Í dag er 1. nóvember og Húsasmiðjan er byrjuð að sýna jólaauglýsingar. Ég þoli þessa auglýsingu ekki, þetta er svo mikil ameríkanisering. Jólasveinn í Kók búningi er eitt, en þessi hugmynd um að það sé eingöngu einn jólasveinn á fljúgandi sleða er allt annar handleggur. Það þarf ekki að troða því inn á börnin. Þetta hlýtur að vera nógu ruglandi samt. Annars vegar eru 13 íslenskir lúðalegir jólasveinar í gamaldags fátæklingafötum sem eiga rauða sparibúninga og hins vegar erlenda fyrirmyndin um 1 jólasvein sem sér allri heimsbyggðinni fyrir gjöfum fljúgandi um á sleða og fer aldrei úr sparifötunum.
Æj ég er mest brjáluð yfir tímasetningunni, 1. nóvember er ekki hægt að bíða fram í miðjan mánuðinn.
Þegar ég var lítil var spennandi að sjá fyrstu jólaútstillinguna í Rammagerðinni og ég man ekki betur en að það hefði aldrei verið fyrr en eftir afmælið mitt, s.s. um miðjan mánuð.
Ég þoli þetta ekki, mér finnast of mikið af jólaauglýsingum, jólalögum og jólastandi allt of snemma hafa eyðilagt jólastemmninguna fyrir mér síðustu ár. Já já ég er bara grumpy Gringe, uss uss.
6 ummæli:
Var það ekki um mitt sumar sem við töluðum um jólin þarna um árið?
Annars er ég sammála þér um að þetta er allt of snemmt....
Nei var það um mitt sumar, var það ekki bara í allsherjarverkfallinu í október 1984.
Jú það gæti alveg verið rétt hjá þér. Ég treysti þínu minni algjörlega enda ert þú snillingur að muna allar dagsetningar og ártöl:)
Innilega til hamingju með afmælið elskan. Njóttu dagsins!
Hjartanlega til hamingju með afmælið!!
kveðja Guðrún
Skröggur.....;)
Skrifa ummæli