Já Ásta ég var alveg hætt að blogga, ástandið er búið að vera svo súrrealískt í þessu þjóðfélagi að ég átti bara ekki orð yfir það. Síðustu mánuði hef ég, líkt og flestir aðrir bara átt fullt í fangi með að fylgjast með öllu því sem er að koma í ljós. Ég hafði bara hreinlega ekki lyst á að bæta í bakkafullan lækinn af þeim bloggum sem fjallað hafa um ástandið. Hvað er annað hægt að kalla þetta en ástandið.
Reyndar eru afleiðingarnar ekki endilega komnar fram hér á norðvesturlandi, enda kom góðærið aldrei hingað. Maður getur ekki misst það sem maður fékk aldrei í hendurnar. Samt sem áður kemur ástandið verst niður á þeim sem voru hvað viðkvæmastir fyrir, það er það sem ég hef orðið vör við. Hækkun matvælaverðs kemur verst niður á þeim sem minnstar tekjurnar hafa. Og stöðugur neikvæður fréttaflutningur og almennt vonleysi kemur niður á þeim sem eru viðkvæmir fyrir.
Við fengum samt mjög skemmtilega heimsókn hingað á svæðið í lok nóvember, þegar Lára Ómarsdóttir kom og hélt fyrirlestra um það hvernig komast á af á litlu og halda lífsgleðinni í leiðinni. Vinnumálastofnun stóð fyrir þessum fyrirlestrum, þetta var mjög skemmtilegt hjá henni. Það er mikið vit í kreppuráðum Láru sjá www.laraomarsdottir.blogspot.com
Ég er afskaplega sein í jólaundirbúningi og var fyrst í gærkvöldi að klára að ganga frá þeim gjöfum og kortum sem ég sendi, s.s. jólakortin innanlands koma eflaust á þorlák. En það sem fer erlendis verður komið eftir jól geri ég ráð fyrir. Ég hefði alveg efni á að kaupa gjafir og senda út en hef hugsað mér að vera soldið hagsýn og bjó til þær gjafir sem fara út. Líka m.t.t. þess að skemmtilegustu gjafirnar eru þær sem eru heimagerðar. Ég bjó til diska f. þýskaland með tónlist og myndum. Svo prjónaði ég 3 gjafir f. Svíþjóð. Og eina f. þýskaland.
En svo á ég eftir að kaupa allar gjafir sem ég ætlaði að kaupa, fyrir hele familien. Það gerist allt á þorlák.
Ég ætla í bæinn eftir vinnu á morgun mánud. og vera í fríi á Þorlák og milli Jóla og nýárs.
Þannig að núna er ég að vinna til að vera búin að öllu sem gera þarf núna fyrir jól.
Ég óska öllum sem hér lesa og ég hitti hvorki né heyri í, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Ég óska ykkur öllum hamingju og lukku á komandi ári, að allir fái að búa við góða heilsu, þokkalegt öryggi (s.s. laust við ofbeldi og rán) og að draumar flestra fái að rætast.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli