laugardagur, maí 12, 2007

Kveðja frá svíþjóð

Jæja þá er fermingin yfirstaðin,og nú er bara að bíða eftir júróvisíón og kosningasjónvarpi á netinu og jafnvel eitthvað farið í Singstar. Við fengum þrátt fyrir spá um annað fínasta veður í dag,sól og ca 18-20 stiga hiti, vonandi fáum við svona veður það sem eftir er ferðarinnar þá kannski kemur maður með smá lit heim. Fermingarbarnið fékk óskir sínar uppfylltar,það eina sem hún óskaði eftir var að fá pening í fermingargjöf, og það tókst næstum því hún fékk líka 3 skartgripi.
Hún ætlar að fá sér rosalega fína myndavél með alls kyns aukahlutum linsum og græjum og hún fékk næstum því nægan pening fyrir því, hún þarf að afla sér smávegis sjálf.
Annars er lítið planað næstu daga nema eins og 2 dagsferðir, einu sinni til Jönköbing og einu sinni til Ullared. Svo verður náttúrulega tekin ein dagsferð til Köben á fína bílaleigubílnum þegar við förum heim.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Örugglega skemmtilegra að fara í Singstar heldur en að horfa á júróvision....

Björk sagði...

jæja hvað er að frétta gamla mín