fimmtudagur, júní 14, 2007

hæ hó

Jæja ég ætla að koma í bæinn um helgina. Ég þarf að setja upp minnismiða um það sem ég þarf að gera um helgina svo ég gleymi því ekki. Svo getur maður vonandi gert eitthvað skemmtilegt líka.
Það er búið að vera soldið mikið stress í vinnuni en það er að lagast eftir daginn í dag. Nú fer kórinn að fara að herða sig í æfingum, það fer að líða að ferðinni okkar til Færeyja. Í dag heyrði ég að við munum víst syngja á Húnavökunni sem er bæjarhátíðin á Blönduósi í júlí. Svo nú verðum við að fara að vera dugleg.
Ég þarf að fara að klára að ganga frá íbúðinni hérna, fá mér þvottavél og nýtt rúm. En svo verð ég að fara að hugsa aðeins um sjálfa mig, því ég er orðin svo þjáð af vöðvabólgu að það er ekki fyndið. Ég finn spennu í kjálkunum svo það er líklegt að ég sé farin að gnísta tönnum á ný. Gvuð hvað ég er booooring í þessari færslu en svona er þetta stundum það er bara ekkert að segja.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá engin smá pæjumynd af þér komin á forsíðuna. Þetta líst mér vel á:) Hafðu það gott um helgina sæta og reyndu að komast í nudd....

Gyda og Kalli sagði...

Flott mynd Auður - þú ert stórglæsó :-D

Kv.'
Gyða

Audur sagði...

takk takk