Samkvæmt síðustu kommentum geri ég of miklar kröfur til sjálfrar mín, það má svo sem vera að einhverju leiti. Ég ætlaði mér bara að gera eitthvað merkilegra við tímann minn en að hanga yfir sjónvarpinu öll kvöld og komst að því að sjónvarpið togar ennþá meira til mín en námsbækurnar. Ég ætti alveg að geta gert betur, maður á nú að geta gert eitthvað merkilegra við tímann sinn. Ég er ekki að hugsa um börn og halda margra manna heimili, svo ég hef heldur meiri tíma frjálsan en þið og ætti alveg að geta gert eitthvað annað en að glápa á sjónvarpið. Ég held að ég sé bara ekki viðbúin því að stunda sjálfsnám eingöngu, eins og staðan er í dag. Ég eyði það miklum tíma ein með sjálfri mér, ég þarf meiri félagsskap. En í þessu samhengi þá fékk ég niðurstöðurnar úr prófinu í síðustu viku í dag, það gekk alveg ágætlega þó ég hafi nú ekki lesið nema glósurnar, ég fekk heilar 7 úr prófinu. Svo nú ætla ég að reyna þetta áfram út þessa önn.
En mikið langar mig í stutta utanlandsferð núna í haust, ég veit bara ekki hvert og hver vill koma með? Og náttúrulega hvort ég hafi tíma til þess arna grrr. Ég hugsa bara málið áfram.
1 ummæli:
Hitti mömmu þína áðan. Hún sagði mér að þú værir að kafna úr kvefi þarna fyrir norðan.
Velkomin í hópinn. Ég er líka að kafna úr kvefi og hef verið síðastliðnar 2 vikur.
Góðann bata!
p.s. er farin að bíða eftir bloggi:)
Skrifa ummæli