Mamma er á Kanarí og ég er á bílnum hennar, sem er fínt hann er miklu betri enn minn bíll en samt er það ekki alltaf gott að vera á sjálfskiptum, hmm.
Dagurinn byrjaði ekki glæsilega hjá mér í dag. Því ég dreif mig af stað, fattaði svo að ég þyrfti að dusta snjó af hliðarrúðunni vinstra megin, dreif mig úr bílnum gleymdi alveg að hann var í drive og bíllinn af stað ég hálf út úr bílnum og hurðinn lokaðist ekki, læsingin hafði frosið í nótt og ætlaði ekki að lokast.
Samkvæmt Mbl. er stjörnuspáin mín í dag eftirfarandi:
"Samskipti geta verið snúin. Það eru svo margar nýjar reglur upp á síðkastið. Ekki hafa áhyggjur. Drekinn er eins og alheimsfjarstýring og passar í hvaða aðstæður sem er. Hann getur meira að segja haft áhrift með því að ýta á takka á réttu augnabliki." Mér finnst þetta vera hálfgerð hæðni þar sem ég er að leysa af á skiptiborði þessa dagana. Og þó ég sé bara hálfan daginn í þessu er í nægu að snúast, í gær rauk ég héðan suður í HÍ með umsókn um starf sem ég er soldið spennt fyrir og svo þaðan í Mörkina þar sem ég var á fundi stjórnar Fagdeildar Fl., lokaspretturinn áður en ég er alveg hætt. Og var þar til kl að verða 7. Í dag verður álíka sprettur, fer héðan í prentun að ná í fréttabréf, skutla því á skrifstofuna, svo heim að taka til því móðursystir mín kemur svo kl 2 því mamma bauð mig fram í að hjálpa henni með skattskýrsluna. Að því loknu hvenær sem það verður fer ég svo á skrifstofu Fl. til að vesenast í tölvunni þar.
Á morgun er ég svo eftir hádegi að skrifa texta og umsóknir fyrir Sari. Hmm sem stendur er eins gott að ég er ekki í 100% vinnu.
En þetta fer nú að breytast, ef allt gengur eftir og ég kemst í vinnu og MBA þá mun ég þurfa að segja nei við alla, tek bara að mér smá greiða sem lítinn tíma taka.
Reyndar þó ég hafi ákveðið að hætta í öllum stjórnarpakkanum þá fékk ég þá hugmynd í gær og bauð mig fram í að skrásetja bókasafn félagsins og búa til gagnabanka í þeim tilgangi. Ég hef alltaf ætlað mér að kynna mér Access betur, en ég hef þurft verkefni til þess að drífa mig í það. Ég ætla nú samt ekki að vera í þessu í óendanlegan tíma, ég set mér ákveðin mörk í þeim tilgangi.
Ég sef ansi ílla þessa dagana, er alveg drulluþreytt alla daga. Kannski er heilsan aðeins að gefa eftir, það eru allir veikir allstaðar, flensa í gangi allstaðar. Mér er íllt í bakinu sem er nú sjaldnast flensueinkenni en kannski er það bara hreifingarleysið, ekki ólíklegt hmm.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli