fimmtudagur, mars 16, 2006

Stjörnuspekisálfræði??

Ekki er ég alveg búin að ljúka mér af um þetta málefni.

Nú er ég búin að kýkja á viðtalið í heild sinni á netinu. Ég er líka búin að skoða heimasíðu hennar. Þar kemur fram að hún hafi BA úr félagsvísindadeild HÍ, en ekki hvaða grein hún hafi lagt stund á. Og síðar lagði hún stund á nám við "The Centre For Psychological Astrology? Það er sem sagt þaðan sem hugtakið kemur.
Við nánari skoðun virðist þetta vera ákveðin stefna í stjörnuspeki.

Að því að mér sýnist er annars vegar til stjörnuspeki sem spáir í framtíð manna, það er þessi sem við þekkjum úr dagblöðunum. Og svo hins vegar er þessi stefna sem einbeitir sér að því skoða persónuleika hvers og eins. Sem er gott og vel í sjálfu sér, ég væri hlynntari því að þetta kallaðist Persónuleikastjörnuspeki heldur en að Sálfræði sé bendluð við þetta.

Þó svo að þessi stefna hallist að kenningum ákveðins sálfræðings fyrri tíma, Jung....Oftast er greint á milli sálfræðinga og sálkönnuða, þ.e. Freud/Jung grundvölluðu sálkönnun (Psycho analysis),sem kannski telst vera ákveðin stefna innan sálfræðinnar, en í raun eru mjög fáir sem leggja stund á sálfræði sem hallast undir hana því er gerður greinarmunur á könnun og fræðum.

Mér er hreinlega illa við að einhver kalli sig sálfræðing þó með öðrum formerkjum sé, án þess að hafa gengið í viðurkenndan háskóla í fjölda ára til að nema fræðin á grundvelli vísindanna.

Ég kýkti á heimasíðu skólans og virtist þetta nám byggjast upp á eins dags og helgarnámskeiðum einhverskonar.

Ég hef ekki mikið fylgst með íslandi í bítið eða íslandi í dag, hef svona fylgst með með öðru auganu eða eyranu. En nú sýnist mér í fljótu bragði sem að munurinn sé í sjálfu sér sá að í bítið sé gagnrýnislaus magasín þáttur með léttu yfirbragði á meðan í dag taki á málunum með meiri gagnrýni. Kannski ég fari að skoða þetta betur.

Engin ummæli: