föstudagur, febrúar 08, 2008

Úti eru veður vond

Úff hvað ég er orðin þreytt á þessu endalausa óveðri þennan vetur. Það væri ekki slæmt að skreppa aðeins eitthvað út í sólina, ekki það að ég vonist til að verða brún á hörund. Það er borin von. En þau áhrif sem sólin getur haft á sálarlífið eru óumdeilanleg og ég er farin að þrá sólskin á sálina. Ekki það að ég sé haldin skammdegisþunglyndi, ég bara þarf smá afslöppun.
Mér finnst yfirleitt snjór betri en grámygluleg rigning, en bara ef hann fæst til að vera á sínum stað og ekki fjúkandi út um allt. Ég fór suður síðustu helgi og það var erfitt að keyra báðar leiðir. Á föstudag var hálka og snjóþekja yfir á einum stað, þegar ég mætti vörubíl á fullri ferð þeyttist allur snjórinn upp og ég sá ekki neitt, ég fann hversu hált var þegar ég reyndi að bremsa. Úff, ég keyrði mjög hægt það sem eftir var. Á leiðinni til baka varð ég vör við það hvað gerist þegar maður keyrir of hægt. Ég sá rétt í stikurnar á heiðinni og var allt í einu búin að festa mig í skafli á miðjum vegi, það var ekkert vandamál ég bara bakkaði og hélt áfram. En ég bara sá ekki neitt nema stikuna og sá ekki að það var heill skafl fyrir framan mig. Þreytandi svona ástand, þreytandi að þurfa að keyra svona. Ég er fegin að ég ætlaði ekki neitt þessa helgi. Hefði ekki nennt því. Ég tek enga sjénsa með veðrið eða ástand vega.
Kannski ég fari að plana einhverja utanlandsferð. Aðra en heimsóknina til svíþjóðar í vor.
Finna eitthvað til að hlakka til.
Annars er ég búin að vera dugleg undanfarnar vikur við að hugsa um heilsuna, ég er búin að borða hollt og tek daglega inn lýsi, fjölvítamín, magnesíum og ginkó biloba. Og mér líður mikið betur. Ég hef aldrei getað vanið mig á að taka inn einhver vítamín áður, en til þess að muna eftir að taka þetta inn daglega geymi ég allt dótið við hliðina á kaffinu. Og það virkar!!

Engin ummæli: