Ég er fyrir norðan þessa helgina og reyni að nýta tímann til að koma mér fyrir sem og að vinna eitthvað. Ekki hefur mér orðið eins mikið úr verki og ég ætlaði mér.
Svo verð ég langa helgi fyrir sunnan næstu helgi. Ég fæ mér frí á föstudaginn.
Mig vantar enn að kaupa 2 stóra hluti til að geta komið mér fyrir almennilega hérna. Mig vantar þvottavél og tvíbreitt rúm. Ég fékk gefins sófa sem komið var með í dag, hann er ljótur en þægilegur svo hann dugar mér, ég skellti bara gömlu rúmteppi yfir hann. Ég er búin að finna mér rúm í Ikea en það vantaði hlut í það svo ég gat ekki keypt það um daginn. Soldið vesen að vera svona langt í burtu, en það hefst. Svo þarf ég að mála eina hillu, vantar rétta lakkið í það, lakkið sem ég keypti er ekki að duga.
Ég er líka búin að vera að dunda mér við að ná 4 umferðum af málningu af gömlum náttborðum frá mömmu, það tekur sinn tíma þó ég notist við hitablásara til að losa málninguna af, en það er gaman að þessu dundi. Verst hvað þessu fylgir mikið drasl.
Svo á ég eftir að setja upp einhver ljós, mamma ætlar að koma og sauma gardínur, og svo þarf að bora fyrir nokkrum hillum og þá fer þetta að verða komið.
Á mánudaginn ætla ég svo endilega að panta adsl tengingu og fá mér líka sjónvarp um adsl.
2 ummæli:
Bara brjálað að gera
sæta mín
Já hellooo, bara að láta vita að ég er búin að róast og komin með internetið heim. Hlakka til að sjá þig um helgina :)
Skrifa ummæli