miðvikudagur, júní 06, 2007
Frítt fyrir námsmenn í strætó
Ég sá á mbl.is að eitthvað er verið að ath möguleikana á því að hafa frítt f. námsmenn í strætó. Það er náttúrulega mjög sniðugt. Þegar ég var í mínu námi úti í þýskalandi þá var fyrstu árin engin stúdentaafsláttur á almenningssamgöngunum innanbæjar. En á einhverjum tímapunkti hafði stúdentaráði eftir langar og strangar viðræður við borgaryfirvöld komið því í gegn að stúdentaskírteininu fylgdi strætókort fyrir hálft ár. Það var að vísu ekki alveg ókeypis heldur var skráningargjald fyrir hverja önn hækkað, innan skynsamlegra marka og það gjald var fyrir strætókortið, hvort sem nemendur notuðu strætó eða bíl þá urðu allir stúdentar að greiða þetta gjald. Á móti greiddu borgaryfirvöld eitthvað niður, þetta var náttúrulega smápeningur sem við greiddum þarna í samanburði við fulla verðskrá í strætó. Vissulega voru nokkrir bíleigendur sem röfluðu yfir því að þurfa að greiða fyrir strætó þegar þeir notuðu almenningsamgöngur aldrei... en svo fór maður að hitta þessa einstaklinga í strætó. Fyrst þeir voru að borga fyrir þetta og svo er svo erfitt að fá bílastæði....
3 ummæli:
Hæ, var bara að huxa hvort þú gætir ekki skellt inn myndum af nýju íbúðinni?
já það ætti svo sem að vera hægt svona hvað úr hverju... það er enn ýmislegt eftir, mútta var hér í vikunni að skella upp gardínum og svona. Best að leyfa henni að ráða smá.
Þyrfti almennt séð að vera meira í myndunum...
Tek undir þetta. Það væri voða gaman að sjá myndir:)
Skrifa ummæli