Loksins er árið 2005 á enda, í mínum huga var það ár "annus horribilis".
Ég var búin að ákveða að hafa einkunarorð mín og áramótaheit fyrir þetta ár einföld og um leið kraftmikil.
Ég trúi og treysti á sjálfa mig, lífið og lukkuna
Áramótaheit að því tagi að breyta einhverju neikvæðu í fari mínu, megrun o.s.frv. hafa ekki borið árangur hingað til, þannig að ég sleppi því. Það er hins vegar í fínu lagi að setja sér takmörk sem maður vill ná. Skrifleg takmörk með ákveðnum tímasetningum, sem hægt er að vinna skipulega að. En ég kalla það ekki áramótaheit lengur, það er hvort eð er alltaf það sama sem maður ætlar sér. Nú er bara um að gera að breyta aðferðinni því þetta hefur ekki virkað svo vel hingað til. Svo það eru einkunnarorð fyrir árið, nokkurs konar mantra sem ég get notað til að auka sjálfstraustið og verið ákveðnari í því sem ég ætla mér.
Vonandi hafið þið öll haft það gott og notið hátíðanna og undir átökin framundan búin, því nú þarf að vinna fyrir öllum jóla/visa/euro skuldunum og öllum hinum aukareikningunum sem koma í upphafi árs.
Fyrsta takmark nýs árs hjá mér er að vera komin í vinnu fyrir lok janúar.
og hana nú.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli