föstudagur, mars 24, 2006

Orðabók

Orðalag er eitthvað sem gaman er að leika sér að, í blaðinu Birtu í dag sá ég orðalag sem minnti mig á Bridget Jones. Hún talaði nefnilega um einhleypinga sem singletons, man ekki hvað hún kallaði pör. Allavega í þessum pistli var talað um Lausalinga og Paralinga, gífurlega flott orðalag.

Mútta var um daginn að versla fisk, fisksalinn vildi endilega selja henni meiri fisk en hún vildi. Svo hún lét hann vita að hana vantaði bara einmennings ýsu. Þetta þótti honum stórfyndið. Verð að muna að nota þetta, einhvern daginn.

Engin ummæli: