Áður en ég fór í vinnu í morgun (afleysing á skiptiborði HS) heyrði ég aðeins í Íslandi í bítið. Ég náði ekki að hlusta á allt viðtalið en það var við konu sem vann við sálfræðistjörnuspeki. Ég leyfi mér aðeins að efast um að konan hafi lagt stund á nám í sálfræði. Ég náði ekki að fylgjast með þessu til enda, ég á eftir á kýkja á þetta á netinu svo ég geti tjáð mig um þetta að viti.
Að mínu viti er sálfræði og stjörnuspeki hreinasta þversögn við hvort annað. Samkvæmt öllum vísindum sálfræðinnar mun stjörnuspeki tilheyra hindurvitnum og hjátrú og öllum þeim er lagt hafa raunverulega stund á sálfræði ætti því að bregða við það að sálfræði sé skeytt saman við stjörnuspeki.
Það þýðir ekki að ég líti ekki í stjörnuspánna mína daglega. En það er af og frá að fræðigrein þar sem vísindaleg vinnubrögð eru viðhöfð eigi samleið með einhverju sem byggist á trú frekar en vísindalegum vinnubrögðum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli