þriðjudagur, apríl 29, 2008

Ömmusystir


Jæja þá er maður orðin gamall, að vera orðin ömmusystir áður en manni tekst að verða móðir. Elsta systurdóttir mín í svíþjóð er orðin móðir, hún eignaðist 20 marka dreng á sumardaginn fyrsta. Ég bíð spennt eftir því að fá að skoða drenginn, við mútta munum skreppa út að kýkja á gripinn í maí/júní. Svo þarf ég að fara að skipuleggja frekari sumarfrí. En hér fylgir mynd af prinsinum.

þriðjudagur, apríl 01, 2008

eitt og annað

Ég er ekki dugleg við að skrifa ég veit það, ég lofa engu með framhaldið. Mig hefur ekki langað neitt sérstaklega mikið til þess að skrifa eitt né neitt. Ég hef meiri áhuga á að hitta fólk í persónu nú eða heyrast í símanum. Hvernig er það eiginlega eru allir hættir að nota símann ?
Ég er að hressast eftir ljótt kvef, enda fékk ég pensílín í gær vegna, eyrna-, ennis- og kinnholubólgu.

Já í dag er 1 apríl, ég hef ekki leikið neinn illa, enginn hefur þurft að hlaupa apríl mín vegna. En þessi dagur er nú engu að síður happadagurinn minn þó ekki hafi neitt spes átt sér stað í dag.
Ég hef bara aldrei kunnað að plata fólk þennan dag, þó mig hafi langað það þegar fólk hefur platað mig þennan dag.

Mikið finnst mér jákvætt og merkilegt að sjá íslendinga taka upp á því að mótmæla af krafti dag, eftir dag og almenningur skilur málstað mótmælanda og tekur undir hann. Hingað til hefur meðal íslendingurinn ekki verið duglegur að standa í mótmælum og álitið flesta sem standa í mótmælum einhverra hluta vegna vera einhverskonar vitleysinga. Á móti kemur að tilefnið er mjög íslenskt, það lítur út fyrir að bíllinn og eldsneytið fyrir hann sé íslendingnum mikilvægari, en maturinn sem hann þarf sem eldsneyti fyrir sjálfann sig.
Reyndar er nú upphafið hjá atvinnubílstjórum sem eiga sitt lifibrauð undir akstrinum og kostnaðurinn kemur beint við pyngjuna hjá þeim sem starfa sjálfstætt.
Og ég er ekki sátt sjálf við þessar bensínhækkanir en óttast að það eigi eftir að versna áður en það skánar, ef það skánar.
En á móti kemur finnast mér margir íslendingar eiga það skilið að bensínið hækki, þar sem viðkomandi eru bjálfar í umgengni við verðmætann dropann. Kannist þið ekki líka við þetta fólk sem drepur ekki á bílnum á meðan bensínið er sett á? Liðið sem lætur bílinn vera í gangi á meðan skroppið er einhverstaðar inn? Og allir þeir sem nota stóra bensínháka í innanbæjarsnatt, leggja bíl sínum algjörlega án tillits til umferðarrelgna eða annarra takmarkana umhverfisins, bara að það sé alveg við dyrnar.
Og við erum ansi mörg sem förum á bílnum stuttar vegalengdir sem við gætum vel gengið eða hjólað, ég viðurkenni að ég geri það líka. En á ekki sök á hinu...... Smá hagkvæmni og sparsemi á ekki að vera neikvæður hlutur.

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Röfl

Ég hef ekkert sérstakt að segja, skrapp aðeins í vinnuna í dag, annars hefur ekkert sérstakt átt sér stað í dag. Í gær ekki heldur, hef bara verið að dúlla mér heima við og hlustað á hljóðbók á meðan. Hitti á gamlan vin á msn sem ekki var þar inni fyrir, gaman gaman að ná sambandi við gamla vini á ný. Sem sagt soldið verið að spjalla á netinu.
Og svo eru öll þessi febrúarafmæli, daglega þarf maður að senda afmæliskveðjur hehe.

föstudagur, febrúar 08, 2008

Úti eru veður vond

Úff hvað ég er orðin þreytt á þessu endalausa óveðri þennan vetur. Það væri ekki slæmt að skreppa aðeins eitthvað út í sólina, ekki það að ég vonist til að verða brún á hörund. Það er borin von. En þau áhrif sem sólin getur haft á sálarlífið eru óumdeilanleg og ég er farin að þrá sólskin á sálina. Ekki það að ég sé haldin skammdegisþunglyndi, ég bara þarf smá afslöppun.
Mér finnst yfirleitt snjór betri en grámygluleg rigning, en bara ef hann fæst til að vera á sínum stað og ekki fjúkandi út um allt. Ég fór suður síðustu helgi og það var erfitt að keyra báðar leiðir. Á föstudag var hálka og snjóþekja yfir á einum stað, þegar ég mætti vörubíl á fullri ferð þeyttist allur snjórinn upp og ég sá ekki neitt, ég fann hversu hált var þegar ég reyndi að bremsa. Úff, ég keyrði mjög hægt það sem eftir var. Á leiðinni til baka varð ég vör við það hvað gerist þegar maður keyrir of hægt. Ég sá rétt í stikurnar á heiðinni og var allt í einu búin að festa mig í skafli á miðjum vegi, það var ekkert vandamál ég bara bakkaði og hélt áfram. En ég bara sá ekki neitt nema stikuna og sá ekki að það var heill skafl fyrir framan mig. Þreytandi svona ástand, þreytandi að þurfa að keyra svona. Ég er fegin að ég ætlaði ekki neitt þessa helgi. Hefði ekki nennt því. Ég tek enga sjénsa með veðrið eða ástand vega.
Kannski ég fari að plana einhverja utanlandsferð. Aðra en heimsóknina til svíþjóðar í vor.
Finna eitthvað til að hlakka til.
Annars er ég búin að vera dugleg undanfarnar vikur við að hugsa um heilsuna, ég er búin að borða hollt og tek daglega inn lýsi, fjölvítamín, magnesíum og ginkó biloba. Og mér líður mikið betur. Ég hef aldrei getað vanið mig á að taka inn einhver vítamín áður, en til þess að muna eftir að taka þetta inn daglega geymi ég allt dótið við hliðina á kaffinu. Og það virkar!!

mánudagur, janúar 21, 2008

100 dagar

Ég held að hún Mamma mín sé spákona, hún spáði nýja meirihlutanum á sínum tíma 100 dögum, og 103 urðu þeir.

föstudagur, janúar 18, 2008

Akið varlega í færðinni !!!!

Úff ég var heldur betur heppin í dag. Ég keyrði útaf og lennti sem betur fer í snævifylltum skurði.
Ég var á leiðinni á Skagaströnd og er vegurinn þangað soldið mjór. Ég mætti bíl sem mér fannst vera soldið nálægur miðju og ef ég man rétt á þó nokkrum hraða. Ég vék aðeins til að hann kæmi ekki á mig og þar sem enginn vegakanntur er á þessum stað var ekki við neitt ráðið og ég rann beina leið út í skurðinn. Ég vissi að lendinginn yrði mjúk og var því ekki í neinu panikástandi þó ég hefði enga stjórn á bílnum lengur. Ég hugsaði bara hvernig á ég að koma bílnum út úr þessu. Ég hélt í alvöru að ég gæti kannski bara keyrt upp á veg aftur en því miður bíllinn var pikkfastur enda djúpur skurður undir öllum þessum snjó. Það var allt í lagi með mig, það komu margir að á næstu mínúntum og var reynt að ná mér upp með því að draga bílinn upp með 2 jeppum samtímis en ekkert gerðist, vegurinn var of háll. Ég fékk far á Blönduós og fékk upplýsingar um hvern væri best að hringja í til að fá aðstoð. Pantaði svo trukk með krana til að toga mig upp á veg. Það gekk eftir og virðist bíllinn alveg óskemmdur en ég ætla nú samt að láta líta á hann fljótlega. Þarf hvort eð er að láta laga lásinn á skottinu.
Ég fann ekki fyrir neinu strax á eftir en nú þegar taugarnar ná að slaka aðeins á þá finn ég hvað ég spenntist mikið upp þó ég hafi fundist ég vera alveg slök yfir þessu þegar þetta stóð yfir. Ég var sem betur fer ekki að reyna að stýra á móti þegar ég fann að dekkið rann útaf heldur lét bílinn bara ráða ferð, líklega hefði ég velt hefði ég gert það. Ég var heldur ekki á miklum hraða það hefur eflaust bjargað miklu. Mikið fannst mér ég vera lélegur og klaufalegur ökumaður þegar ég var lennt, en það þarf ekki endilega að vera að ég hafi gert eitthvað rangt. Það gerist margt í hálkunni sem ekki verður ráðið við svo ég segi bara farið varlega í færðinni.
Eftirá að hyggja sé ég eftir að hafa ekki haft vit á því að taka myndir af þessu, fyrst maður er með myndavél í símanum.

mánudagur, desember 24, 2007

Gleðileg jól

Elsku bestu vinir og vandamenn sem líta hér inn, ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Ef þú ert ekki búinn að fá kortið sem þú færð alltaf frá mér þá er það enn í pósti og kemur til þín milli jóla og nýárs.
HAFIÐ ÞAÐ GOTT ELSKURNAR

laugardagur, nóvember 17, 2007

Djö.........

Úff þvílíkur dagur, ég þurfti vegna óviðráðanlegra aðstæðna að vinna í dag laugardag frá kl 10 til 22. Og ekki mína vanalegu vinnu heldur þurfti ég að leysa af á Sambýlinu. Jæja allavega veit ég núna meir um starfsemina sem ég stjórna. Góðu fréttirnar eru að ég þarf ekki að vinna þetta sama á morgun, eins og útlit var fyrir.
Svo get ég ekki skrifað á saumaklúbbsbloggsíðuna!!! Drasl allt saman!!!!!!!!!!!
Veðrið var leiðinlegt í dag, snjór og rok, kannski ekki stormur hér en því sem næst.
Helgin er sem sagt önnur en ég hafði planað.

fimmtudagur, nóvember 01, 2007

Mér er ofboðið

Í dag er 1. nóvember og Húsasmiðjan er byrjuð að sýna jólaauglýsingar. Ég þoli þessa auglýsingu ekki, þetta er svo mikil ameríkanisering. Jólasveinn í Kók búningi er eitt, en þessi hugmynd um að það sé eingöngu einn jólasveinn á fljúgandi sleða er allt annar handleggur. Það þarf ekki að troða því inn á börnin. Þetta hlýtur að vera nógu ruglandi samt. Annars vegar eru 13 íslenskir lúðalegir jólasveinar í gamaldags fátæklingafötum sem eiga rauða sparibúninga og hins vegar erlenda fyrirmyndin um 1 jólasvein sem sér allri heimsbyggðinni fyrir gjöfum fljúgandi um á sleða og fer aldrei úr sparifötunum.
Æj ég er mest brjáluð yfir tímasetningunni, 1. nóvember er ekki hægt að bíða fram í miðjan mánuðinn.
Þegar ég var lítil var spennandi að sjá fyrstu jólaútstillinguna í Rammagerðinni og ég man ekki betur en að það hefði aldrei verið fyrr en eftir afmælið mitt, s.s. um miðjan mánuð.
Ég þoli þetta ekki, mér finnast of mikið af jólaauglýsingum, jólalögum og jólastandi allt of snemma hafa eyðilagt jólastemmninguna fyrir mér síðustu ár. Já já ég er bara grumpy Gringe, uss uss.

miðvikudagur, október 24, 2007

Auður Capital

Mikið fannst mér gaman að sjá að heill banki er nefndur eftir mér he he. Verst að ég get þá aldrei fengið lénið http://www.audur.is/.
Kannski dettur mér einhverntímann í hug að sækja um vinnu hjá þeim bara til að fá netfang sem endar á audur.is, eini gallinn er að þetta er banki og ég veit ekki hvað ég ætti að gera þar. Kannski viðskiptafræðingurinn Inga María sæki um vinnu þar, nú eða Linda með sína reynslu úr bankageiranum.

laugardagur, október 20, 2007

Veikindi

Jæja flensuskrattinn virðist hafa náð mér, ég er núna á þriðja degi heima hjá mér. Mér dauðleiðist þetta. Ég hélt ég gæti farið að vinna í dag en svo var ekki. Ég er ákveðin í að fara á morgun.
Ég fékk samstarfskonu mína sem býr í sömu götu og ég til að fara í búðina fyrir mig í gær, ég var náttúrulega búin með mjólkina. Hún var svo væn að bæta við innkaupin nokkrum hlutum sem ég mundi ekki eftir s.s. nammi og hálsbrjóstsykur.
Gamlar minningar komu upp þegar ég tók upp Paló molana, þó að umbúðirnar séu breyttar er bragðið ennþá það sama. Þegar ég var lítil og heimsótti afa minn og ömmu þá fékk ég alltaf Bismark mola hjá ömmu og Paló mola hjá afa. Amma var alltaf að skamma afa fyrir að gefa mér of mikið. Það vantaði bara lyktina af Prince Albert píputóbakinu hans afa.
Annars var ég dugleg í vikunni og dreif mig til læknis og lét taka blóðprufu v. blóðfitunnar og svo líka til að tékka á vítamínum og steinefnum og fleiri hlutum.

miðvikudagur, október 03, 2007

of miklar kröfur til sjálfrar mín ?

Samkvæmt síðustu kommentum geri ég of miklar kröfur til sjálfrar mín, það má svo sem vera að einhverju leiti. Ég ætlaði mér bara að gera eitthvað merkilegra við tímann minn en að hanga yfir sjónvarpinu öll kvöld og komst að því að sjónvarpið togar ennþá meira til mín en námsbækurnar. Ég ætti alveg að geta gert betur, maður á nú að geta gert eitthvað merkilegra við tímann sinn. Ég er ekki að hugsa um börn og halda margra manna heimili, svo ég hef heldur meiri tíma frjálsan en þið og ætti alveg að geta gert eitthvað annað en að glápa á sjónvarpið. Ég held að ég sé bara ekki viðbúin því að stunda sjálfsnám eingöngu, eins og staðan er í dag. Ég eyði það miklum tíma ein með sjálfri mér, ég þarf meiri félagsskap. En í þessu samhengi þá fékk ég niðurstöðurnar úr prófinu í síðustu viku í dag, það gekk alveg ágætlega þó ég hafi nú ekki lesið nema glósurnar, ég fekk heilar 7 úr prófinu. Svo nú ætla ég að reyna þetta áfram út þessa önn.
En mikið langar mig í stutta utanlandsferð núna í haust, ég veit bara ekki hvert og hver vill koma með? Og náttúrulega hvort ég hafi tíma til þess arna grrr. Ég hugsa bara málið áfram.

sunnudagur, september 30, 2007

nóg að gera

Jæja það er nóg að gera í vinnuni og því er ég komin með bakþanka varðandi námið. Ég er ekki alveg að tíma að eyða nægum tíma í námið. Ég skráði mig fyrst í 3 kúrsa þ.e. 9 einingar og minnkaði það svo niður í 2 kúrsa 6 einingar, enda líklega með 3 einingar. Ég er að komast að því að fjarnámsfyrirkomulagið á ekki endilega við mig. Það var próf í vikunni og ég gat bara ekki komið mér í að læra almennilega fyrir það, guð má vita hvað kemur út úr því. Næst er hópverkefni og ég veit ekki hvernig það fer, þá má maður ekki slá slöku við án þess að það komi niður á einhverjum öðrum, bölvað. Ég þarf fólkið í kringum mig, ég er nógu mikið ein með sjálfri mér og þarf frekar að finna mér eitthvað að gera við tímann minn sem hefur eitthvað með annað fólk að gera. Auk þess sem ég þarf bráðnauðsynlega að hreyfa mig meira, nei ég meina ég þarf að hreyfa mig punktur.
Ég þori nú samt ekki alveg að hætta, ég veit ekki ég hef aldrei hætt í neinu svona áður, ég hef kannski fallið á einhverju en ekki hætt bara sí svona. Ég kann ekki að hætta.

laugardagur, september 15, 2007

Umferðarteppur

Mér datt í hug að skrifa um umræðuna um umferðarteppur á höfuðborgarsvæðinu. Það fauk svolítið í mig þegar ég var að hlusta á útvarpið og allir voru á einu máli um að það þyrfti alls kyns umferðarmannvirki til að leysa úr þessu, nú eða að færa miðbæinn að Elliðaárósum. Einhver talaði um að allir skólarnir væru í miðbænum við Tjörnina og það þyrfti að flytja þá. Helvítis vitleysa, þar eru bara tveir af minni framhaldskólum höfuðborgarsvæðisins og auðvitað HÍ, stærstu skólarnir eru nú í úthverfunum eiginlega. Hvað er með Borgó og FB, FG, MK og skólana í Hafnarfirði. Auk þess sem 3 skólar eru staðsettir þar sem "nýr miðbær" átti að verða fyrir 20 árum síðan í nágrenni Kringlunnar. Og svo eru náttúrulega margir skólar á ýmsum öðrum stöðum í bænum.
Í allri umræðunni var ekkert minnst á hegðun fólksins sjálfs, það er orsökin í sjálfu sér. Ef manni verður litið inn í bílana í þessari umferðarteppu þá sér maður að það eru 1-2 í hverjum bíl, sjaldnast fleiri en einn. Ég ætla ekkert að fara frekar út í þessa sálmana, mér finnst bara að þetta sé hluti af umræðunni sem sjaldast kemur fram. Ég varð mjög ánægð með að sjá í það minnsta bloggfærslur þessa efnis. s.s. eins og þessi http://laugardalur.blog.is/blog/laugardalur/entry/307828/
Mér finnst engin ástæða til að endurtaka það sem aðrir hafa þegar komið fram með.

Annað varðandi þetta blogg er að það er á vegum íbúasamtaka í Laugardalnum. Íbúasamtök eru sjaldgæf í Rvk finnst mér, allavega heyrir maður ekki oft af slíkum samtökum. Mér finnst það heillandi að íbúar taki sig saman og geri eitthvað saman til heilla fyrir hverfið sitt. Þó oftast nær eru slík samtök stofnuð í skyndiþörf fyrir að mótmæla einhverju s.s. óæskilegir nágrannar t.d. heimilislausum o.s.frv.
Reyndar finnst mér munur á þessum og á Njálsgötunni vera að hér er verið að berjast fyrir einhverju, þ.e. grænum svæðum, en ekki bara gegn einhverju.

mánudagur, ágúst 27, 2007

hæ hó

Nú er að setja sig í stellingar og skrifa eitthvað þó ekki sé maður endilega í stuði fyrir það, það þýðir ekki að ásaka aðra um að skrifa ekki þegar maður stendur sig ekki sjálfur.
Ég fór í 2 vikna sumarfrí og var á ferðalagi með vinum frá Þýskalandi og má segja að við höfum farið vítt og breitt, nánast allt nema Vestmannaeyjar, firðina og hálendið.
Við gerðum ýmislegt skemmtilegt eins og að fara í siglingu um Breiðafjörð, Flúðasiglingar, Snjósleðaferð og náttúrulega í siglingu um Jökulsárlón. Í þessari ferð urðu til hreint ótrúlega flottar myndir yfir 2000 stykki. Mig langar alveg einstaklega mikið í góða myndavél, ég þarf að afla mér upplýsinga um slík tæki til að vita hvað ég vil. Annars fer að verða minni tími fyrir svoleiðis þegar ég fer að byrja í náminu nú í september. Jæja ég sé til hvernig gengur.

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Upptaka frá færeyjum

Grr var búin að gera fína færslu sem hvarf þegar ég ætlaði að bæta mynd inn á færsluna. En jæja, ég var að hlusta á upptöku frá tónleikum okkar á ráðhúströppunum í færeyjum. Ég verð að segja að þetta tókst bara ágætlega upp þrátt fyrir allar truflanirnar sem ég var alveg búin að gleyma. Fyrst var það fjöllistahópur með eldgleypi og ásláttarhljóðfæri hinu megin við götuna sem truflaði, það heyrist í þeim á upptökunni. Svo kom barasta heil lúðrasveit niður götuna, það var bara ekki hægt að syngja yfir það svo það varð að gera hlé. Þetta var meinfyndið, okkur fannst það hins vegar ekki fyndið að hann skyldi halda að við værum í fiskverkakvenna búningi en ekki hjúkkubúningi. Ég bara skil þetta ekki, hvítir sloppar og kappar, hver skilur ekki hvað það þýðir. En gaman var þetta, ég reyni að skella einni mynd inn með.

miðvikudagur, ágúst 01, 2007

Færeyjar

Jæja þá er maður komin aftur í heim í heiðardalinn eftir að hafa verið á Ólafsvökunni í Færeyjum. Það var einfaldlega æðislega gaman í þessari ferð. Mikið hlegið og mikið gaman, mikil stemmning í hópnum. Ég skemmti mér konunglega þrátt fyrir kvef og magapest að auki.

föstudagur, júlí 27, 2007

Veik

Ég get svo svarið það, það á ekki af mér að ganga, núna er ég með eitt versta kvef sem ég hef fengið í langann tíma og er að fara í söngferðalag með kórnum til færeyja. Heppilegt eða hitt þó!!
Ekki sérlega þegar kórinn er það lítill að það munar um hvern einn og einasta.
Við fljúgum í kvöld og ég er ekki búin að gera allt sem ég ætlaði að gera enda lá ég í bólinu í allan gærdag.
Við fljúgum til baka á þriðjudag svo ekkert verður bloggað þangað til.

mánudagur, júlí 16, 2007

hvur andsk.

Ég var að taka eftir því að myndavélin mín er með ranga dagsetningu, og hver veit hve lengi það hefur staðið. Hvernig á maður þá að finna út hvenær myndirnar voru teknar löngu seinna ef dagsetningin er röng í upphafi, grrrr. Mín ábending til allra tékka á því hvort myndavélin sé rétt stillt.

Heimsókn á Húnavöku

Hér er Alexander Emil Rae (Linduson) að sýna hvað í honum býr, hvað hann er duglegur að skríða. Glitta sést í Björk í bakgrunni.
Posted by Picasa