þriðjudagur, febrúar 04, 2003

Ég hef stundum notað þessa síðu til að losna við kergju og leiðindi af sálinni. Þó það geti verið ansi leiðinlegt lesefni. Það er bara svo gott fyrir sálarlífið að losa sig við þetta. Þannig getur það litið þannig út eins og ég sé eingöngu fúll á móti, en það er langt því frá. Þetta er bara therapía. Ég er fúl og leiðinleg í dag vegna vinnunar, stress og leiðindi. Alltaf að auka við mann verkefnin og kvartað þegar ekkert er afgreitt eins vel og óskað er eftir. Ég hef tekið þá ákvörðun að biðja um kauphækkun og óska eftir því að geta unnið yfirvinnu til að ná því sem ég á að gera. Annars gengur þetta ekki upp. Ég er 2 manna maki þegar greiðslan passar, ha ha.
Það sem fer hvað mest í taugarnar á mér er að það sé svo sjálfsagður hlutur að maður taki að sér fleiri verkefni. Mér findist það sjálfsagt að maður sé spurður álits en ekki bara látin vita eftir að glæpurinn hefur átt sér stað. Það er óvirðing við mann. Og þar að auki að setja þetta á mann á annasamasta tíma mánaðarins.
Þar af leiðandi er ég very pissed í vinnunni í dag, en ég hætti að vera pissed um leið og ég kemst héðan út. Ha ha ég læt þetta ekki á mig fá eftir vinnu.
það hjálpar að kvarta og kveina til að geta andað léttar.
Ég á svo skemmtilega tíma framundan hvort eð er með íbúðina og allt það.
Lucky me.

mánudagur, febrúar 03, 2003

Fyrir helgi var tilboði mínu í Fellsmúlann tekið. En hins vegar ´kom í ljós að greiðslumatið dugar ekki þ.e. það miðast við 90 % lán. Ég var ekki viss hvort ég vildi 90% lán á þessum tíma en miðaði við það í greiðslumatinu bara upp á sénsinn ef þess yrði þörf. Nú sit ég í súpunni, tilboð mitt gengur ekki út frá því. 'Eg verð að fara í bankann núna á eftír og reyna að redda þessu einhvernveginn.
Svo þegar greiðslumatinu hefur verið reddað, fer ég aftur til fasteignasalans og hann getur þá sótt um húsbréfin fyrir mig. Svo tekur það u.þ.b. 10 daga þar til hægt er að skrifa undir kaupsamningin. Þannig að ég verð í fyrsta lagi flutt inn eftir u.þ.b. 1/2 mánuð.
Ásta vinkona mín er að rýma íbúðina hennar ömmu sinnar þar sem að amma hennar mun aldrei komast út af sjúkrahúsinu framar. Hún gefur mér heilmikið af dótinu hennar ömmu sinnar. Auk þess sem ég geymi nokkur húsgögn fyrir hana í ófyrirséðan tíma. Þ.e. flott gamalt sófasett og borðstofuborð og stóla. Nú get ég bara ekki ímyndað mér hvernig ég á að koma hlutunum fyrir. Ég þarf soldið að pæla í því, í það minnsta verður íbúðin ekki lengur hálftóm.
Ég get bara ekki beðið, ég er í ýmsum pælingum hvað málningu og slíkt varðar.

fimmtudagur, janúar 30, 2003

Mikið er nú Ausinn sybbinn í dag, þrátt fyrir að hafa farið í rúmið á skikkanlegum tíma. Ég svaf ágætlega held ég, en samt langar mig heim í bólið á ný.
En nýjustu fréttir eru þær að það var hringt út af Fellsmúlanum í gær og það er s.s. komið samþykki fyrir sölu. Ég fór aftur að skoða íbúðina í gær og ætla að fara á fasteignasöluna á eftir. Ég tók, Hlyn, Lindu og Larissu með mér að kýkja á hana í gær. Þau höfðu ekkert út á hana að setja og er þar með allt komið á hreint.
Já Linda er komin aftur til landsins. Pinky !!
Námskeiðið mitt er virkilega að hafa áhrif, mér líður mjög vel. Ég hef mikla trú á þessu.

þriðjudagur, janúar 28, 2003

Já í gærkveldi fór ég með Larissu á Kaffi Viktor þar sem við sátum og kjöftuðum til kl. hálf eitt.
Ég drakk of mikið kaffi og svaf ílla af þeim orsökum. So what else is new
Húsnæðisleitin heldur áfram, í gær skoðaði ég Grænuhlíð. Í dag gerði ég svo tilboð í hana. Kannski ef til vill heldur lágt en það verður bara að hafa það. Annað hvort fæ ég gagntilboð eða ekki. Það eru fleiri íbúðir á markaðnum, ég bara held áfram að leita.
Hins vegar er ég orðin dáldið þreytt á þessu og vildi gjarnan fara að koma mér fyrir.



mánudagur, janúar 27, 2003

Þá er það komið á hreint, ég fæ ekki íbúðina í Fellsmúlanum.
Húsfélagið taldi sig geta selt íbúðina með meirihluta atkvæða en svo er ekki. Allir hlutaðeigandi verða að samþykkja söluna. Og þar sem einn íbúðareigandi í húsinu setur sig upp á móti sölunni þá er ekki hægt að selja. Sem sagt skák og mát.
Þetta blessaða fólk hefur ekki getað séð sér fært að svara tilboði mínu ennþá, það er í raun runnið út. Tíminn var settur á kl13 á laug. Hmmm, mér var sagt á laugardag að því miður hefði ekki náðst í alla í húsfélaginu og það væru ekki allir sáttir. Vegna tekjutengingar, hvernig svo sem á því stendur eða hvað það þýðir þá er ég orðin soldið pissed.
Ég breyti þessu tilboði ekki nema niður á við... ef að það er eitthvað frekara vesen á þeim þá gleymum við þessu alveg.

Ég er auðvitað bara hluti af massanum, þ.e. ég er alveg jafn forvitin og restin af þjóðinni og náði mér í aðgang að islendingabok.is , ég komst að því að nánast allir sem ég þekki eru skyldir mér á einhvern hátt. Flestir náttúrulega langt aftur í ættir, oftast var það í 6-9 lið. Einungis hjá einni manneskju kom fram "enginn skyldleiki fannst"
og það var hún Inga María úr saumaklúbbnum mínum. Ég er skyld Lindu í gegnum móðurætt hennar og föðurætt mína, Larissu í gegnum föðurætt hennar og móðurætt mína. Báðar í svona um 6-7 ættlið.
Maður er farin að taka undir það sem vinir mínir úti hafa alltaf sagt, íslendingar eru allir skyldir.

föstudagur, janúar 24, 2003

OK ég fékk móttilboð sem hljóðar upp á 6,55 mill, sömu skilmálar og greiðsludags. og ég var með í tilboðinu mínu. Bara hærra.
Nú er ég í alvöru að spekúlera í því hvernig ég geti borgað milljón sem ég ekki á á árinu. Ég get borgað útborgunina strax án vandkvæða, en er að pæla í restinni. Það er náttúrulega erfiðara að spara þegar maður er komin í eigið húsnæði. Ég neita hins vegar að taka 90% lán. Ég redda mér einhverju láni, hjá bankanum eða eittvhað.
Ég kýs líka að taka 25 ára lán í stað 40 ára láns. Því að þó að afborganirnar séu hærri, er til lengri tíma litið eignaaukningin hjá manni mun betri. Þ.e. maður eignast meira í íbúðinni. Og með eigin fjármögnun á 30% íbúðar, þá er þetta dæmi ætlað til að eignast sem mest í íbúðinni.
Ég þarf eflaust að skrimmta mikið allt þetta ár. En svo að því loknu er þetta pís of cake. En þrátt fyrir það ætla ég að fara út um páskana, það er must!!!! Ég þarf einhverja aukavinnu sem fyrst á kvöldin og um helgar.

fimmtudagur, janúar 23, 2003

Jæja ég var að gera tilboð í íbúð. Ég veit ekki hvort að það dugar eða hvað en í það minnsta eru 2 tílboð í gangi í einu. Íbúð þessi er í Fellsmúla 16, kjallari. Ég fæ að vita á morgun hvort að tilboðinu verður tekið. Ég get ekki annað en viðurkennt að ég er stressuð /spennt. Þó að ekki sé um draumaíbúð að ræða held ég að ég geti samt lifað fínu lífi þarna.
Einn helsti kostur íbúðarinnar er sá að hún er tóm, afhending væri við undirskrift og það er hægt að flytja inn strax eftir að það er búið að mála. Og það er það sem ég er hvað spenntust fyrir, að fá að flytja frá mömmu og setja upp mitt eigið heimili á ný.
Ég get ekki beðið, það er ekki það að ég geti ekki látið mér lynda við mömmu, heldur er það sjálfstæðið sem ósjálfrátt er af manni tekið um leið og maður stígur fæti inn í foreldrahús. Við því er ekkert að gera, verra væri það nú ef foreldrar gætu hrist svo auðveldlega af sér foreldrahlutverkinu um leið og börnin eru orðin fullorðin.
Um leið og þetta gengur upp er allt annað á uppleið........
Ég er bjartsýnin uppmáluð í dag.

þriðjudagur, janúar 21, 2003

Ég er að komast niður úr verkefnabunkanum. Stel smástund í bloggið.
Ég skoðaði íbúð í gær sem var hreint út sagt ekki mönnum bjóðandi. Mér finnst það ótrúlegt að það hafi fólk búið þarna fyrir stuttu. Það er nauðsynlegt að leggja út u.þ.b. 3 milljónir til að íbúðin verði íbúðarhæf í það minnsta. Það þarf að rífa allar klæðningar og veggi niður. Skipta um glugga og teikna hana bara upp á nýtt. Gæti verið skemmtilegt verkefni ef maður er með pening á lausu og þarf ekki að flytja inn fljótlega. Ég ætla ekki að búa hjá mömmu í ár í viðbót.
það var gaman að kýkja á þetta þó að ég hafi´nú ekki grætt neitt á því. Jú reyndar, það er sama hvað ég skoða héðan í frá það mun allt vera miklu fínna og flottara en þetta.
Hlynur bróðir varð náttúrulega að fíflast þegar við komum þarna. Það var einhver maður að skoða íbúðina um leið og við. Þegar við komum inn þá segir Hlynur við gæjann, "ég ætla að fá 5 grömm"
hann bregst hvumsa við og svarar "ha". Hlynur endurtekur "ég ætla að fá 5 grömm" og maðurinn er orðinn soldið ráðvilltur á svipinn. Hann spyr "5 grömm af hverju", "af afgana" svarar Hlynur. Og er manninum greinilega hætt að lítast á blikuna. Nú gat ég ekki látið þetta ganga svona áfram, og hnippi í Hlyn og segi við manninn "hann er nú bara að grínast".
Maðurinn er núna farinn að fatta djókið og spyr "nú var eitthvað svoleiðis selt hér?

mánudagur, janúar 20, 2003

Mikið er ég nú löt í dag. Ég svaf yfir mig í morgun og ég get ekki komið heilanum af stað, ég ætti að vera að fara á taugum yfir verkefnaflóðinu á skrifborðinu mínu en ég bara nenni ekki að gera neitt. Ég bara kem mér ekki af stað.
Ég var að skoða íbúð í Fellsmúla 16 á föstud. gæti verið nothæf. Pæli soldið í því.
Annars var sérlega ódýr íbúð að koma í sölu á Klapparstíg.... ég var nú búin að skoða íbúðina á móti fyrir u.þ.b. 1/2 ári.Þá hrökk ég til baka vegna nágrannans. Sem nú er látinn.
Við Hlynur bróðir förum í þessa íbúð eftir vinnu í dag, það er kannski íhugunarvert.
Ef fólki finnst þetta óhuggulegt, þá fær maður prest til að koma og blessa íbúðina til á róa draugahræddar taugar.

föstudagur, janúar 17, 2003

Ég er eitthvað svo ótrúlega stressuð núna, það er bara alveg að fara með mig. Reyndar hef ég sérlega mikið að gera í vinnunni núna. En það hefur allt of mikil áhrif á mig núna.
En núna verð ég að afkasta þessu öllu sem fyrst svo ég geti nælt mér í tíma til að stúdera fasteignamarkaðinn. Ég verð að finna tíma og orku til að skoða einhverja íbúð eftir vinnu í dag.
í kvöld fer ég svo vonandi eitthvað út á kaffihús eða eittvhað annað skemmtilegt.
Ég verð að taka mér nokkrar mínúntur núna til að kasta mæðinni og ná stressinu niður. Anda djúpt og skipuleggja verkefnin sem fyrirliggjandi eru.

Ég held ég þurfi að setjast niður og finna út nákvæmlega hvað ég vil fá út úr mínu lífi á næstunni. Ég verð að gera það til þess að geta fundið stefnu og sett mér markmið til að framkvæma það sem ég vil.
Sem sagt áður en ég fer á námskeiðið í næstu viku hef ég sett mér að finna út og setja það nákvæmlega niður hvað ég vil helst.
Síðan nýti ég mér námskeiðið til að finna leiðir að markinu.
Já dugleg er eitt af því sem ég ætla að vera, á næstunni Linda mín.

fimmtudagur, janúar 16, 2003

Ég byrja á Dale Carnegie námskeiði á næsta miðvikudag. Ég er bara mjög sátt við þá ákvörðun hjá mér. Ég fæ 10 % afslátt vegna þess að ég er í VR og svo fæ ég að námskeiði loknu 50% styrk frá VR. Þ.a.l. er þetta námskeið ekki lengur of dýrt.
Ég lít á þetta sem 1 skrefið í áttina að því að standa við áramótaheitið mitt.

miðvikudagur, janúar 15, 2003

Já það var meira að segja ansi gaman í gær. 'Eg fékk mér súpu og kaffi á Kaffi Nauthól þar sem var fullt hús, ekki laust sæti í húsinu. Það var ýmislegt rætt og reifað á ýmsum málum.
Heilsumál eru mér ofarlega í huga núna, ég er staðráðin í að létta mig. Ég held að þyngdin sé farin að hafa áhrif á öndunina hjá mér. Í það minnsta sagði mamma við mig í gær að hún hefði tekið eftir því að ég væri farin að anda svo þungt upp á síðkastið. Eins og að ég næði ekki andanum. Ég fór þá að veita þessu athygli og það er rétt. Ég verð að anda þungt stundum til að ná andanum.
Ég ath. hvort þetta breytist ekki strax við meiri hreifingu og að léttast. Ef ekki fer ég ´´i að athuga þetta. Kannski hangir þetta saman við kökkinn í hálsinum sem ekki vill hverfa.
Ég verð að hætta núna, klósettið kallar.

þriðjudagur, janúar 14, 2003

Uhum já, mér hefur verið vinsamlega bennt á að það sé leitun að jákvæðni í því sem ég skrifa hér á þessari síðu. Ég neita því ekki að ég á til að hallast á neikvæðu hliðina á þessari síðu. Að hluta til er það vegna þess að þetta er svo ágæt leið til að losa um fýluna og láta skapið ekki bitna á fólkinu í umhverfinu.
En þá bitnar það á þeim sem lesa, þ.e. þeirri sem les eiginlega.
Ég þarf líklega að endurskoða það hvernig ég nota þessa síðu.
Frábær skrif hjá þér Linda mín, "persónuleiki á við kaffikönnu" I scream.
Ég elska það þegar þú skrifar svona mikið.

Ég er sybbin, ég veit mig dreymdi eitthvað æði en gleymdi því þegar klukkan tók að hrella mig í morgun. Mikið hefði verið ljúft að lúlla lengur. Ég elska drauma.
Ég hef ekki tíma til að leggja mig þegar ég er búin að vinna, þá er líkl. best að hella í sig kaffinu og láta sig hafa það.
Eftir vinnu kl. 5 fer ég á Kaffi Nauthól að hitta fólkið sem ég var með í leiðsöguskólanum í fyrra. Kannski ég ætti að labba þangað, fá mér góðan göngutúr í fyrsta snjó vetrarins.
Það verður gaman, smá vottur af félagslífi.
Á morgun er svo kynningarfundur fyrir námskeið sem ég er að pæla í, Dale Carnegie & femin.is standa fyrir þessu.
Á förstudagskv. ætla ég svo að hitta hana Gunnu sem ég vann með á Expo, ég hef ekki hitt hana í marga mánuði.
Svo fer Larissa að koma, það verður gaman að sjá hana aftur.

föstudagur, janúar 10, 2003

Ég var að flýta mér hérna áðan og klikkaði á sign out í stað post & publish. Hvað skeður þá náttúrulega er allt komið í vaskinn. Í stuttu máli sagt
" It is not my day"
- túrverkir hrjá mig
- mig langar heim en ég verð að vinna (boring)
ég nenni ekki að skrifa allt aftur.

mánudagur, janúar 06, 2003

Mikið er ég geðill og pirruð í vinnuni í dag. Mér finnst sumir sem vinna hér ekki gera sitt gagn og tefja æginlega fyrir þegar maður þarf eitthvað að gera í sambandi við það fólk.
Annað er að allt þarf náttúrulega að fara úrskeiðis á annatíma. Fólk getur ekki einu sinni skrifað einfaldann reikning. Ég bölva og ragna inn í mér og er fegin að það eru bara 40 mín eftir af deginum því að ég þoli ekki meir í dag. Það sem ekki næst í dag verður bara að bíða þar til á morgun.

föstudagur, janúar 03, 2003

Ég er nokkuð ákveðin í að fara til útlanda um páskana og varð ansi spennt þegar ég sá að sumardagurinn fyrsti er svona nálægt páskum. Hmm 2 frídagar á viku tvær vikur í röð. Það gerir það að verkum að með einungis 6 daga fríi er maður komin 2 vikur í frí. Brilliant svo ekki sé meira sagt.
Ég ætla mér til Munchen og heilsa upp á gamlar slóðir. Nema hvað að ég kýkti á síðuna hjá þessu nýja lággjaldaflugfélagi, með flug upp á 14 þús. Og þeir voru líka með linka á síðunni í lággjaldaflugfélög úti. Og ég get fengið flug frá LON til MUC fyrir ca. 7000 ísl krónur. fram og til baka. Ég gæti jafnvel hugsað mér að stoppa smá í Edinborg á leiðinni heim og litið til Lindu. Gert þetta að alvöru ferðalagi.
Bara þessar smá pælingar gera mig svo spennta, ég get ekki beðið.´
Út vil Ek.

fimmtudagur, janúar 02, 2003

Jæja hvað getur maður sagt núna annað en GLEÐILEGT NÝTT ÁR!!
Áramótin voru bara nokkuð róleg og ágæt hjá mér. Það var matur hjá Mömmu, við vorum bara þrjú. Svo var farið á flakk til bræðranna og horft á flugeldana ofan frá Grafarholtinu. Það var hreint út sagt magnificent view.
Áramótaheitið í ár var frekar almennt, en skiptir samt mjög miklu máli. Ég hét því að láta drauma mína rætast, það er sýna næginlegt sjálfstraust til að framkvæma allt það sem ég hef verið of hrædd við að gera.