Vinkona mín sem frétti fyrst af þessari síðu í dag, sagði mér að nú hefði hún sko eitthvað að lesa í kvöld fyrst ég hefði bloggað síðan 2002. Það sló mig soldið að ég hafi haldið þessari síðu úti svona lengi, ég hafði bara ekki tekið eftir því hvað þetta er búið að vera langur tími. Ég fór þá að líta aðeins inn á gamlar færslur, jemundur minn ég fékk sjokk. Fullt fullt af hlutum sem ég mundi ekki eftir og hafði gaman að lestrinum. Ég var nú samt soldið sjokkeruð yfir því hve opin ég gat verið í þessum færslum. Þetta er nú soldið opinber dagbók og ég sem hef aldrei getað haldið dagbók af ótta við að einhver læsi mínar innstu hugsanir. Fyrir utan það að ég hélt það aldrei út, gleymdi að skrifa. Það eina sem nálgast dagbókarformið eru bréfaskriftir við bestu vinkonuna, ég á enn öll bréfin hennar. Ég ætlaði að ljósrita þau og gefa henni innbundin í 30 afmælisgjöf en komst einhvernveginn ekki til þess. (Þú fyrirgefur vonandi framkvæmdarleysið) Ég vona bara að hún eigi eitthvað af mínum ennþá!! Svo við getum skipst á bréfum og lesið þau sem nokkurskonar dagbækur úr gamalli tíð.
Úff þetta blogg er soldið á mörkunum þegar ég hugsa um það. Málið var að fyrst vissu bara 2 aðilar sem þekktu mig af síðunni og var þetta svona okkar á milli þó að á opinberum miðli sé. Núna er ég búin að segja fleirum af síðunni og það eru jafnvel linkar á hana á síðum annara svo ekki er hún eins prívat og hún var í upphafi. Og skrifin eru líka orðin öðruvísi. Þrátt fyrir þessar pælingar er ég ekkert að fara að hætta þessu, er bara að pæla í þessu öllu saman.
4 ummæli:
Bréfin frá þér eru í kassa niðri í geymslu. Eitt af því fáa sem ég tók ekki í mál að henda þegar við tókum til þarna niðri í fyrra. (Ari sagði að ég væri biluð að geyma fullann kassa af bréfum) Við getum skemmt okkur í ellinni að lesa þau:)
Endilega vertu dugleg að skrifa á síðuna og alls ekki hætta að vera opinská þó að fleiri en tveir lesi....
p.s. ég fór allt of seint að sofa í gær þar sem ég var að lesa 5 ár aftur í tímann.
ég veit ekki hvort ég get beðið fram í ellina, sérstaklega núna þegar ég er komin með skanna, ef ég nennti gæti ég tekið upp á því að skanna þau öll inn.
hæ sæta velkominn heim
Já ég held ég hafi aldrei spurt þig hvort ég mætti setja linka á þig...?? En þar sem ég hef verið með link á síðuna líklega síðan 2002 þá geri ég ráð fyrir að það sé í lagi :) Ekki það að lesendahópurinn sé stór, fólk sem annað hvort þekkir þig eða hefur heyrt allt um þig frá mér ;) Já, endilega ekki hætta að skrifa í þínum stíl, þótt þú hafir verið opinská þá held ég ekki að það hafi verið of..
Skrifa ummæli