þriðjudagur, mars 07, 2006

Framtíðarplön!!??

Jæja ég get ekki djöflast áfram í þessum hjólförum, ég verð að koma einhverju skikki á líf mitt. Atvinnuleit að eilífu er ekki að gera sig ég verð að taka þetta í eigin hendur á einhvern hátt. Og það sem ég kann betur en að láta ráða mig í áhugaverða vinnu er að fara í skóla. Ég hélt að M.A. myndi tryggja mér vinnu einhverstaðar en það gerir það ekki, alla vega ekki M.A. í félagsfræði.
Mér finnst ég komin í hálfgerða sjálfheldu eftir u.þ.b 5 ára atvinnuleit meira og minna. Ég er nýkomin af námskeiði í verkefnastjórnun, sem sagt praktískt námskeið sem vonandi gerir mann aðeins gjaldgengari í störf verkefnastjóra.
Ég held ég láti ekki þar við sitja, ég er að íhuga að taka MBA nám með vinnu, sem ég er enn að leita að. Þar fæ ég þennann praktíska vinkill á námsferilinn, viðskiptatengt. Bölvanlegt en ég neyðist til láta undan markaðnum, atvinnumarkaðurinn krefst viðskipta eða verkfræðimenntunar af svo til öllum. Mamma stakk upp á að ég færi að ná mér í kennsluréttindi, ég held nú síður (ekki taka þessu ílla elsku kennarar í mínu umhverfi) ég vil ekki fara aftur í skóla til þess eins að vera í láglaunastarfi (þ.e. miðað við menntunarstig í það minnsta), maður þarf að vera með hugsjónina, mín er ekki á því sviði.

Ég hef nú samt velt því fyrir mér, ég hef líka velt fyrir mér: þýðingafræði,MPA(meistaranám í stjórnsýslu), MPM (meistaranám í verkefnastjórnun), meistaranám í Fjölmiðlafræði, félagsráðgjöf, náms og starfsráðgjöf.

Ég er búin að tapa nægum tíma vegna eigin aumingjaskaps, búin að vera láglauna meir en nógu lengi. Eina leiðin til að fara að fá uppskeru er að ráðast á garðinn þar sem hann er hæstur, stefna á hálaunastörfin með því að greiða himinhá skólagjöld fyrir 2 ára nám fyrir viðbótargráðu við M.A. gráðuna mína, þá yrði ég með MBA.MA eða MAmba.

Ég er í dag að vinna í afleysingu á skiptiborðinu í HS, mér leiðist það alveg afskaplega, en það er bara 1/2 dagur svo ég lifi það af. En sé fram á að vera í þessari afleysingu í 2 vikur frá 15 Mars. Ágætt að hafa smá vinnu því ég er ekki skráð í neina ferð á þeim tíma. Vonandi nægur hvati til að hamast meir í atvinnuleitinni.

Nú verð ég að láta hlutina gerast því ekki gerast þeir sjálfkrafa.

Motto dagsins er ekki nýtt á nálinni hjá mér en á sérlega vel við.
Action instead of Reaction ég hef ekki getað þýtt þetta á sómasamlegan hátt sjálf svo þetta verður að vera á ensku.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég get lofað þér því að það er ekki betur borgað í fjölmiðlageiranum en í kennslunni... ef eitthvað er þá bara verr...

Audur sagði...

Já það er þess vegna sem ég reyni frekar við MBA held ég.
Er að tékka á þessu