Nýju auglýsingarnar frá SPRON eru meiriháttar kaldhæðni í mínum augum. Almennt séð er fólk mjög tregt til að skipta um banka, það byrjar í einum og er þar áfram nánast hvað svo sem gengur á. Í þessum auglýsingum frá Spron er verið að sýna fólk sem er við það að segja bankanum sínum upp, með það fyrir augum að reyna við SPRON.
Sem er gott og blessað, bankamál hafa mikið verið í umræðu undanfarnar vikur. Gróði bankanna, áberandi markaðsstarf, nafnabreytingar, stórfenglegar veislur og önnur eyðslusemi sem fólk hefur tekið eftir. Vangaveltur koma upp varðandi það hvort bankarnir ættu ekki frekar að lækka þjónustugjöldin eða gera eitthvað annað fyrir viðskiptavinina frekar en að eyða peningum á þennan hátt. Svo vissulega getur verið sóknarfæri fyrir banka sem ekki hefur verið áberandi fyrir eyðslusemi. En aftur af minni reynslu af SPRON.
Nánast öll fjölskyldan mín hefur verið í viðskiptum við SPRON síðustu 50 ár. Pabbi hafði verið með bankabók þar alla sína æfi þegar hann dó fyrir 20 árum, hann átti allar bækurnar ennþá. Mamma gaf bankanum allar þessar gömlu bækur eftir andlát hans, þær hljóta að vera merkur hluti af sögu bankans. Þegar þau giftu sig fyrir 50 árum varð mamma viðskiptavinur SPRON. Hún persónulega er sem sagt búin að vera í viðskiptum við bankann í 50 ár, hefur alltaf staðið í skilum þ.e.a.s. verið fyrirmyndar viðskiptavinur. Hún varð óánægð með bankann á síðasta ári, hún gerði þá kvöfu að hún gæti fengið sömu þjónustu þar og í öðrum banka, þar sem hún hefur einnig verið í viðskiptum undanfarin ár. Við þeirri ósk var ekki orðið, hún sendi uppsagnarbréf til bankastjórans þar sem hún tók fram hvaða kröfur hún hefði gagnvart bankanum auk þess sem hún tók fram hversu lengi við hefðum verið í viðskiptum við bankann. Hún hefur ekki fengið nein svör við því bréfi. Hún er því búin að segja upp bankanum sínum og komin í viðskipti annarstaðar. Það má einnig taka það fram að hún fékk ekki jólagjöf frá bankanum þegar allir aðrir fengu jólagjafir frá bankanum síðustu ár. Nýji bankinn sendi henni meira að segja afmælisgjöf á 70 afmælinu.
Ég er reyndar ennþá í viðskiptum við SPRON, en það er bara af því að ég er í miklum vandræðum með að finna réttann banka fyrir mig. Einhvern sem ekki er búinn að vera áberandi fyrir eyðslusemi og óhófleg þjónustugjöld. Ég verð að drífa í þessu núna og skoða alla bankana til þess að ákveða mig. Ég hef hugsað mér að segja SPRON upp því þeir ljúga því í auglýsingum sínum að þeir lagi sig að þínum þörfum. Þeir taka ekki mark á gömlum viðskiptavinum og leita frekar að nýjum. Viðskiptatryggð skiptir engu máli.
1 ummæli:
Ísabella mín fékk "fæðingargjöf" frá Sparisjóðnum í síðustu viku. Hún verður sko 1 árs í lok apríl svo mér fannst frekar fyrndið að fá fæðingargjöf ári eftir fæðingu. 10.000.- inni á bankabók og sparibauk.....
Vá hvað ég á eftir að lesa mikið í kvöld, ha þú búin að vera með síðu síðan 2002 og ég núna fyrst að fá að vita það.... Nú verður þú að vera dugleg að skrifa, mér finnst svo gaman að lesa blogggggg...
Skrifa ummæli