar bara í vitleysu í þessu skapi.
Fór á djammið á föstud., doldið dúllerí í gangi en as always fær mann bara til að hætta að vilja meir. Trainwreck
Nú fer ég á næstu dögum að fá mér ADSL þetta er óþolandi tenging orðið.
Ég keypti mér myndavél í köben en er ekki farin gera mikið með hana ennþá, núna ætla ég að prufa að setja myndir á bloggið í fyrsta sinn.

Jetzt kriegt man schwarze Kerzen, endlich Posted by Hello
Kopenhagen wo ich die Kamera gekauft habe.  Posted by Hello
klósettsetan fræga bleh Posted by Hello
bara sama myndefni og aðrir vink ;0) Posted by Hello

mánudagur, nóvember 08, 2004

You are Marilyn Monroe!
You're Marilyn Monroe!

What Classic Pin-Up Are You?
brought to you by

mánudagur, nóvember 01, 2004

long time no see!!

Ég er sem sagt að byrja að skrifa aftur, enda komin tími til. Ég hef þetta ekki langt að sinni því ég á að fara að sofa á skikkanlegum tíma.
Ég var að fá íbúðina metna svo ég geti fengið lífeirissjóðslán, hún er metin á 8,4 ég keypti hana í mars 03 á 6,55. Það er ansi mikil hækkun á þetta stuttum tíma og ég er ekki byrjuð á breytingunum sem ég búin að plana. Eignarhlutfall mitt í íbúðinni hefur þá hækkað svakalega.

Annars er ekkert komið hjá mér í atvinnuleitinni, ég var í verkefni hjá Hagstofunni í 3 vikur af oktober. Nú vil ég endilega gæda eitthvað á meðan ekki er neitt annað, en þetta er kannski ekki besti árstíminn. Ég fór nú samt í Gullfoss í gær 12-22:30, með alþjóðlegan hóp frá rauða krossinum sem var á fundi hérna. Endað var með kvöldmat á Valhöll. Smá peningur þar.
Svo komst ég í samband við þjóðverja sem er að vinna fyrir þýsk-íslenska verslunarráðið í gegnum vefsíðuna open buissness club (openbc.com) og getur verið að ég fái einhver verkefni við þýðingar. Þannig að ég get haldið mér á floti eitthvað áfram. En helvítis óöryggið og það að þurfa að selja sjálfa sig til "mögulegra atvinnuveitenda" er þreytandi.

miðvikudagur, september 22, 2004

Tölvur eru algjört drasl

tölvan mín er í lamasessi, get ekkert gert í bili. Bíð eftir að fá hana í gang aftur, maður er handa og fótalaus þegar maður er tölvulaus. Skrepp með Mömmu í 2 daga til köben í næstu viku. Hún er að fara til systir minnar til að hugsa um hana næstu mánuðina, ég fékk 5000 króna inneign hja´Icelandexpress og ákvað að nota það svona. 15 þús í flug mamma borgar hótel og mat.

laugardagur, september 11, 2004

Hmmmm

Jamm, ekki búin að ráða mig í vinnu ennþá. En það kemur, ég er ekki með miklar áhyggjur bara smá.
Það er hálfgerður bjáni sem er atvinnulaus og heldur áfram að eyða peningum eins og ekkert sé, búin að versla soldið undanfarið. En ég er ekki að fara á hausinn alveg strax, ætla að fá lán hjá lífeyrissjóðnum til að lagfæra skammtíma skuldastöðuna, ég tími ekki að endurfjármagna húsnæðislánin, þrátt fyrir lægri vexti, kostnaðurinn er of hár.

Fyndið ég hætti í fyrradag og þurfti að koma við aftur í dag því að sú sem tók við af mér fann ekki einhver skjöl í tölvunni, ok við tékkuðum á tölvunni sem ég hafði verið með og náttúrulega var búið að loka fyrir aðganginn. Það er fljót gert, strax engin merki um mann lengur.
Ég fékk fallega kveðjugjöf frá starfsfélögunum og ferðatösku í kveðjugjöf frá fyrirtækinu, mjög viðeigandi "hit the road" skilaboð.
Er með meiri áhyggjur af öðrum í umhverfi mínu, þetta fer alveg með mig.


föstudagur, september 03, 2004

Atvinnulaus

ég er atvinnulaus frá og með næstu viku!!

mánudagur, ágúst 16, 2004

Frábært

Ég var að fá frábærar fréttir, alltaf gaman að heyra af hamingju annara.
Til hamingju dúllan mín, ég veit þú lest þetta. Þið eruð líklega bara tvær sem ´kýkið inn á þetta hjá mér.
Þú átt allt það besta skilið.

Ég hef ekki verið dugleg að skrifa ég veit.

Ég var að taka að mér nýja aukavinnu um daginn, til viðbótar við allar hinar vinnurnar. Ég var að þýða úr þýsku á íslensku og fannst það rosalega gaman. Gyða hringdi í mig því bossinn hennar þurfti að fá þetta þýtt og vantaði einhvern sem kynni þýsku og væri klár. Gaman að hún hugsaði strax til mín.
Eitt verkefni getur alltaf leitt til annars....
Ég hafði einmitt verið að bölva þessum vitleysingum sem þýða fyrir sjónvarpið, sá um daginn þýskan þátt í RÚV sem var einmitt svo ílla þýddur að merkingin snérist upp í algjöra vitleysu.

´Hringdi í dag til að forvitnast um umsókn sem ég sendi rannsóknarstofnun háskólans á Akureyri. Það voru ´víst ekki nema 12 sem sóttu um þessar 2 stöður, mér líkar þessar líkur ágætlega 1 á móti 6. Betra en um það bil 100 um eina eins og oft hefur verið um þessi störf sem ég hef sótt um.

Núna verð ég að klára eina sem ég þarf að skella inn á pr stofu.