mánudagur, janúar 23, 2006

Sjónvarpsleysi framundan ??

Sjónvarpsgarmurinn minn er farinn að slökkva á sér sjálfur, með æ styttra millibili.
Í morgun slökkti það á sér 2x á einum klukkutíma( kannski var ísland í bítið bara svo lélegt?). Og samtímis kom óyndisleg lykt sem fékk mig til að halda að það myndi brenna yfirum. Ég rétt þorði að setja það í gang nú í kvöld, ég skammta mér sjónvarpstíma, út frá skemmtilegasta sjónvarpsefninu. En ég sé fram á að það eigi eftir að deyja innan skamms. Ég er viðbúin því og tilbúin að stökkva eftir slökkvitækinu.
Ég er búin að ákveða að kaupa ekki strax nýtt sjónvarp, reyna að vera sjónvarpslaus um tíma, sjá hvort ég finni ekki framkvæmdagleðina í sjálfri mér, fari meira í heimsóknir, bæði til að kýkja á einstaka dagskrárliði og til að hitta fólk.
Hver veit nema að það verði mér bara til ánægju að verða sjónvarpslaus.
Verst að ég verð að passa strákana hans Hlyns bróður míns þarnæstu helgi, þeir yrðu ekki ánægðir með að vera sjónvarpslausir á meðan, kannski ég fái lánað sjónvarp hjá þeim hingað heim á meðan.
Næstu helgi fara Hlynur og Sari til Finnlands, Hlynur verður í 2 vikur og Sari í mánuð, mamma verður með strákana en ég hjálpa til og tek þá líklega um helgarnar til að hún fái smá frí. Þeir verða hjá henni í miðri viku því þeir geta gengið í skólann frá henni.

Engin ummæli: