föstudagur, júlí 06, 2007

Ný færsla

Tjah Ásta mín ég hef bara fundið mér annað að gera en að horfa á sjónvarpið eða skrifa á bloggið. Maður tekur pínulítið mið af öðrum, það er hreinlega ekki mikið skrifað svona yfir hásumarið, almennt séð svona. Maður bara er ekkert að nenna þessu ef sólin skín. Ekki það að ég hafi haft tíma til að fara út í sólina.
Það er meir en nóg að gera í vinnuni og finnst mér það ekkert þægilegt að allir aðrir hérna hjá mér séu í sumarfríi.
Mig langar í sumarfrí núna.....
En jæja... það bíður.

Mig hlakkar til að fara heim um helgina, kýkja aðeins í sund kannski, finna sér eitthvað skemmtilegt að gera.
Næstu helgi er svo nóg að gera hér...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú hefur nú aldrei verið neitt voðalega mikið fyrir sól hvorteðer er það ekki rétt hjá mér????

Vona að þú getir gert e-h skemmtilegt um helgina og að þú náir að klára þessi verkefni í vinnunni.....

Við erum á leiðinni í brúðkaup á þessum merkisdegi 07.07.07 Astrid & Ernir verða aðalstjörnurnar þar... (svona fyrir utan brúðhjónin sjálf)

Audur sagði...

hmm hvurslags misskilningur er þetta, auðvitað er ég jafn mikið fyrir sól og hver annar, málið er að sólin er ekki mikið fyrir húðina á mér, það er allt annar handleggur. Ég vildi óska þess að hún færi mér betur blessuð sólin....
Nú það er aldeilis vonandi gengur brúðkaupið vel og börnin kunni að fara með hlutverk sín ....