Jæja það er nóg að gera í vinnuni og því er ég komin með bakþanka varðandi námið. Ég er ekki alveg að tíma að eyða nægum tíma í námið. Ég skráði mig fyrst í 3 kúrsa þ.e. 9 einingar og minnkaði það svo niður í 2 kúrsa 6 einingar, enda líklega með 3 einingar. Ég er að komast að því að fjarnámsfyrirkomulagið á ekki endilega við mig. Það var próf í vikunni og ég gat bara ekki komið mér í að læra almennilega fyrir það, guð má vita hvað kemur út úr því. Næst er hópverkefni og ég veit ekki hvernig það fer, þá má maður ekki slá slöku við án þess að það komi niður á einhverjum öðrum, bölvað. Ég þarf fólkið í kringum mig, ég er nógu mikið ein með sjálfri mér og þarf frekar að finna mér eitthvað að gera við tímann minn sem hefur eitthvað með annað fólk að gera. Auk þess sem ég þarf bráðnauðsynlega að hreyfa mig meira, nei ég meina ég þarf að hreyfa mig punktur.
Ég þori nú samt ekki alveg að hætta, ég veit ekki ég hef aldrei hætt í neinu svona áður, ég hef kannski fallið á einhverju en ekki hætt bara sí svona. Ég kann ekki að hætta.
2 ummæli:
Elsku Ausa!
Það er ekkert að því að hætta ef þetta er of mikið. Þú gerir alltaf svo miklar kröfur til þín!
Slakaðu bara á og njóttu lífsins...
Sammála Ástu
Skrifa ummæli